Fréttir - Eyjafréttir - 21.08.2003, Blaðsíða 9
Frcttir / Fimmtudagur 21. ágúst 2003
9
Ætlar að synda
frá Eyjum til
lands
Sundkappinn Kristinn Magnússon
ætlar sér stóra hluti á laugardaginn
þegar hann leggst til sunds frá Vest-
mannaeyjum til lands. Er búist við að
sundið taki um fjórar klukkustundir
og er ætlunin að hann komi til lands
nálægt ósum Markarfljóts.
Kristinn hefur á undanfömum árum
unnið hvert sundafrekið af fætur öðru
og meðal annars synt Engeyjarsund,
Viðeyjarsund. Hvalfjarðarsund,
Drangeyjarsund og synt þvert yfir
Þingvallavatn.
Vestmannaeyjasundið var inni á
áætlun en það tókst ekki síðasta sumar
vegna óhagstæðs veðurs og vinda.
Björgunarsveit Hafnaljarðar og Vest-
mannaeyja munu fylgja Kristni eftir á
bátum og einnig verða með í för
reyndir kafarar sem þekkja strauma
og staðhætti mjög vel.
Að sögn Hrafnkels Magnússonar,
sérlegs talsmanns Kristins, liggur
nokkuð vel á kappanum fyrir sundið
en hann bað þó um að fá frið til að
undirbúa sig fyrir það. „Það sem
liggur mest á honum er að ljúka þessu
verkefni sem hann stefndi að allt
síðasta sumar. Það tókst ekki en nú í
ár hefur þetta verið tímaspursmál
hvenær sjórinn er heitastur og hvenær
hann er í besta forminu."
Hrafnkell segir að Kristinn sé vel
undir þetta búinn. „Hann er brattur og
hlakkar til að takast á við þetta.“
Sparisjóður Vestmannaeyja eignast meirihluta í Sparisjóði Hornafjarðar:
Þjónar svæði sem nær frá Djúpa-
vogi í austri að Selfossi í vestri
eignarhlut í Sparisjóði Hornafjarðar
með tilliti til heilbrigðs og trausts
rekstrar sparisjóðsins,“ segir í fréttinni.
Tveir Eyjamenn í stjórn
Með þessari samvinnu telja stjóm-
endur sparisjóðanna að sameiginlegt
starfssvæði sparisjóðanna muni
stækka og þegar fram líða stundir gæti
orðið til einn sterkur svæðisbundinn
sparisjóður með starfsstöðvar frá
Selfossi í vestri til Hafnar og
Djúpavogs í austri auk Vestmanna-
eyja, en nú þegar rekur Sparisjóður
Vestmannaeyja útibú á Selfossi, sem
er Sparisjóðurinn Suðurlandi og
Sparisjóður Homafjarðar og nágrennis
og útibú á Djúpavogi.
Vegna breytts eignarhalds á stofnfé
í Sparisjóði Homaíjarðar var sjóðnum
kosin ný stjóm og er hún þannig
skipuð: Ragnar Jónsson, Höfn,
formaður, Þór 1. Vilhjálmsson, Vest-
mannaeyjum, varaformaður, Arnar
Sigurmundsson. Vestmannaeyjum,
Hallmundur Hafberg, Reykjavík og
Páll Kristjánsson, Höfn.
Liður í stefnu okkar
Olafur Elísson, sparisjóðsstjóri Spari-
sjóðs Vestmannaeyja, segir að þetta sé
í gmnninn framhald af stefnumótun
sjóðsins, að leita tækifæra út fyrir
Vestmannaeyjar. „Fyrsta skrefið var
Sparisjóðurinn Suðurlandi á Selfossi
sem við opnuðum um mitt ár 2000.
Við höfum verið að leita skyn-
samlegra útrásarleiða sem við teljum
nauðsynlegt í breyttu bankaumhverfi
nú þegar ríkisbankamir hafa verið
seldir,“ sagði Olafur.
„Með því hefur rekstrarumhverfið
gjörbreyst og þó við séum hér úti í
Eyjum emm við ekki eyland í þessum
geira.“
Ólafur sagði að Sparisjóður Homa-
fjarðar hafi vissulega lent í erfið-
leikum en þá megi rekja til útlána sem
komi daglegum rekstri ekkert við.
„Daglegur rekstur hjá þeim er að skila
svipaðri framlegð og hjá okkur.
Útlánatöp síðustu þrjú hafa ein-
faldlega verið of mikil. A þessum tíma
hafa þrír sparisjóðsstjórar komið að
rekstrinum en nú teljum við hann í
góðum höndum. Rekstrar- og stjóm-
unarlega er Sparisjóður Hornafjarðar
kominn fyrir vind og í ljósi þess erum
við að yfirtaka reksturinn. Eða leggja
til meira stofnfé án þess að um
sameiningu sé að ræða.“
Ólafur segir að munurinn á sjóð-
unum sé sá að Sparisjóður Vest-
mannaeyja sé fjárhagslega sterkur
með lítið stofnfé sem skiptist á 70
stofnfjáreigendur en Sparisjóður
Hornafjarðar hafi verið veikur fjár-
hagslega en þar eru 200 stofnfjár-
eigendur sem verða áfram. „Til
samanburðar, þá var niðurstaða efna-
hagsreiknings okkar 4,3 milljarðar
króna árið 2002 en 2,4 milljarðar hjá
Sparisjóði Homafjarðar og hjá okkur
starfa 18 þar af fjórir á Selfossi en tíu
fyrir austan og þar af tveir á
Djúpavogi þar sem er jafnframt
póstafgreiðsla.“
Ólafur segist ánægður með þennan
áfanga í sögu Sparisjóðsins og
reynslan sýni að stofnun Sparisjóðs á
Selfossi hafi verið skref fram á við.
