Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 30.09.2004, Page 4

Fréttir - Eyjafréttir - 30.09.2004, Page 4
4 Fréttir / Fimmtudagur 30. september 2004 EYJAMAÐUR VIKUNNAR liðsheildin vinnur titla -eínstaklíngarnir eru bara heppnir að fá að vera með Björgvin Eyjólfsson sjúkraþjálfari náði þeim einstaka árangri fyrir skömmu að hafa orðið bikarmeistari með öllum meistaraflokksliðum ÍBV, í karla og kvennaflokki. Björgvin hefur lengi starfað sem sjúkraþjálfari og fylgt liðum ÍBV í marga stórleiki. Fyrst varð hann bikarmeistari 1981 með karlaliði ÍBV í knattspyrnu og lauk hringnum í síðasta mánuði þegar kvennalið ÍBV í knattspyrnu varð bikarmeistari. Björgvin er Eyjamaður vikunnar að þessu sinni. Nafn: Björgvin Eyjólfsson. Fæðingardagur: 3. nóvember 1955. Fæðingarstaður: Reyðarfjörður. Fjölskylda: Óla Heiða, Elías Ingi og Eyþór. Draumabíllinn: Sá sem ég á í það og það skiptið. Uppáhaldsmatur: Lambalundir. Versti matur: Vondur matur er ekki til ef hann er óskemmdur. Uppáhaldsvefsíða: Inna.is Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Cat Stevens. Aðaláhugamál: íþróttirog þjálfun. Hvaða mann/konu myndir þú helst vilja hitta úr mannkynssögunni? Lenín. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Dimmuborgir. Uppáhaldsíþróttamaður eða íþróttafélag: ÍBV. Ertu hjátrúarfullur? Nei. Stundar þú einhverja íþrótt: Já. Besta bíómynd sem þú hefur séð: Man ekki eftir neinni sérstakri í augnablikinu. Uppáhaldssjónvarpsefni? Fréttir og sportið. Hvað hefur þú starfað lengi með meistaraflokksliðum ÍBV? Síðan 1980 með hléi frá 1987 til 1991 og 1998. Hvaða bikarmeistaratitill er eftirminnilegastur? Sá fyrsti, 1981 hjá fótboltanum með Kjartani Mássyni. Sá ævintýralegasti var þó líklega tíu árum seinna hjá handboltastrákunum Eitthvað að lokum? Allir titlar byggjast á samvinnu liðsheildarinnar. Einstaklingarnir eru bara heppnir að fá að vera með. Takk fyrir að fá að vinna með frábæru fólki innan ÍBV. Sarkoja frá Ukraínu Ég þakka Jóhannesi Grettissyni fyrir áskorunina og œtla aö bjóöa upp á svínapottrétt. Sarkoja frá Úkraínu Svínakjöt 500 gr. Kartöflur 1 kg. Laukur 1 stk. Sveppir 200 gr. Grófur svartur pipar Hvítlauksgeiri I stk. Aðferð: Matarolía sett á pönnu, svínakjötið er skorið niður í sneiðar og sett á pönnuna. Laukur og sveppir saxaðir niður og sett með. Eftir að búið er að steikja á pönnu í smá tíma er kjötið sett í eldfast mót. Kartöflur skomar niður í sneiðar (kubba) og jafnað yfir kjötið ásamt háll'ri matskeið af salti. Hálf matskeið af grófum svörium pipar einn hvítlauksgeiri saxaður smátt og tvö glös af vatni. Bakast í ofni, 200°c í um 25 til 30 mínútur. Meðlæti: Hrísgijón Hrásalat Snittubrauð Vodki eða bjór Guðrún Erlingsdóttir forseti bæjarstjórnar skrifar: Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott Nú hefur félagsmálaráðuneytið kveðið upp úrskurð varðandi kæru minnihluta sjálfstæðismanna um ákvörðun forseta bæjarstjórnar að fresta fundi vegna fárviðris og samgöngurofa. Úrskurðurinn er skýr. Aðstæður vom með þeim hætti að eðlilegt og sjálfsagt var að fresta fundi þar til bæjarfulltrúar hefðu tök á að mæta. Ráðuneytið telur óeðlilegt að funda kl. 23.15. Það er vonandi að til þessa fundartíma þurfi ekki að koma aftur. Hefði minnihlutinn haft manndóm í sér að samþykkja frestun fundar hugsanlega þar til um miðjan dag á föstudag hefði ekki þurft að funda svo seint. Fjölmiðlafárið í kringum frestun fundarins og einnig yfirlýsingar um fall meirihlutans, sem áttu ekki við nein rök að styðjast, gerðu lítið úr ásýnd okkar. Það sama á við um bamaskap minnihlutans, að skrópa á löglegan bæjarstjórnarfund. Bæjar- fulltrúum er skylt að mæta á fund nema brýnni skyldustörf kalli. En fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Út úr þessu fjaðrafoki hafa þau skilaboð komist til skila að meirihlutinn falli ekki, forfallist Andrés Sigmundsson einn bæjarstjómarfund, heldur gætu ein- staka mál fallið. Þau mál má svo taka upp aftur ef ástæður þykja til þegar aðalbæjarfulltrúar meinhlutans verða allir mættir. Það era líka meiri líkur á að menn hugsi sig tvisvar um áður en rokið er í fjölmiðla með fullyrðingar sem eiga ekki við nein rök að styðjast. Það er af mörgu að taka í bæjarstjóm og flest mál hljóta 7/0 afgreiðslu. Hlutverk meirihluta er vandasamt og bæjarfulltrúar hans sitja oft frammi fyrir erfiðum ákvarðanatökum, sem þeir veigra sér ekki við að taka. Hlutverk minnihluta er líka mikilvægt. Þeir eiga að sjá til þess að önnur sjónamið heyrist og veita meirihlutanum aðhald. Nú er tilvalið tækifæri að taka upp aðra og betri siði og snúa bökum saman í bæjarstjóm Vestmannaeyja. Guðrún Erlingsdóttir Forseti bœjarstjómar Vestmannaeyja Jón Bondó er Eyjamaður og Eyjamönnum að góðu kunnur sem sjómaður í mörg ár og áhugamaður um kjör þeirra. Nú hefur hann hætt á sjónum og tekið til við tréskurð. Afraksturinn fá Vestmannaeyingar að sjá í Gallerí Heimalist um helgina. „Ég mæti með tréútskurð og útsagaða hluti, klukkur og eitt og annað sem ég hef verið að útbúa að undanförnu. Ég byrjaði í þessu þegar ég fór á tréskurðarnámskeið fyrir sex árum og hef ég verið að dunda við þetta síðan,“ sagði Jón Bondó. á döfinni Október 2. Handkiwltleikur kvenna, I. deild: ÍBV ■ Víkingur kl. 14.00. 2. Opna Sparisjóismótii i skák kl. 14.00 í húsnæii Sparisjóisins. 2. Cengii til góis á vegum Rauia kross Islands. 1. Dávaldurinn David Knighl í Höllinni. 8. Handknattleikur karla, suiurriiill: ÍBV ■ Grótta/KR kl. 19.15. 9. VerslunarballiÍ í Höllinni. 12. Handknattleikur kvenna, I. deild: ÍBV ■ FH kl. 19.15. 16. Landsmót saumaklúbba. 23. Lundaball. 30. Handknattleikur kvenna, I. deild: ÍBV ■ KA/Þór kl. 14.00. Sem næsta matgæðing ætla ég að skora á Gunnar Andersen. Hann er matmaður ntikill og ætti ekki að vera í nokkrum vandræðunt með uppskrift af einhver ju góðu. t

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.