Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Page 20

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Page 20
Allt í Páskamatinn m l mm 1 - wm i Frétta- og auglýsingasími: 481-3310 * Fax 481-1293 Heimaeyjar- konur fagna afmæli Fyrir skömmu átti Kvenfélagið Heimaey afmæli og var þessi mynd tekin í afmælisveislunni sem haldin var í Akógeshúsinu í Reykjavík. F.v. - Gyða Steingrímsdóttir, formaður, Huld Kristmannsdóttir, Steinunn Margrét Finnsdóttir, Inga Karlsdóttir, Pálína Ármannsdóttir, Sigríður Guðlaugsdóttir, Fríða Hjálmarsdóttir, Sólveig Guðjónsdóttir og Hildur Káradóttir fengu afhent gull- merki Kvenfélagsins Heimaeyjar. Perla Þorgeirsdóttir, Sigríður Vilhjálmsdóttir og Viktoría Jóhannsdóttir áttu ekki heimangengt í afmælishófið og fá því gullmerki félagsins síðar. Sjá nánar á bls. 15. VIKUTILBOÐ 16. - 22. apríl Er»n há rsnyrtistofa SlMI 481 3666 LTOTERHK VEITIMGAHUS BÁRUSTÍG 11 SÍMI 481 3393 Góður matur. Góð þjónusta. Kostar minna en þó heldur. Sendibílaakstur - innanbæjar Vilhjálmur Bergsteinsson » 481-2943 » 897-1178 SCMðlTERðABILL Hundrað atvinnulausir Bærinn með átaksverkefni Samkvæmt upplýsíngum frá skrifstofu Svæðisvinnumiðlunar í Vestmannaeyjum eru um það bil hundrað manns án atvinnu í Eyjum. Sjómönnum hefur heldur fækkað á listanum. Vestmannaeyjabær hefur sam- þykkt að fara í átaksverkefni sem útheimta fjórtán störf. Meðal verkefna er gerð og lagfæring göngustíga, hreinsun vítt og breitt um Heimaey, merking gönguleiða og málun ljósastaura til að sýna vikurfall í Heimaeyjargosinu. Eftir er að ráða í þessi störf en það verður trúlega gert í næstu viku. Að undanförnu hefur Vilborg Þorsteinsdóttir, starfsmaður at- vinnuátaks Vestmannaeyjabæjar. sent bréf til stofnana og fyrirækja þar sem möguleikar á átaks- verkefnum eru kynntir. Margo Renner, starfsmaður Vinnumiðlunar, segir að kynningin virðist hafa haft áhrif því eitthvað er um að fyrirtækjaeigendur leiti eftir starfsfólki sem er á skrá hjá Vinnumiðlun. Þau eru næg verkefnin \\ Fréttir taka púlsinn á helstu málum í Ijósi kosninga Nú er rétt mánuður í kosningar og starf flokkana komið á fullt. í Fréttum fram að kosningum verður farið yfir helstu áherslu- atriði framboðanna og hvernig þau líta út frá bæjardyrum Vest- mannaeyja séð. Við ríðum á vaðið með umfjöllun um samgöngu- og ferðamál, skóla- mál og sjávarútvegsmál. Rætt er við hagsmunaaðila í ferðamanna- iðnaðinum og samgöngum. Þar kemur meðal annars fram í máli Valgeirs Amórssonar framkvæmda- stjóra Flugfélags Vestmannaeyja að hann telur að aðstaðan sem boðið er upp á á Bakkaflugvelli sé ríkinu til skammar, 26 þúsund farþegar fara um völlinn og aðeins eitt klósett er á svæðinu. Sigurmundur Einarsson eigandi Viking ferða hefur miklar áhyggjur af flugsamgöngum og það virðist sem það hafi gerst sem margir óttuðust þegar Flugfélag Islands hætti flugi að um leið töpuðust viss tengsl inn í markaðs- herferðir Flugleiða og eru Vest- mannaeyjar nú varla með á korti ferðamannsins. Baldvin Kristjánsson, skóla- meistari Framhaldsskólans og Frið- rik Friðriksson, formaður skóla- nefndar Framhaldsskólans em sam- mála um að nauðsynlegt sé fyrir skólann að marka sér sérstöðu og ná að bjóða upp á nám sem ekki er til annars staðar. Athyglisverðir útreikningar birtast um sjávarútvegsmál þar sem farið er ofan í stefnur flokkana. Það stefnir í að þetta verði eitt af aðalkosningamálunum í ár og mis- munandi áherslur flokkanna. Allt frá óbreyttu kerfi upp í gjörbylt- ingu. Þar kemur meðal annars fram að kvótatilfærsla síðustu ára hefur kostað Vestmannaeyinga 560 milljónir króna. Hversdags ís 2 Itr Scandole ísterta Coca Cola 4x2 Itr + spóla Egils Appelsín 2 Itr Egils Maltöl 0,5 Itr Kjörís konfektís terta Mjúkís 1 Itr Verð Nú 499,- 448,- 1019,- 198,- 98,- 1189,- 389,- Áður 648,- 628,-

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.