Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2005, Side 2

Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2005, Side 2
2 Fréttir / Fimmtudagur 26. maí 2005 Ársreikningar Fasteignar: Hagnaður 120 miUjónir -Arðgreiðsla uppásjö milljónir Ársreikningar Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf. vom lagðir fyrir bæjarráð á mánudag. Þar kom frarn að hagnaður samstæðunnar hafi numið 1.478 þúsund evmm. Það em tæpar 120 milljónir króna. Eignir samstæðunnar em metnar á 8,3 milljarða króna og eigið fé nam 1,6 milljörðum. Hlutafé félagsins í árslok nam 1,4 milljörðum og var hlutur Vestmannaeyjabæjar 11,64% af því, eða tæpar 167 milljónir. Islandsbanki og Reykjanesbær em stærstu hlut- hafamir með 35,11% hlut hvor, næst er Vestmannaeyjabær með 11,64%, síðan Garðabær með 7,625 og síðan Sandgerðisbær með 5,69% hlut. Fjórir aðrir hluthafar eiga í félaginu, allir undir tveimur prósentum. Stjómin ákvað að helmingur af hagnaði ársins 2004 yrði greiddur sem arðurtil hluthafa. Það em 739 þúsund Evmr og miðað við gengið á þriðjudag er það tæpar 60 milljónir króna. Miðað við eignarhlut bæjarins á því ætti greiðslan hingað að vera um sjö milljónir króna. Greinargerð skoðunarmanna vegna ársreiknings Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2004 Tapaði 600 m á tveimur árum Vilja að varlega verði farið í að auka skuldir á ný með nýjum lántökum Greinargerð skoðunarmanna vegna ársreiknings Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2004 var lögð fram á fúndi bæjarráðs á mánudag. Skoðunar- mennimir, Hörður Óskarsson og Jón Hauksson munu mæta á næsta fúnd ráðsins sem verður 30. maí til að fara yfir málin. Heildartekjur bæjarsjóðs jukust um 2,5% á milli áranna 2003 og 2004. Námu 1.194 milljónum króna á síðasta ári en vom 1.165 milljónir árið á undan. Heildartekjur samstæðunnar námu 2.125 milljónum króna og er það 5% hækkun ffá árinu 2003. Rekstrargjöld án afskriffa og fjár- magnsliða en að lífeyrisskuldbindingu meðtalinni í A-hluta námu 100,49% í hlutfalli af rekstrartekjum og er þetta þriðja árið í röð sem reksturinn fer yfir 100%. Það hefúr þó lagast því árið 2003 var hlutfallið 102,7% og árið 2002 105,17%. í B-hluta em rekstrargjöldin 84,55% af rekstrartekjum en var 81% árið 2003. Telja skoðunarmennimir þetta hlutfall óásættanlegt. Rekstramiður- staða samstæðu Vestmannaeyjabæjar er tap að fjárhæð 310,8 milljónir króna en tap ársins 2003 nam 261,1 milljón. Á síðustu tveimur ámm hefúr bæjar- sjóður því tapað rúmlega hálfttm milljarði króna. Vilja aukna hlutdeild í skatttekjum Benda skoðunarmennimir á að sveitarfélög sem standa í svipuðum spomm og Vestmannaeyjabær þurfi að þrýsta á ríkisvaldið um aukna hlutdeild í skatttekjum því neikvæð niðurstaða í rekstri getur ekki gengið til lengdar. Benda þeir á sívaxandi hlutdeild launa og launatengdra gjalda sem hlutfall af rekstrartekjum í rekstri V estmannaeyj abæj ar. í A-hluta var hlutfallið 65,14% á síðasta ári á móti 63,2% árið 2003. í B-hluta var hlutfallið 41,6% en 36,92% árið 2003. Búast má við enn frekari hækkun á þessu ári vegna þess að nýtt starfsmat tók gildi í febrúar sl. sem leiddi til leiðréttingar launa