Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Síða 13
Miðvikudagur 16. apríl 2003
Fréttir
13
Amar Hjaltalín skrifar um fargjöld með Herjólfi:
Allt að þrefaldur kostnaður
í nútímaþjóðfélagi eru samgöngur einn aðalhomsteinninn.
I dag viljum við komast þangað sem okkur hentar, þegar
okkur hentar. Byggðarlög sem búa við strjálar og dýrar
samgöngur gefa óhjákvæmilega eftir. Vöruverð hækkar og
laun lækka vegna þessa ástands. Og fólk greiðir þessu
atkvæði með því að fara héðan. Við, og þjóðin öll, höfum
hingað til litið svo á að í landinu búi ein þjóð. Ef stjómvöld
ætla að vera sjálfum sér samkvæm þá mkka þau ekki eitt
byggðarlag um meira en annað fyrir gmnnsamgöngur. Við
hjá stéttarfélögunum verðum vör við að fargjöld Herjólfs
vega þungt í útgjöldum ijölskyldufólks.
Við leitum í
ýmsar heim-
ildir og öfl-
um okkur
fanga á ýms-
um stöðum
þegarþörfer
á. Einn af
þeim stöð-
um er
heimasíða
F.Í.B.
www.fib.is Þar eru athyglisverðar
upplýsingar um rekstur bifreiða. Vitn-
að er í heimasíðuna í grein í síðustu
Fréttum og kemur þar fram grund-
vallar misskilningur í túlkun á þeim
kostnaði sem er í að „aka“ milli lands
og Eyja.
Almenningur í Eyjum hefur heyrt
ýmsar afsakanir fyrir okrinu á far-
gjöldunum með Herjólfi. Nærtæk er
fyrmefnd grein, einnig er borið á borð
fyrir okkur bflapeningar samkvæmt
Ríkisskattstjóra, rekstrarkostnaður
skipsins tíundaður nákvæmlega og þar
fram eftir götum. Allt til að telja okkur
trú um að við séum að borga sama
skerf og aðrir landsmenn.
Skoðum aðeins bifreiðakostnað
eins og hann er settur fram á heima-
síðu F.Í.B. Miðað er við nýjan fólksbíl
sem kostar 1.700.000 sem reyndar
fæst verkafólk hefur efni á, hann eyði
9 1 á hundraðið, ekið 15.000 km á ári
og tölurnar eru meðaltalskostnaður á
km. miðað við eignartfma í 5 ár.
Skoðum tölurnar nánar og athugum
kostnaðinn af því að aka bílnum 140
km annars vegar á þjóðveginum
Herjólfi og hins vegar að aka honum
ekki neitt.
Akstur með Herjólfi
Kostnaður vegna notkunar, bensín,
viðhald hjólbarða 18,18 kr. á km,
verðrýmun 3,0 kr á km, samtals 21,18
kr. á km. 140 km. á kr. 21,18 samtals
kr. 2.965 eða kr. 1.483 á ferð. Hvort
sem einn eða fleiri eru í bílnum.
Bílnum ekki ekið með Herjólfi
Þó bílnum sé ekki ekið neitt fellur á
hann kostnaður samt sem áður, trygg-
ingar, skattar, skoðun, verðrýmun,
fjármagnskostnaður og finnst flestum
nóg um. Af hveiju ættum við eða aðrir
sem koma að heimsækja okkur til
Eyja að greiða þann kostnað í annað
skipti og þá til Vegagerðarinnar.
Almenningur ekur ekki einkabílunum
á útseldum kostnaði og þarf að bera
ferðakostnað sjálfur. Því er alveg út í
hött að bæta við hlutfallskostnaði af
föstum liðum og rukka þann kostnað
aftur í fargjaldinu.
Okur og afarkostir
Hjón á bíl með 2 böm 6 og 12 ára
þurfa að greiða kr. 5.950 aðra leiðina
eða kr. 11.900 báðar leiðir. Ef þau eru
búsett í Eyjum er kostur fyrir þau að
kaupa afsláttareiningar. Þá greiða þau
kr. 3.400 kr aðra leiðina eða kr. 6.800
báðar leiðir. Ef þau vinna hjá út-
völdum vinnustöðum eða em
félagsmenn í tilteknum stéttarfélögum
þá geta þau keypt einingar eftir
þörfum, þurfa þá ekki leggja út kr.
13.600 fyrir heilu afsláttarkorti til að
njóta afsláttar.
Þessi ljölkylduvænu fargjöld skila
okkur því að við erum að greiða frá kr.
