Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.08.2003, Qupperneq 20

Fréttir - Eyjafréttir - 21.08.2003, Qupperneq 20
Enn hársnyrtistofa SÍMI 481 3666 SILFURHAFAR IBV kvenna taka við verðlaununum. LKRTEmiK VEITINGAHÚS BÁRUSTÍG 11 r* él') SÍMI 481 3393 IGóður matur. Góð þjónusta. Kostar minna en þú heldur. Vilhjálmur Bergsteinsson > 481-2943 * 897-1178 Agnar Guðnason skipstjóri á Gjafari: Kom mér ekki á óvart Agnar Guðnason, skipstjóri á Gjafari VE, sem var seldur til Grenivíkur í síðustu viku segir að salan hafi ekki komið sér á óvart. „Eg verð að segja að ég hef verið hálfundrandi hvað Guðjón Rögn- valdsson útgerðarmaður hefur þraukað. Þetta hefur legið í loftinu undanfarin ár,“ sagði Agnar. Hann sagði ennfremur að ekki væri við Guðjón að sakast, frekar væri um að kenna fiskveiðikerfinu og röngum ákvörðunum í upphafi. „Þeir byrjuðu að gera út á leigu- kvóta en fóru ekki út í að kaupa sér varanlegar aflaheimildir. Kvótinn sem var á skipinu dugði rétt til áramóta og eftir það var gert út á leigukvóta. Það segir sig sjálft að það er mjög erfitt að gera út á þann hátt og ekki bætir úr skák að þurfa sífellt að vera að eiga við breytingar á kerfinu, jafnvel mánaðarlega.“ Ellefu skipverjar missa nú atvinn- una og jafnframt má segja að eitt til tvö störf í landi glatist með sölu skipsins. Hvað við tekur sagði Agnar að það væri allt óráðið en þessa stundina reyna hann og aðrir skipverjar að ná sér í afleysingatúra en nóg er af þeim í augnablikinu. Það má búast við að með haustinu dragi heldur úr slíku framboði. Agnar hefur lengi verið viðloð- andi Gjafar VE. Faðir hans, Guðni heitinn Olafsson, var útgerðar- maður og skipstjóri á skipinu til fjölda ára en þegar hann lést seldi eftirlifandi eiginkona hans hlutinn í skipinu til Guðjóns Rögnvaldssonar sem nú selur skipið til Grenivíkur. Vonandi tekst mér að snúa vörn í sókn -segir útgerðarmaður Gjafars VE sem seldur var til Grenivíkur með 900 tonnum Ákveðið hefur verið að útgerðar- félagið Sæhamar ehf. Vestmanna- eyjum sameinist Gjögri Grenivík og flyst félagið þangað. Sæhamar á þrjú skip, togskipið Gjafar VE, Guðrúnu VE sem mest hefur verið gerð út á net og Pétursey VE. Félagið hefur yfir að ráða milli 800 og 900 þorskígildistonnum sem fylgja með Gjafari til Grenivíkur. í áhöfn hans eru 11 manns sem við þetta missa atvinnuna. Guðjón Rögnvaldsson útgerðar- maður segir að salan á Gjafari VE sé ekkert annað en varnarleikur hjá sér í erfiðri stöðu en hann gerir einnig út Guðrúnu VE og Pétursey VE. „Reksturinn á Gjafari gekk ekki upp m.a. þar sem fiskverð hefur verið lélegt í Þýskalandi undanfarið. Þangað seldum við mestallan aflann og útgerðin þoldi hreinlega ekki slík skakkaföl 1 Guðjón sagði ennfremur að þetta væri búið að liggja lengi í loftinu. „Bátnum var lagt 20. júní sl. og bæði ísfélagið og Vinnslustöðin vissu mætavel að við vorurn að reyna að finna leiðir út úr þessum rekstri. Eg veit ekki alveg eftir hverju þeir voru að bíða,“ sagði Guðjón er hann svaraði spurningu um hvers vegna ekki hafi verið reynt að selja reksturinn innanbæjar. í yfirlýsingu frá Sigurgeiri Brynjari Kristgeirssyni, sem birt er í blaðinu í dag kemur fram að hugmyndir komu fram um að Vinnslustöðin, ísfélagið og Bergur- Huginn hf. stæðu saman að kaupum á Gjafari og aflaheimildum hans. Guðjón kannast ekki við það. „Þessar hugmyndir komu ekki inn á borð til mín.“ Þegar skip og aflaheimildir eru seld hefur sveitafélagið forkaupsrétt en ekki þegar félög eru seld í heilu lagi eins og gerist í tilfelli Sæham- ars. Félagið er sameinað öðru með öllum sínum eignum, þar á meðal Gjafari VE og um 800 þorskígildis- tonna kvóta. Guðjón á annað fyrirtæki, Pétursey ehf. sem gerir út samnefnt skip og Guðrúnu VE en hann er einnig framkvæmdastjóri yfir Istúni hf. sem á línuveiðiskipið Guðna Olafsson sem nú er í leigu á Nýja Sjálandi. Guðjón sagði að nú stæði hann í varnarbaráttu. „Við erum að reyna að byggja upp og horfa fram á veginn. Ein af þeim leiðum er að fá Guðna Olafs- son VE aftur heim og næst það vonandi í gegn á næstunni." I I s L % L L i: L L L * H *

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.