Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.08.2003, Blaðsíða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 21.08.2003, Blaðsíða 16
16 Fréttir / Fimmtudagur 21.ágúst 2003 HÚN sat ein eftir í stúkunni og grét og þannig leið Eyjamönnum eftir leikinn á sunnudaginn en ekki má gera lítið úr því að komast í bikarleik sem alltaf er stór áfangi. IBV-stelpurnar höfðu ekki erindi sem erfiði í sínum fyrsta bikarleik: T ökum þetta í hænufetum -sagði Heimir Hallgrímsson, þjálfari eftir leikinn Það var stór stund í sögu kvennaknattspyrnunnar í Vestmannaeyjum þegar IBV- stúlkurnar gengu inn ó Laugardalsvöllinn ó sunnu- daginnn þar sem þær tóku ó móti Vals-stúlkum í bikarleik KSI. Bikarleikur er stærsti leikur hvers tímabils og það eitt að komast í úrslit er stór ófangi. En það verður einhver að tapa og því miður var það hlutskipti IBV-stúlkna sem þarna spiluðu sinn fyrsta leik í bikarúrslitum. Auðvitað er hundfúlt að tapa í svona mikilvægum leik en þarna var IBV að nó sínum besta órangri fró upphafi, þrótt fyrir að leikurinn hafi endað 1 - 3 fyrir Val sem þarna hömpuðu bikarnum í níunda sinn. Það mó því segja að hefðin hafi haft sigur að þessu sinni. Heimir Hallgrímsson, þjálfari liðsins, var eins og flestir leikmanna liðsins að taka þátt í sínum fyrsta bikarúrslitaleik með meistaraflokki. Hann sagði að ÍBV hefði ætlað sér að pressa á Valsstúlkur frá fyrstu mínútu. „Við lögðum upp með að pressa þær og það gekk upp. Við skoruðum mark strax í byrjun en svo fáum við á okkur mjög óvænt mark og það hreinlega sló okkur út af laginu," sagði Heimir. „Stelpumar duttu hreinlega úr sambandi og ég held að jöfnunar- markið hall hreinlega farið með þennan leik hjá okkur. Eftir það fórum við í að reyna langar sendingar fram völlinn í staðinn fyrir að spila boltanum fram. Það endaði bara með því að við fengum hættulegar sóknir í bakið.“ Valur skoraði svo tvö mörk á mjög stuttum tíma undir lok fyrri hálfleiks, það hlýtur að hafa slegið ykkur endanlega út af laginu? ,Já, þetta var erfitt eftir að þær jöfnuðu en það sem gerðist undir lok fyrri hálfleiks var algjört slys. I seinni hálfleik náðum við að setja pressu á Val og við fengum færi til að skora en þetta lá ekki fyrir okkur í dag.“ Hvað var lagt upp með að gera í seinni hálfleik? „Það var bara að pressa áfram á Valsstúlkumar. Þetta var spuming um að skora eitt mark því þá var leikurinn opinn upp á gátt en það gekk ekki upp, því miður. En við fengum færi til þess.“ Er þetta tap ekki enn eitt skrefið í þroskaferli IBV? ,JÚ, það má kannski segja það. Við fömm ansi mörg hænufetin í þessu og auðvitað vildi maður taka stærri skref en svona er þetta bara. Það er oft sagt að góðir hlutir gerist á löngum tíma og við skulum bara vona að það sé rétt. En ég vil nota tæki- færið til að þakka áhorfendum fyrir þeirra hlut. Eyjamenn vom í miklum meirihluta í stúkunni og studdu vel við bakið á okkur. Því miður vom úrslitin ekki betri en þetta en okkur leið mjög vel að sjá allt þetta fólk og emm mjög þakklát fyrir stuðninginn.“ Samantekt jul ius @ eyjafrettir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.