Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.08.2003, Síða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 21.08.2003, Síða 4
4 Fréttir / Fimmtudagur 21.ágúst2003 Ég þakka Helga Lása og Mörtu fyrir áskorunina (Þvílíkir vinir!) Ég œtla að bjóða itpp á bœði ftsk og kjötrétt og eins góða uppskrift afkrœkiberjaís sem á vel við þessa dagana. Sítrónukörfur 100 gr smjör 100 gr sykur 100 grflórsykur 75 gr liveiti 50 ml appelsínuþykkni 50 ml sítrónusafi Allt þeytt vel saman og búnar til litlar kúlur. Bakaðar í ofnskúffu við 180° hita í 5-8 mínútur. Þá verða kúlumar að þunnum, seigum kökum. St'ðan ertt þær teknar með spaða úr ofiúnum og settar á botn á glasi sem hvolft hefur verið á borð og katfan mótuð. Isinn borinnfram með sítrónukörfunni. Eldunartími 5-8 mín. Lúða, grís og krækiber Ofnbökuð lúða -með spergli og humri (fyrirfjóra). 700 gr smálúðufiök, roðrifin og snyrt 12 stk. stór, grœnn spergill 12 stk. meðalstórir humarhalar 12 goudaostssneiðar (17% fituinnihald) 2 dl fisksoð 1 dl hvítvín eða mysa 1 dl rjómi Salt og pipar, jurtakrydd (Aromat), 1 tsk. dill.ferskt eða þurkað, 3 msk. hvítlauksolía, 1 msk. kapers Lúðtiflökunum er velt upp úr liveiti á annarri hliðinni og sú hlið brúnuð á pönnu. Síðan fœrð yfir í ofnskúffu og hráa hliðin látin snúa upp. Kryddað með salti, pipar og jurtakryddi. Þremur sperglum raðað ofan á hvert lúðuflak og síðan þremur humarhölum. Ostsneiðarnar lagðaryfir fiskinn ásamt smjörklípu. Bakað í 180° heitum ofiú í 4 mínútur þangað til osturirm er liœfilega mjúkur, ekki brúnaður. Sósa: Fisksoð sett ípott ásamt hvítvíni.Suðan látin koma upp, síðan jafnað með Ijósum sósujafnara. Kapers, dilli og hvítlauk bœtt út í. Smakkað til með áðurnefndu kryddi og rjóma bœtt út í að síðustu. Sósan er höfð frekar þunn. Boriðfram með snöggsoðnu spaghetti og franskbrauði. Eldunartími 5-8 mín. Heilsteiktar grísalundir -í hunangs-portvínssósu (Jyrirjjóra). 800 gr grísalundir, sinahreinsaðar 2 dl portvín 1 tsk. Dijon-sinnep 2 msk. hunang 2 dl grisasoð (vatn og grísakraftur) 1 gulur laukur, meðalstór ólífiwlía, Extra Virgin (til steikingar) sjávarsalt, mulinn hvíturpipar, paprikuduft, jurtakrydd (Aromat), þriðja kiyddið Grísalundimar eru brúnaðar í ólífuolíu á pönnu, kryddaðar með áðurnefndu kryddi. steiktar í ofni við 180-200° í lOmínútur. A meðan ersósan búin til. Sósa: Laukurinn erfínt skorinn og kraumaður í olíunni á pönnu, portvíninu bœtt út í ásamt kryddinu og soðið niður í smástund. Þá er soðinu bœtt út í og soðið í 5 mín. Soðið er síað og jafnað með maizenasósujafnara. Bragðbœttfrekar með áðuniejhdu kryddi ef þutfa þykir. Að lokum er sinnepinu og hunanginu hrœrt saman við. Boriðfram með rjómasoðnum kartöflum Eldunartími 12 mín. Krækiberjaís í sítránukörfu (fyrirfjóra) 1/2 l rjómi 4 eggjarauður 5 msk. sykur 350 ml krœkiberjamauk 1/2 sítróna Rjóminn stífþeyttur. Eggjarauður og sykurþeytt vel saman, krœkiberjamaukinu síðan blandað saman við. Rjóminn hrœrður varlega út í og að lokum sítrónusafinn. Sett ífrysti. Það borgarsig að búa ísinn til daginn áður. Ég ætla að skora á uágranna ininn, Kagnhildi Mikaclsdóttur, cg hct'alltafTcngið ofsalcga gott aó horða hjá henni. EYJAMAÐUR VIKUNNAR Er alltaf í pollýönnuleik I vikunni hefur Masterclass tónlistar- námskeið verið haldið í Vestmanna- eyjum og er þetta þriðja árið í röð sem það er haldið. Nemendurnir eru fimmtán ára og yngri og hefur þátttakan alltaf verið mjög góð. Áshildur Haraldsdóttir hefur verið framkvæmdastjóri námskeiðsins frá upphafi og lýkur námskeiðinu með nemendatónleikum á laugardaginn frá 17 til 19. Ein af nemendum Áshildar er Eyjastúlkan Hlín Ólafs- dóttir sem verið hefur með öll þrjú árin. Hún er Eyjamaður vikunnar að þessu sinni. Nafn: Hlín Ólafsdóttir. Fæðingardagur: 5. maí 1989. Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar, eini Eyjamaðurinn í familíunni. Fjölskylda: Bý hjá foreldrum mfnum, Stellu og Óla El. Systkini mín, Skapti Örn og Sjöfn búa í Reykjavík. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór: Sagnfræðingur eða líffræðingur. Draumabíllinn: VW bjalla, rauð. Uppáhaldsmatur: Fiskibollur í brúnni, a la mamma Versti matur: Allur súrmatur og svið. Uppáhaldsvefsíða: Batman.is og s1 .is að beiðni Sjafnar systur. Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Öll tónlist nema þungarokk og óperur. Hlín Ólafsdóttir er Eyjamaður vikunnar. Hvaða mann/konu myndir þú helst vilja hitta í mannkynssögunni: John Lennon sem dó sama dag og Skapti bróðir fæddist. Aðaláhugamál: Tónlist og að ferðast. Faliegasti staður sem þú hefur komið á? Króatía og Vestmanna- eyjar í góðu veðri. Uppáhaldsíþróttamaður eða íþróttafélag: ÍBV og pabbi á línu- skautum. Stundar þú einhverja íþrótt: Nei. Ertu hjátrúarfull: Já, ekki brjóta spegil, ekki labba undir stiga og fleira. Uppáhaldssjónvarpsefni: Will og Grace. Besta bíómynd sem þú hefur séð: Mambo kings og Superstar (grín- mynd) Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir: Spila á spil og flautu, ferðast, vera með vinkonum mínum, Agnesi og Maríu Rós. Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir: Það er ekkert leiðinlegt (er alltaf í pollýönnuleik) Hvernig hefur námskeiðið gengið? Allt hefur gengið mjög vel hingað til. Hvaða þýðingu hefur svona námskeið fyrir þig? Það er frábært að fá svona góðan kennara eins og Áshildur er, hitta aðra flautuleikara, æfa og spila með þeim. Góð byrjun fyrir veturinn. Hvað hefur verið gert annað en að æfa sig? Aðkomukrakkarnir hafa farið í bátsferð og spilað í bænum. Eitthvað að lokum: Ég hvet alla bæjarbúa til að koma á tónleikana hjá okkur en nemendatónleikarnir verða í sal Tónlistarskólans á milli 17 og 19 á laugardaginn. Bösze á leið til Vestmannaeyja Ungverska skyttan, Joszep Bösze er á leið til Eyja eftir því sem næst verður komist en leikmaðurinn hefur verið undir smásjánni hjá ÍBV undanfarið. Bösze fékk góð meðmæli frá Robert Bognar, sem nú leikur sitt annað tímabil með ÍBV í vetur en Bösze er örvhent skytta. Þá er einnig hópur manna sem stendur utan við hand- knattleiksráð að vinna í að fá til Eyja rétthenta, norska skyttu og yrði leik- maðurinn alfarið á vegum hópsins. VÍS mótið í golfi: Guðjón Grétarsson sigraði Mikið hefur verið að gerast á golf- vellinum í sumar og skemmst er að minnast vel heppnaðs Islandsmóts í júlí og unglingamóts í byrjun ágúst. Völlurinn hefur verið í feikilega góðu ástandi í sumar og eiga vallar- starfsmenn hrós skilið fyrir störf sín. Um síðustu helgi var haldið VÍS mótið þar sem Guðjón Grétarsson bar sigur úr býtum en í öðru sæti var Snorri Hjaltason úr GR og Gunnar Geir Gústafsson var þriðji. Um helgina verður öldungasveit klúbbsins að verja Islandsmeistaratitil sinn frá því í fyrra á Flúðum. Á laugardaginn verður Íslensk-Ameríska mótið þar sem keppt verður eftir Texas Scramble fyrirkomulaginu og verður ræst út klukkan tíu. Sveitakeppnin verður svo haldin um aðra helgi í Keflavík en á síðasta ári náði GV að halda sæti sínu í I. deild og er stefnan sett áþað aftur. Athygli vekur að gamli Islandsmeistarinn, Þorsteinn Hallgrímsson verður þjálfari liðsins en liðstjórar eru Elliði Aðal- steinsson og Haraldur Óskarsson. a döfinni Agúst 22. Skólasetning Framlwldsskólans kl. 13.00. 23. Landsbankndeild kvenna: ÍBV - Þór/KA/KS kl. 14.00 ó Hósteinsv. 23. Nemendatónleikar Nlasterclass í sal Tónlistarskólans fró 17-19. 25. Grunnskólarnir settir. 25.-27. Innritun í Tónlistarskólann. 30. Landsbankadeild karla: ÍBV ■ Þróttur kl. 14.00. September 3. Londsbonkadeild kvenna: ÍBV - KR kl. 18.00 ó Hósteinsvelli.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.