Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Qupperneq 14
14
Fréttir
Miðvikudagur 16. apnl 2003
ADSEND GREIN
Birgir Þórarinsson skrifar:
Atthagafjötrar í Vestmannaeyjum
Það tilkynn-1
ist hér með
að Reykja-1
nesbrautin
verður lokuð I
um páskana,
flesta föstu-
daga og |
laugardaga :
sumar.
Einnig
verður hún I
lokuð um1
verslunarmannahelgina. Agætu
Suðumesjamenn og aðrir sem eigið
erindi til og frá Suðumesjum á
þessum tíma, þið verðið að dúsa
heima. Þið gætuð þó hugsanlega
keypt flugfar til Reykjavíkur. Það er
að vísu dýrt og þið verðið að skilja
bflinn eftir heima, svo er stundum
þoka og þá er ekki flogið. Góðar
stundir og gleðilega páska !
Ofangreindum texta myndi ekki
nokkur maður trúa. Ef við myndum
hins vegar setja ferjuna Herjólf inn í
textann, í stað Reykjanesbrautar, og
Vestmannaeyjar í stað Suðumesja þá
væri textinn sannur og vel kunnugur
öllum Eyjamönnum.
LJppselt í Herjólf
Uppselt er því miður allt of oft á
þjóðvegnum til Eyja. Eg gæti nú svo
sem vel skilið það að ófært væri
fáeina daga á ári vegna veðurs en að
komast ekki með fjölskylduna í stutta
helgarferð til lands á bílnum, t.d. í júlí
mánuði, það er með ólíkindum og
Samgöngumál til Eyja verða
ekki leyst nú þegar nema með
nýrri feiju. Hún þarf að komast
á milli lands og Eyja á skemmri
tíma en Herjólfur. Það er
sérstaklega mikilvægt til þess
að íjölga ferðamönnum og um
leið atvinnutækifærum
tengdum þeim. Það skiptir hinn
útlenda jafnt sem innlenda
ferðamann máli hvort hann er
einn klukkutíma til Eyja eða
þrjá tíma.
óásættanlegt. Hugsanlegt er þó að ég
kæmist í þessa fjölskylduferð mína á
laugardegi, þ.e.a.s. væri kominn til
Þorlákshafnar seint á laugardegi en
kæmist síðan ekki aftur til Eyja fyrr
en á mánudegi. Þar með væri ég
búinn að tapa laugardeginum í
helgarfríinu mínu og síðan væri ég
búin að tapa mánudeginum í vinnu.
Mikið er langlundargeð Eyjamanna í
þessu máli, það verð ég að segja.
Hver ber ábyrgðina á því að Eyja-
menn sitja ekki við sama borð og
aðrir landsmenn þegar kemur að
samgöngum. Greiða þeir ekki það
sama til samfélagsins og aðrir
landsmenn? Eru bifreiðar Eyjamanna
ekki skattlagðar á sama hátt og
annarra landsmanna?
Langtímamarkmið
Ami Johnsen, fyrrverandi þingmaður,
skrifaði langa grein í Morgunblaðið
fyrir skömmu um samgöngur til og
frá Eyjum. Þar tíundaði hann afrek
sín á þingi í þessu máli. Nokkrir aðrir
þingmenn sýndu samgöngumálum í
Eyjum einnig áhuga á sama tíma en
ekki tók því að nefna þá. Ámi ræddi
hugmyndir um jarðgöng og ferjuhöfn
á Bakkafjöru. Allt hið besta mál.
Sjálfsagt að koma sem flestum
hugmyndum á framfæri í málinu og
láta síðan sérfræðinga finna réttu
lausnina til frambúðar.
Lítinn áhuga hafði Ámi hins vegar
á nýrri, stærri og hraðskreiðari ferju.
Enda sú hugmynd ekki komin frá
honum sjálfum heldur öðmm þing-
manni. Sá heitir Hjálmar Ámason og
er framsóknarmaður. Hjálmar hefur
stórt hjarta fyrir málefnum Eyja-
manna og hefur m.a. ferðast erlendis,
á eigin kostnað, í því augnamiði að ná
hagstæðum samningum um leigu á
nýrri og glæsilegri ferju til reynslu.
En hvar vom nú Sjálfstæðismenn
þegar Herjólfur var tekinn úr höndum
heimamanna, þeirra sem best til
þekktu? Hvar vom þeir þegar far-
gjaldið var hækkað? Hvar voru þeir
þegar flutningskostnaður á vömm og
bílum var hækkaður og flutningsrými
fýrir bíla minnkað um allt að helming
í Ijölmörgum ferðum?