5.300 til 10.400 kr. of mikið á fyrr-
greinda fjölskyldu. Það er sem sagt
verið að bæta 130 - 300 % við kostn-
aðinn og senda okkur reikninginn.
Okkur eru settir afarkostir, annaðhvort
að fara með Hetjólfi á þessum kjörum
eða fljúga fyrir tugi þúsunda á fjöl-
skyldu.
Þúsundir króna til viðbótar
En þá er ekki allur kostnaðurinn upp-
talinn. Vegna lágrar ferðatíðni
skipsins stóran hluta af árinu emm við
að lenda í ómældum kostnaði. Ein-
staklingur í fullu starfi, sem þarf að
leita þjónustu upp á landi, hvort sem
um er að ræða opinbera eða aðra,
lendir iðulega í því að vera allt að 3
vinnudaga frá. Þó að aðeins sé unt að
ræða lítilræði eins og viðtal við
opinbera stofnun í Reykjavík. Vinnu-
tap hans er þá um kr. 25.000 auk
okursins á ferðunum.
Atvinnulífinu blæðir
Ekki em aðeins einstaklingar sem líða
fyrir þá herferð sem beint er gegn
okkur með verðlagningu og ferðatíðni
skipsins. Fyrirtæki í iðnaði sem em að
sækja á markaði uppi á landi em ekki
eins samkeppnishæf vegna mikils
flutningskostnaðar að og frá Eyjum.
Ferðamannaiðnaðinum blæðir sem
sést best á að ferðamönnum fækkar
hér. Ekki aðeins missa fyrirtæki í
ferðaþjónustu viðskipti vegna þess að
viðskiptavinimir annaðhvort komast
ekki að eða frá Eyjum þegar þeim
hentar. Heldur er verðið það hátt á
samgöngunum að fyrirtækin verða
gefa eftir af álagningu sinni til að vera
samkeppnishæf í verði miðað við aðra
staði á landinu. Þetta þýðir aðeins það
að fyrirtækin geta ekki endumýjað sig
eins og þyrfti, geta ekki borgað
sómasamleg laun og uppbygging
þeirra tekur lengri tfma en æskilegt er.
Lífskjör og samgöngur
I nútímaþjóðfélagi eru samgöngur
einn aðalhornsteinninn. I dag viljum
við komast þangað sem okkur hentar,
þegar okkur hentar. Byggðarlög sem
búa við strjálar og dýrar samgöngur
gefa óhjákvæmilega eftir. Vömverð
hækkar og Iaun lækka vegna þessa
ástands. Og fólk greiðir þessu atkvæði
með því að fara héðan. Við, og þjóðin
öll, höfum hingað til litið svo á að í
landinu búi ein þjóð. Ef stjórnvöld
ætla að vera sjálfum sér samkvæm þá
rukka þau ekki eitt byggðarlag um
meira en annað fyrir grunnsamgöngur.
Við hjá stéttarfélögunum verðum vör
við að fargjöld Herjólfs vega þungt í
útgjöldum fjölskyldufólks. Þó Vest-
mannaeyingar hafi búið við þessa
verðlagningu lengi og séum orðnir
vanir henni þá er hún að koma í bakið
á okkur núna þegar kreppir að. Við
verðum að vakna til vitundar um að
þessi verðlagning er ekki rétt og því
síður sanngjörn og senda skýr
skilaboð um það og ekki síðar en í
næsta mánuði.
ArnarG. Hjaltalín
Drífanda stéttarfélagi
ísólfur Gylfi Pólmason: Hugmyndir um bættar samgöngur:
Skoðum þær með opnum huga
Ég lagði fram fyrirspum til samgönguráðherra vegna
flugsamgangna milli lands og Eyja þar sem fram kemur
aukning á farþegaflugi milli Eyja og Bakka en hins vegar
er fækkun á farþegum sem fljúga á milli Eyja og
Reykjavíkur sem e.t.v. stafar fyrst og fremst af verðlagi á
þessum ferðamáta.
Eitt það
skemmti-
legasta og
um leið
nauðsyn-
legasta sem
við stjóm-
málamenn
gerum er að
hitta fólk,
skiptast á
skoðunum
og reyna að finna lausnir á vanda-
málum og viðfangsefnum sem brenna
á fólki. Eg hef lagt mig fram um það
að koma oft til Vestmannaeyja og
hitta fólk, eins og reyndar félagar
mínir, þingmaðurinn Hjálmar Ama-
son og ráðherrann Guðni Ágústsson.