„Rekstur hans hefur staðið undir
væntingum þrátt fyrir að hann sé með
stóru bankana allt í kringum sig. Núna
nær starfssvæði okkar frá Djúpavogi í
austri á Selfoss og við viljum starfa
með fólki á þessu svæði. Við teljum
okkur vera að styrkja stöðu okkar og
nú getum við nýtt samlegðaráhrifin
enn frekar,“ sagði Ólafur.
Á fundi stofnfjáraðila Spari-
sjóðs Hornafjarðar og ná-
grennis 13. ágúst var kynnt
að vegna hárra framlaga á
afskriftareikning útlána und-
anfarin misseri hafi eigið fé
hans rýrnað verulega. Á
fundinum var samþykkt að
auka stofnfé sparisjóðsins til
að endurskipuleggja fjár-
hagsstöðu hans og keypti
Sparisjóður Vestmannaeyja
allt viðbótarstofnféð og eftir
það verður fjárhagsstaða
Sparisjóðs Hornafjarðar mjög
traust að því er segir í frétt frá
sparisjóðunum báðum.
I framhaldi af því var gert sam-
komulag milli sparisjóðanna um nána
rekstrarlega samvinnu en gert er ráð
fyrir auknu samstarfi sparisjóðanna,
bæði að þvf er varðar innri málefni og
þjónustu við viðskiptavini. „Með
þessum aðgerðum er verið að tryggja
framtíð sparisjóðanna og auka vaxtar-
möguleika þeirra enn frekar. Eftir
aukningu stofnfjár mun Sparisjóður
Vestmannaeyja eiga yfir 75%
stofnfjár Sparisjóðs Homatjarðar, en
annað stofnfé er að mestu í eigu Hom-
firðinga. Fjármálaeftirlitið hefur þegar
samþykkt að Sparisjóður Vestmanna-
eyja sé hæfur til að eiga virkan
Ólafur Elísson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Vestmannaeyja,
segir að þetta sé í grunninn framhaid af stefnumótun sjóðsins,
að leita tækifæra út fyrir Vestmannaeyjar. „Fyrsta skrefið var
Sparisjóðurinn Suðurlandi á Selfossi sem við opnuðum um
mitt ár 2000. Við höfum verið að leita skynsamlegra
útrásarleiða sem við teljum nauðsynlegt í breyttu
bankaumhverfí nú þegar ríkisbankarnir hafa verið seldir,“
sagði Ólafur.
Binni í Vinnslustöðinni skrifar:
Sameining Sæhamars og Gjögurs
Á Eyjafrétt-
um.is er haft
eftir Guðjóni
Rögnvalds-
syni um
sameiningu
Sæhamars
og Gjögurs:
„Þetta er
vamarleikur
hjá mér og
auðvitað er
maður mjög
sleginn. Úpphaflega var ég í
viðræðum við ísfélagið og Vinnslu-
stöðina því best hefði verið ef kvótinn
hefði orðið áfram í bænum. En þetta
er niðurstaðan."
Af þessu tilefni vilja forráðamenn
Vinnslustöðvarinnar koma eftirfarandi
á framfæri.
Forsvarsmenn Vinnslustöðvarinnar
hf. og Sæhamars ehf. hafa aldrei átt í
viðræðum um kaup Vinnslustöðvar-
innar á Sæhamri eða sameiningu
félaganna. Hið rétta er að seinnipart
vetrar bárust fréttir af því að Gjafar
ásamt aflaheimildum væri til sölu. I
vor hringdi framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar í Guðjón Rögn-
valdsson og spurði hvort Gjafar ásamt
heimildum væri til sölu. í kjölfar þess
hittust framkvæmdastjórar félaganna á
einum fundi þar sem Guðjón kynnti
verðhugmyndir sínar. Svar fram-
kvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar
var að þær væru of háar.
Frá sjónarhóli forsvarsmanna
Vinnslustöðvarinnar er niðurstaðan
því eftirfarandi. Upphaflega var
Vinnslustöðinni ekki boðið að kaupa
Gjafar ásamt heimildum og þaðan af
síður boðin sameining Sæhamars við
Vinnslustöðina. Þessu til viðbótar
fóru aldrei fram neinar viðræður, þótt
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar hefði spurst fyrir hvort Gjafar
ásamt heimildum væri til sölu.
Það að Vinnslustöðinni hefði verið
boðinn Gjafar ásamt heimildum til
kaups eða boðið til sameiningar-
viðræðna þarf hins vegar ekki að þýða
að Vinnslustöðin hefði keypt Gjafar
ásamt heimildum eða að félögin hefðu
sameinast í kjölfarið og aflaheimildir
félagsins haldist þannig í bænum.
Þess skal getið í lokin að for-
svarsmenn ísfélagsins og Bergs -
Hugins höfðu í síðustu viku samband
við forsvarsmenn Vinnslustöðvarinnar
um að sameinast um að kaupa á
Gjafar ásamt aflaheimildum - en það
reyndist of seint.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvœmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar.
Þess skal getið í lokin
að forsvarsmenn
ísfélagsins og Bergs -
Hugins höfðu í síðustu
viku samband við
forsvarsmenn
Vinnslustöðvarinnar
um að sameinast um
að kaupa Gjafar
ásamt aflaheimildum ■
en það reyndist of
seint.