Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 16. apríl 2003
Fréttir
15
Kvenfélagið Heimaey 50 ára:
Samhentar, glaðbeittar og ákveðnar konur
- segir Gyða Steingrímsdóttir formaður
Gísli Grímsson slær hér á létta strengi í spjalli við hjónin Steinunni
Margréti Finnsdóttur og Friðrik Haraldsson.
Systurnar Ása Sigríður, Gunnhildur og Helga Signý Helgadætur voru í
feikna stuði í afmælishófinu.
Kvenfélagið Heimaey
fagnar því um þessar
mundir að 50 ár eru síðan
félagið var stofnað. Heljar-
innar afmælishátíð var
slegið upp í húsakynnum
Akóges við Sóltún í
Reykjavík ekki alls fyrir
löngu og mættu um 150
manns til að samfagna
afmælisbarninu.
Hin víðfræga eyjastemmning sveif
yfir vötnunum þetta kvöld og var
skemmtidagskráin þétt. Gyða Stein-
grímsdóttir, formaður kvenfélagsins
Heimaeyjar, bauð gesti velkomna og
sagði frá því í stuttu máli þegar stelpur
úr Vestmannaeyjum stofnuðu með sér
félag í Reykjavík fyrir hálfri öld til að
halda tengslum sín á milli sem og við
Vestmannaeyjar. Þá var nýr hátíðar-
fáni félagsins afhjúpaður til minningar
um þær konur sem starfað hafa með
kvenfélaginu Heimaey í gegnum
tíðina. Fáninn er handunnin af
nunnunum í klaustrinu í Hafnarfirði.
Þá voru fyrrverandi formenn félagins
heiðraðir, en alls hafa 13 konur gegnt
formennsku í Kvenfélaginu Heimaey
og um 40 konur setið í stjóm.
Heiðursgestir kvöldins voru þær
Huld Kristinsdóttir, sem er ein af
stofnendum félagins og Guðbjörg
Jónsdóttir, formaður Kvenfélagins
Líknar. Guðbjörg kom ekki tómhenl í
þetta hjá okkur og félagið fengið mörg
þakkarbréf,“ sagði Gyða.
Kaífisamsæti á lokadegi
Gyða sagði að í stórum dráttum væri
starfsemi félagsins þannig háttað að
þær héldu að jafnaði sex fundi á ári
auk þess sem felagið stæði fyrir stórri
fjáröflun fyrstu helgina í aðventu. „Þá
höldum við stóran kökubasar sem má
segja að sé okkar aðalfjáröflun. Síðan
erum við með kaffi á Hótel Sögu 11.
maí ár hvert, en þá var gamli
lokadagurinn sem svo var nefndur,"
sagði Gyða, en lokadagurinn var
vetrarvertíðarlok.
„í gamla daga, eða um það bil sem
félagið var stofnað, fækkaði Vest-
mannaeyingum kannski um helming
jregar vertíðarfólkið ofan af landi fór á
Íokadaginn. Þannig að við höfum
haldið þessum sið og verið með
kaffisamsæti 11. maí ár hvert,“ sagði
Gyða. Öllum Vestmannaeyingum á
höfuðborgarsvæðinu, sem kontnir eru
yfír sjötugt, er þá boðið til kaffi-
samsætis á Hótel Sögu en aðrir borga.
„Kaffísamsæti þetta er gríðarlega
mikil fjáröflun fyrir félagið og ætíð
mikið fjör og mikið gaman. Þá er
mikið sungið og spjallað að Eyja-
manna sið,“ sagði formaðurinn.
Ætla að fjölmenna á
goslokahátíðina
Stór þáttur í starfsemi Kvenfélagsins
Heimaeyjar eru ferðalög í styttri og
lengri kantinum. „Við höfum farið á
hverju sumri í ferðir, eitt árið í
dagsferðir þar sem ferðinni er heitið
einhvað í kringum Reykjavík og hitt
árið í helgarferðir. Síðan höfum við
farið á fimm ára fresti til Vest-
mannaeyja eins og stefnt er að nú í
sumar,“ sagði Gyða, en kvenfélagið
ætlar þá að fjölmenna á gosloka-
hátíðina í júlí. „Við höfum fengið
gistiheimilið Hamar og má því segja
að við verðum í miðju djamminu og
býst ég við að verði ægilega gaman
hjá okkur."