aftur til 1. desember 2002. Lífeyrisskuldbindingar námu 1.413 milljónum króna í lok síðasta árs og höfðu hækkað um 145,6 milljónir. Augljóst sé að skuldbindingar Vest- mannaeyjabæjar vegna Lífeyris- sjóðsins verða bæjarsjóði erfíðar í framtíðinni enda er svo komið að hrein eign sjóðsins til greiðslu lífeyris er orðin neikvæð. Heildarskuldir og skuldbindingar samstæðu Vestmannaeyjabæjar lækk- uðu á milli ára og námu nú 4.242 milljónum króna á móti 4.635 millj- ónum í árslok 2003. Þar af voru lífeyrisskuldbindingar 1.546 milljónir króna. Skuldir á hvem íbúa án lífeyrisskuldbindinga námu 633 þúsund krónum en voru 742 þúsund krónur í árslok 2003. Skuldimar hækka aftur á móti á hvem íbúa séu lífeyrisskuldbindingar teknar með en þá nema þær 1.066 þúsund króna. Ibúum í Eyjum fækkaði um 122 ffá fyrra ári. Enn er félagslega íbúða- kerfið bænum þungt í skauti Læklcun skuldarstöðu má rekja til sölu fasteigna Vestmannaeyjabæjar en átta fasteignir voru seldar til Eignarhalds- félagsins Fasteignar hf. Andvirðið var notað til að greiða niður óhagstæðustu lán bæjarins. Skuldir í erlendri mynt lækkuðu um 832 milljónir króna á milli ára á meðan skuldir í innlendum krónum hafa hækkað um 278 milljónir króna. Telja skoðunarmennimir að varlega verði farið í að auka skuldir Vestmannaeyja- bæjar á ný með nýjum lántökum. Af einstökum liðum innan A-hluta bæjarsjóðs má nefna að Fráveita Vestmannaeyja skilaði 14,4 milljón króna hagnaði. Hafharsjóður tapaði 78,5 milljónum króna og nema skuldir sjóðsins að ffádregnum veltufjár- munum tæplega 508,8 milljónum. Félagslega íbúðakerfið hefúr verið baggi á bæjarsjóði lengi og jukust skuldir þess um 46,6 milljónir króna á síðasta ári. Nema heildarskuldimar því 1,1 milljarði króna. Langtímaskuldir lækkuðu um 206 milljónir vegna uppgreiðslu óhagstæðra lána en á móti eykst skuld við eigin fyrirtæki A um 265 milljónir. „Ljóst er að rekstrartekjur á félags- legum leiguíbúðum í eigu bæjarins munu ekki standa undir rekstri þeirra. Við ítrekum enn og aftur að tekið verði á þeim vandamálum sem hlaðist hafa upp undanfarin ár vegna þessa málaflokks. Þá ítrekum við fyrri ábendingar um að tekið verði á vanda félagslega íbúðakerfísins og enn og aftur þarf að knýja á ríkisvaldið um verulega niðurfellingu skulda i félagslega íbúðakerfmu, að öðrum kosti mun þessi vandi aukast ár ffá ári,“ segir í greinargerðinni. Hraunbúðir töpuðu 21,8 milljónum króna á síðasta ári eftir að hafa skilað hálffar milljón króna hagnaði árið 2003. Skuldimar nema 176milljónum króna. Sorpeyðingastöðin tapaði 14,7 milljónum og eykst tapið mikið á milli ára en árið 2003 var það aðeins 1,6 milljón. Skuldimar nema nú 18,1 milljón króna. 3,5 milljón króna tap var á rekstri Nýsköpunarstofú. Náttúmstofa skilaði affur á móti hagnaði upp á 4,9 milljónir króna. Tap varð á rekstri líkamsræktarsalar Iþróttamiðstöðv- arinnar. Tapið nam tæplega 1,3 milljónum en ári áður var hagnaður upp á tæplega 400 þúsund krónur. Hrein eign lífeyrissjóðs starfsmanna Vestmannaeyjabæjar var neikvæð upp á 16,4 milljónir króna. Útgerðarmenn - Skipstjómr Pantið tímanlega fyrir sjómannadagshelgina. Föstudag lokað vegna einkasamkvæmis. Glæsilegur