Því verður fljótsvarað. Sjálfstæðis-
flokkurinn stjómaði samgöngu-
málum í landinu og bæjarmálum í
Vestmannaeyjum. Oflug sveit það
fyrir bættum samgöngum í Eyjum!
Þetta er ágætt efni í öfugmælavísu
svo ekki sé meira sagt. Ibúar í
Vestmannaeyjum þurfa lausn í
samgöngumálum nú þegar. Jarðgöng
eru mjög athyglisverður kostur séu
þau framkvæmanleg. En þau verða
ekki byggð á einum degi. Gætu
hugsanlega litið dagsins ljós eftir 10
til 15 ár, séum við bjartsýn, Þá held
ég að margir verði nú bara fluttir upp
á fastalandið
Ný ferja
Samgöngumál til Eyja verða ekki
leyst nú þegar nema með nýrri ferju.
Hún þarf að komast á milli lands og
Eyja á skemmri tíma en Herjólfur.
Það er sérstaklega mikilvægt til þess
að fjölga ferðamönnum og um leið
atvinnutækifærum tengdum þeim.
Það skiptir hinn útlenda jafnt sem
innlenda ferðamann máli hvort hann
er einn klukkutíma til Eyja eða þrjá
tíma. Töluvert atvinnuleysi ríkir nú í
Eyjum. Brýnt er að tryggja fyrir-
tækjum þar eðlilegt starfsumhverfí
með því að jafna flutningskostnað til
og frá svæðinu. Ný ferja þarf að taka
fleiri farþega og fleiri bfla. Herjólfur
er gott skip en of lítið. Skammsýni
vinstri manna gerði það að verkum að
skipið var stytt frá upphaflegum
áformum. Voru það mikil mistök.
Það á að vera hluti velferðar-
kerfísins að Eyjamenn sitji við sama
borð og aðrir í samgöngumálum.
Höf. cr á fmmboðslista Framsóktuir í Siidurkjöda'mi
ADSEND GREIN
Björgvin G. Sigurðsson skrifar:
Krafa um breytingar liggur í loftinu
Vestmanna-
eyingar opna
verslun í
Hafnarfirði
-auk öflugrar
neiverslunar
Verslunin Indía ehf. var opnuð í
marslok að Flatahrauni 5a í
Hafnarfirði. Verslunareigendur eru
Heiðrún Björk Sigmarsdóttir, Vil-
berg Eiríksson og Guðrún Halldóra
Ólafsdóttir. í Indíu fást fallegar og
handunnar trévörur frá Indónesíu á
góðu verði. Þar er hægt að fá litlar
tækifærisgjafir, afmælis-, brúðar-
og fermingargjafir. Einnig selur
verslunin húsgögn, s.s. skenka,
glerskápa, kommóður og margt
fleira.
Mikil áhersla er lögð á þjónustu á
netinu og á heimasíðu verlunar-
innar, www.india.is má kynna sér
það sem í boði er og panta vöruna
beint af netinu. Þeir sem skrá sig
inn á vefsíðuna geta valið um að fá
sent til sín fréttabréf en í því eru
allar nýjungar kynntar jafnóðum
auk þeirra tilboða sem verslunin
býður upp á hverju sinni. Einnig
geta viðskiptavinir merkt við
ákveðnar vörur og eru þeir látnir
vita ef varan býðst á tilboðsverði.
Fréttatilkynning.
Eftir rúman
áratug undir
stjóm Sjálf-
stæðis-
flokksins
liggur í loft-
inu krafa um
breytingar
og nýja
stjómar-
hætti.
Heilbrigða
stjómar-
hætti. Ef Samfylkingunni tekst að
vinna sigur og komast upp að hlið
Sjálfstæðisflokksins markar það
þáttaskil í íslenskum stjómmálum. Sá
sigur myndi breyta varanlega lands-
lagi stjómmálanna. Örþreyttum
Sjálfstæðisflokki sérhagsmuna yrði
komið frá og frjálslyndur umbóta-
flokkur tæki við sem kjölfesta
stjómmálanna.
Óréttlætið veður uppi í sjávar-
útvegsmálum, velferðarkerfið er
að breytast í bandarískt for-
réttindakerfi og heilu byggða-
lögin hrynja vegna kvóta-
kerfisins. Um þetta verður kosið
í vor, en einnig um meðferð
valdsins gagnvart borgumnum.
