Fréttir - Eyjafréttir - 30.09.2004, Page 16
16
Fréttir / Fimmtudagur 30. september 2004
Bikarmeistaramir í aðalhlutverki
-á stórglæsilegu lokahófi ÍBV - Lára
Margrét og Birkir best - Gunnar Heiðar markahæstur
Sumarlokahóf ÍBV var haldið á
laugardaginn og óhætt að fullyrða að
sjaldan hafi þátttakan verið betri, því
um rúmlega fjögur hundruð manns
mættu, leikmenn, forráðamenn og
sjálfboðaliðar sem hafa lagt sig fram
fyrir félagið í sumar. ÍBV-
íþróttafélag heldur tvö slík lokahóf,
annað í sumarlok og hitt í vetrarlok
en samkomur sem þessar gera ekki
annað en að efla félagsanda
íþróttafélagsins.
Óskar Freyr Brynjarsson, for-
maður íþróttafélagsins setti
samkomuna. Fjórir voru sæmdir
silfurmerki IBV, Sigurlás Þorleifs-
son, Hlynur Stefánsson, Þórunn
Sveinsdóttir og Heimir Hallgríms-
son.
Skemmtiatriðin og ræðuhöldin voru
tjölmörg en hápunktur kvöldins var
að sjálfsögðu verðlaunaafhendingar
knattspymunnar og var byrjað á
karlaliðinu. Þar var Adolf Sigurjóns-
son valinn bestur í öðmm flokki og
Gunnar Heiðar Þorvaldsson var
markahæstur eftir sumarið. Andri
Ólafsson var valinn efnilegastur og
það kom svo fáum á óvart að ung-
lingurinn Birkir Kristinsson var
valinn besti leikmaður IBV. Hjá
stelpunum var María Guðjónsdóttir
valin best í öðmm flokki og Iris
Sæmundsdóllir fékk Marteins-
bikarinn, sem er veittur þeim
leikmanni sem leggur mest fram í
starfi meistaraflokksins. Sara
Sigurlásdóttir þótti sýna mestu
framfarir í sumar og Margrét Lára
Viðarsdóttir var markahæst. Margrét
Lára var svo að lokum valin besti
leikmaður ÍBV fyrir sumarið 2004.
I ár em tíu ár liðin frá því að Láms
Jakobsson lést en hann er hugmynda-
smiður Shellmótsins og vann alla tíð
mjög mikið fyrir íþróttahreyfinguna í
Vestmannaeyjum. Páll Sdieving,
framkvæmdastjóri IBV og veislu-
stjóri, minntist hans í nokkrum
orðum um leið og myndir af Lámsi
vom sýndar. Móðir Lámsar, Inga
Lámsdóttir, var svo kölluð upp og
henni færð minningargjöf um son
sinn frá félaginu.
Eins og áður sagði setti Óskar
Freyr Brynjarsson samkomuna og
rakti hann m.a. starf sumarsins.
Hann þakkaði félagsmönnum og
styrktaraðilum fyrir gott samstarf í
sumar.
Allir meistaraflokkar orðið
bikarmeistarar
„Knattspymuvertíðinni hjá okkar
liðum er nú nýlokið og var alveg
glimrandi árangur í sumar. Stelp-
umar byrjuðu í vor með því að vinna
deildarbikarinn og vissum við að
liðið yrði í toppslag í sumar sem varð
reyndin og endaði ÍBV í öðm sæti í
Islandsmótinu.
Toppurinn á sumrinu var í
bikarkeppninni en þar urðu okkar
stelpur bikarmeistarar í fyrsta skipti.
Var þetta merkur áfangi fyrir IBV en
með þessum sigri hafa öll meistara-
flokkslið IBV orðið bikarmeistarar.
Björgvin Eyjólfsson, sjúkraþjálfi
hefur verið í liðstjóm hjá karla- og
kvennaliðum IBV bæði í fótbolta og
handbolta sem unnið hafa bikarinn.
Björgvin verður hér eftir kallaður
Björgvin bikarmeistari og veit ég
ekki til þess að fleiri félagsmenn beri
þá nafnbót.
Strákamir okkar komu sannarlega
á óvart miðað við spár og vom að
spila virkilega vel. Niðurstaðan er 2.
sæti í deildinni og þátttökuréttur í
Evrópukeppninni á næsta ári. Við
óskum Val, sem varð Islandsmeistari
kvenna og FH í karla, til hamingju
með Islandsmeistaratitlanna í sumar.
Ég vil þakka knattspymudeildum
fyrir skemmtilegt sumar en það er
alveg ljóst að okkar lið spiluðu
skemmtilegan bolta, eiga markhæstu
leikmenn og skomðu flest mörkin,
fengu flest spjöldin og mesta fjörið
var hjá okkar liðum. Hvemig næsta
sumar verður veit ég ekki en ég hef
trú á að félagsmenn vilji gera betur
og eigum við að stefna á það af
krafti.“
ÍBV er sigurvegari
Óskar minnist einnig á að hand-
boltinn væri farinn af stað og titlamir
famir að rúlla inn en í lokin minntist
hann á árangur ÍBV á árinu.
„Ef við skoðum árangur okkar liða
það sem ef er árinu sést að IBV-
íþróttafélag er sigurvegari. Þá em
komnir í hús sigur í Meistarakeppni
HSÍ, þrír Deildarmeistaratitlar, tveir
Bikarmeistaratitlar og þrír
Islandsmeistaratitlar. Þessi frábæri
árangur, ásamt því að vera með tvö
glæsileg knattspymumót, hand-
knattleiksmót, jDrettándahátíð og
frábæra þjóðhátíð, varð til þess að
Nýsköpunarstofa sá að við gerum
hlutina eitthvað öðmvfsi og vill
stofna hér skóla til að kenna öðmm
landsmönnum hvemig á skipuleggja
viðburði eins og við gerum.
Félagsmenn, ég bið ykkur að vera
tilbúin ef óskað verður eftir
kennumm."
BJÖRGVIN verður hér eftir kallaður Björgvin bikarmeistari.
KNATTSPYRNUHJÓN, Heimir, þjálfari bikarmeistaranna og fyrirliðinn Iris höfðu ástæðu til að fagna.
VIÐAR Elíasson og Guðmunda Bjarnadóttir tóku við viðurkenningum fyrir dótturina, Margréti Láru. Sara þótti
sýna mestar framfarir, María var best í öðrum flokki og Iris fékk Marteinsbikarinn.
BIRKIR var sá besti, Björgvin tók við bikar fyrir Gunnar Heiðar bróður sinn, Andri er efnilegastur og Adolf er
bestur í öðrum flokki.