matseðill í huggulega umhverfi. Fljót og góð þjónusto. Pöntunarsími 481 -3663 Náði ekki i • •• • kjon Lúðvík Bergvinsson alþingismaður og bæjarfúlltrúi tapaði með nokkmm mun í kosningu um varaformannssæti Samfylkingarinnar. Ágúst Ólafúr Ágústsson er nýr varaformaður flokksins en hann fékk 519 atkvæði af 826 at- kvæðum. Lúðvík fékk 297 atkvæði. Mikil umræða hefúr orðið í kjölfar kosningarinnar sem var raffæn og talaði Lúðvík um í samtali við Morgunblaðið að heilu bílfarmamir af krökkum hefðu streymt í hús til að kjósa. Að öðm leyti vildi hann ekki tjá sig um varaformannskjörið. Ekki náðist samband við Lúðvík áður en blaðið fór í prentun. Hvað á að gera við Rauðagerði? Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. sendi bæjarráði bréf sem tekið var fyrir á fúndi ráðsins á mánudag. Er þar fjallað um húsnæði Rauðagerðis og hugsanlega lausn á því máli. Skiptar skoðanir em innan meirihluta bæjar- stjómar um byggingu nýs leikskóla á meðan enn hefúr ekki fúndist lausn á hvað gera á við húsnæði Rauðagerðis sem var inni í pakkanum til Fasteignar hf. á sínum tíma. Ragnar Atli Guðmundsson skrifar bréfíð fyrir hönd Fasteignar og segir að tvö dæmi séu um það í félaginu að leigutaki hafi lokað starfsemi í leigðri eign og fært starfsemina annað. í þessum tilfellum vom eignir seldar en leigutaki var ábyrgur fyrir leigu- greiðslum ffam að söludegi. Hægt væri að hugsa sér að annað væri mögulegt. Til dæmis að félagið ynni í samstarfí við bæinn um þróun á Íóð Rauðagerðis. Segir Ragnar að Fasteign sé tilbúin til að vinna að því með Vestmannaeyjabæ að finna lausn þannig að bærinn losni undan leigu- samningi vegna eignarinnar ef bæjarfélagið telur sig ekki hafa verkefhi fyrir húsnæðið. „Það er mjög mikilvægt að eigendur og við- skiptaaðilar EFF séu sáttir við félagið og að félagið vinni sífellt að hagsmunum eigenda sinna og tryggi viðunandi arðsemi. Þannig hefúr félagið unnið og mun vinna. Engu að síður, eðli málsins samkvæmt, teljum við þó rétt að árétta að slík verkefni geta tekið tima.“ Bæjarráð fól bæjar- stjóra að eiga ffekari viðræður við forráðamenn Fasteignar hf. FRÉTTIR tJfgefandi: Eyjasýn phf. 480378-0549 - VpstmannaoyjuiiL Ritetjóri: Omar Garðarsson. Blaðíiraeim: Sigursveinn Þórðarson, Guðbjörg Sigurgeirsdóttir. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgdarmenn: Gmar Gankisson & Gisli Valtýsson. Prentviima: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjuin. Adsetur rifstjómar: Stnimlvegi 47. Símar. 4811300 & 481 3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpósfnr frettir@pyjafrettir.is. Veffang http/Avww.eyjafrettir.is EttÉTi'LK koma út alla fimmtudaga Blaðið er selt í áskrift og einnig í lansasölu á Kletti, Tvistiniun, Toppnuin, Vöruval, Herjólfi, Elughafnarversluninni, Krónunni, ísjakanum, Bónusrideó, verslun 11-11, Skýlinu í l’ridarhöfn og i Jolla i Hafnarfirði og afgreiðslu Ilejriilfs i lwlákshöfn. FRÉTiltí eru prentaðar i 2000 pintökum. FRÉTHR eru aðilar að Samtiikum bæjar- og héraösfréttablaða. Eftir|)rentmi, hljóðritun, notkun ljósmvnda og annad er óheimilt nema heimilda sé getid.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.