Samfylkingin er breiður og fijáls-
lyndur flokkur, grundvallaður á
sanngimi og réttlæti og skýr valkostur
við Sjálfstæðisflokkana tvo sem með
völdin fara. Það verður kosið urn það
í vor hvort Samfylkingin fái brautar-
gengi til að breyta.
Það verður kosið um réttlæti
Krafa um sanngjama stjómarhætti,
lýðræðislegar umbætur og almennar
leikreglur, þar sem allir standa jafnir,
liggur í loftinu sem aldrei fyrr. Krafa
um jöfn tækifæri allra íslendinga til
atvinnufrelsis og mannsæmandi lífs.
Óréttlætið veður uppi í sjávarút-
vegsmálum, velferðarkerflð er að
breytast í bandarískt forréttindakerfi
og heilu byggðarlögin hrynja vegna
kvótakerfisins. Um þetta verður kosið
í vor, en einnig um meðferð valdsins
gagnvart borgumnum. Eins og
Ingibjörg Sólnín Gísladóttir, forsætis-
ráðherraefni Samlýlkingarinnar, kom
að í frægri ræðu í Borgamesi fyrr í
vetur. Og allt varð vitlaust. Eimitt
vegna þess að hún kom að kjama
málsins. Stjómarflokkamir hafa farið
illa með valdið og beitt því af
miskunnarleysi og hroka.
í þágu almannahagsmuna
Samfylkingin er klár valkostur við
valdhrokann og mismununina. Við
spyrjum ekki í hvaða liði neinn sé.
Allir standa jafnir og eiga að hafa
sömu jöfnu tækifærin. Við ætlum að
lýðræðisvæða samfélagið og færa
valdið til fólksins. Við ætlum að
stjóma í þágu almannahagsmuna í
einu og öllu. Við segjum forrétt-
indum, fýrirgreiðslu og spillingu stríð
á hendur. Við ætlum að berjast fyrir
jafnrétti og réttlæti fyrir fólk og
fyrirtæki á öllunt sviðum samfélags-
ins. Þetta er kjami málsins og um
þetta verður kosið í vor.
Vonandi heldur sú umræða áfram
sem á dögunum byijaði í Borgamesi.
Þá íýrst fer um valdhafana því að þeir
hafa vonda samvisku eftir áratug
óréttlætis og fyrirgreiðslu.
Höf. skiparsœti á framboöslista Samfylkingarinnar í Suöurkjöda’tni
Knattspyrnuvellirnir eru í slæmu ástandi eftir veturinn
Á fundi íþróttaráðs 4. aprfl sl. var
gerð grein fyrir fyrirkomulagi á
starfsemi við rekstur og hirðingu
íþróttavalla. Kristján Bjarnason
garðyrkjustjóri hefur orðið við ósk
ráðsins um að koma að ráðgjöf og
hafa eftirlit með starfseminni í sam-
ráði við íþróttafulltrúa.
Þeir hafa fundað með fulltrúum IBV-
íþróttafélags sem sér um rekstur
vallanna. Ástand íþróttavallanna er
misjafnt en Ijóst er að Týs- og Þórs-
völlur em í mjög slæmu ástandi.
Unnið verður að endurbótum við alla
vellimeð tillili til þeirra ábendinga um
ástand og úrbætur er fram koma í
úttektarskýrslu frá seinasta sumri, eftir
Bjama Helgason jarðvegsfræðing.
Fimm umsóknir
um bæjarlista-
mann
Á fundi menningarmálanefndar
þann 3. apríl sl. kom fram að fimm
umsóknir hafi borist um starfslaun
bæjarlistamanns fyrir árið 2003.
Neíhdin hittist 10. apríl sl. og ákvað
hver yrði íýrir valinu og verður það
kunngjört við hátíðlega athöfn á
sumardaginn fyrsta.
Styrkur úr menn-
ingarborgarsjóði
Menningarborgarsjóður sendi
menningamálanefnd bréf fyrir
skömmu þar sem kom fram að
umsókn nefndarinnar og gosloka-
nefndar hafi fengið styrk upp á 600
þúsund krónur vegna verkefnisins
30 ár frá goslokum í Vestmanna-
eyjum. Menningamálanefnd vill
fyrir sitt leyti flytja menningar-
borgarsjóði bestu þakkir fyrir.