Eg hef gjaman sagt að ég sé nú
nágranni Eyjanna þar sem stutt er frá
Hvolsvelli til Eyja og ekki lengra að
fara þar á milli en að fara frá
Hvolsvelli á Selfoss. En þá er auðvitað
miðað við bestu aðstæður. Þama er
einmitt kjaminn sem alltaf er til
umræðu.
Sérstaða Vestmannaeyja er mikil.
Samgöngumál em og verða mál
málanna þangað til viðeigandi lausnir
finnast. Samgöngumálin em nátengd
atvinnumálunum og em alls staðar
gmndvöllur byggðar. Við framsóknar-
menn emm þakklátir fyrir hve margir
sóttu opnun kosningaskrifstofu og
fundi okkar í Vestmannaeyjum á dög-
unum. Þar er einmitt góður vett-
vangur til þess að skiptast á skoðunum
og leita lausna. Oft taka menn
hressilega upp í sig og telja að ýmsar
hugmyndir sem lagðar em fram séu
óraunhæfar. Við verðum hins vegar að
taka þessum hugmyndum með opnum
huga og kanna þær til hlítar. Öðmvísi
getum við ekki fundið út úr því
hverjar em raunhæfar og hveijar
óraunhæfar. Þá er sama hvort talað er
um hraðaskip, svifnökkva o.s.frv.
Mér þótti merkilegt að lesa grein
Gísla Jónassonar frænda míns í Frétt-
um á dögunum þar sem hann fjallar
um hugmyndimar um ferjulægi við
Bakkafjöm en við eigum það sann-
merkt að tengjast bænum Hallgeirsey
í Landeyjum, þar sem hann bjó í eina
tíð en ég var þar í sveit sem unglingur.
Rannsóknir við Bakkafjöm standa
yfir og er ekki útséð hverju þær skila.
Herjólfur er enn hin trausta brú milli
lands og Eyja og um leið þjóðvegur
okkar, og er full ástæða til að fjölga
enn ferðum hans meðan enn finnast
ekki aðrar lausnir. Flugið skiptir og
miklu máli í samgöngum milli lands
og Eyja.
Eg lagði fram fyrirspum til sam-
gönguráðherra vegna flugsamgangna
milli lands og Eyja þar sem fram
kemur aukning á farþegaflugi milli
Eyja og Bakka en hins vegar er
fækkun á farþegum sem fljúga á milli
Eyja og Reykjavíkur sem e.t.v. stafar
fyrst og fremst af verðlagi á þessum
ferðamáta.
I ferð minni til Eyja í síðustu viku
hitti ég áhugamenn um vegtengingu
milli lands og Eyja. Svo vel leist mér á
forsvarsmenn þessa hóps og hug-
myndimar að ég gekk í félagið enda
eru hér ekki síður hagsmunir okkar
Rangæinga en ykkar ef allt fer að
skilum. Þannig eigum við einnig að
leggja gangamálið upp. Áhuga-
mennimir hafa sett sig í samband við
vísindamanninn Ármann Höskuldsson
sem er tengdur erlendum vísinda-
mönnum sem tilbúnir em að gera
frumrannsóknir á hafsbotninum milli
lands og Eyja með tilliti til ganga.
Tryggð verður 6 milljón króna
fjárveiting til þessara frumrannsókna.
Hugmyndir þessa hóps em fyrst og
fremst þær að kanna til hlítar
möguleika á göngum milli lands og
Eyja til þess annaðhvort að halda
rannsóknum áfram sem leiða síðar til
framkvæmda eða þá til þess að útiloka
þessar hugmyndir. Það er einmitt
mergurinn málsins, við verðum að
kanna hugmyndimar til fullnustu til
þess þá að geta annað hvort haldið
þeim áfram eða útilokað þær. Öðru
vísi er ekki hægt að vinna að þessum
brýnu málum. Eg er þess fullviss að á
endanum finnum við framtíðarlausn
sem flestir geta unað og sætt sig við.
Það gemm við ekki með þröngsýni og
að útiloka hugmyndir fyrirfram - þær
þarf að fullreyna til þess að hægt sé að
hafna þeim.
Spurt er:
Á að kíkja á
menningar-
viðburði um
páskana?
Þorvaldur Víðisson prestur
-Jú, ég ætla mér að gera það og
hef husað mér að kíkja á tónleika
í safnaðarheimilinu um páskana.
Það verður nóg að gera í
menningarlífinu um páskana.
(íuðný Þorleifsdóttir hlómasali
-Ég ætla í kirkju um bænadaga
og páska.