Einar Jónsson og Ásthildur Sigurðardóttir, Adda hárgreiðslu, voru
kampakát þcgar blaðamann Frétta bar að garði.
Núverandi stjórn kvennfélagsins Heimaeyjar með nýjan fána félagsins í
baksýn. Sigríður Lárusdóttir gjaldkerí, Agústa Lárusdóttir ritari og Gyða
Steingrímsdóttir formaður.
Auglýst eítir ungum konum
Gyða sagði að félagið hefði eflst með
árunum en þó væri áhyggjuefni hvað
fáar ungar konur kæmu í félagið. „Þó
er alltaf ein og ein sem kemur inn í
félagið en við auglýsum hér með eftir
fleiri ungum konum til liðs við okkur.
Það er ekkert alltaf verið að baka og
alveg hætt að sauma þannig að ungum
konum ætti ekkert að vera að
vanbúnaði að koma í félagið," sagði
formaðurinn.
Það sem framundan er hjá Kven-
félaginu Heimaey er að í apríl er
fyrirhugað að vera með hátíðarfund í
Skíðaskálanum í Hveradölum þar sem
ætlunin er að heiðra þær konur sem
ekki gátu verið með á afmælishátíð-
inni. I haust er síðan stefnan tekin á að
halda í víking úl Barcelona á Spáni. Þá
hefur Kvenfélagið Heimaey látið
útbúa sérstakt barmmerki til styrktar
félaginu. „Sala á barmmerkinu verður
okkar aðalijáröflun í ár en aldrei áður
hefur slíkt merki verið útbúið," sagði
Gyða og hvatti Eyjamenn til að fá sér
slík merki, en hægt er að kaupa
merkið á Hárgreiðslustofu Guðbjargar
í Vestmannaeyjum.
-skapti@hi.is
Huld Kristmannsdóttir, einn af stofnfélögum Kvenfélagsins Heimaeyjar, og Kolbrún Stella Karlsdóttir voru léttar
í lundu í afmælishófinu.
afmælið því Kvenfélagið Líkn afhenti
stöllum sínum í Heimaey veglega
peningagjöf.
Þá mættu hinar eiturhressu Borgar-
dætur á svæðið og tóku nokkur lög við
góðar undirtektir. Það voru síðan
eyjapeyjamir galvösku í hljóm-
sveitinni Dans á rósum sem léku undir
dansi fram á rauða nótt.
Hressar ungar konur á öllum
aldri
Gyða Steingrímsdóttir, formaður
kvenfélagsins Heimaeyjar, var
kampakát þegar blaðamaður Frétta
hitti hana að máli eftir vel heppnað
afmælishóf félagsins. „Ég er mjög
stolt af félaginu og þeim konum sem
hafa starfað með því í gegnum tíðina.
Það hafa verið hæðir og lægðir í
félaginu, eins og reyndar hjá öllum
félögum, en í dag emm við samhentar,
glaðbeittar og ákveðnar ungar konur á
öllum aldri,“ sagði Gyða og hló við. I
kvenfélaginu em 217 konur sem allar
em tengdar Vestmannaeyjum á einn
eða annan hátt. Sumar em Vest-
mannaeyingar sem búa á höfuð-
borgarsvæðinu, aðrar hafa búið í
Eyjum og þá em sumar konur giftar
Eyjamönnum og vilja halda tengslum
við Eyjamar."
Kvenfélagið Heimaey er fyrst og
fremst líknarfélag og hefur félagið
styrkt margt gott málefni í gegnum
tíðina og væri að æra óstöðugan að
telja upp öll þau góðu málefni. „Til að
nefna eitthvað fóm t.a.m. nokkrar
konur í kvenfélaginu til þeirra Vest-
mannaeyinga sem komnir em á
stofnanir hér á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu og gáfu alls 95 gjafír. Við
höfum gert þetta í nokkum tíma rétt
fyrir jólin og ætíð verið tekið vel í