Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2005, Qupperneq 10

Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2005, Qupperneq 10
10 Fréttir / Fimmtudagur 26. maí 2005 t Páll og Steinunn: Tekið var á móti þeim eins og höfðingjum Hjónin Páll Einarsson og Steinunn Einarsdóttir lögðu upp í ferðalag á síðasta ári og heimsóttu Utah og slóðir Islendinganna sem lögðu land undir fót og settust þar að. I sumar verður haldið upp á að hundrað og fimmtíu ár eru frá því að landnámið hófst og þau hjónin ætla að leggja upp í ferðalag aftur og taka þátt í hátíðarhöldunum. Það er því forvitni- legt að vita hvemig það var að sjá með eigin augum landið sem haföi svo mikið aðdráttarafl að um fjögur hundruð íslendingar ákváðu að setjast þar að. „Fulltrúar mormóna David Ashby, J. Brent Haymond, ræðismaður íslend- inga i Utah, og Kevin Christensen komu hingað árið 2000 til að reisa styttuna á Torfmýri og höföu sam- band við bæinn því þeir þurftu að fá leyfi og ganga ffá ýmsum málum,“ segir Páll þegar hann er spurður út í kynni þeirra hjóna af mormónum. „Það lenti á mér að snúast fyrir þá og það voru ýmsar reddingar í kring- um þetta. Þeir vildu halda hátíð í tengslum við vígsluna og ég kynntist þessum mönnum ágætlega. Við buðum þeim hingað heim til okkar og þá kom nú reyndar í ljós að þeir drekka hvorki kaffi né te en við áttum nóg af gosi þannig að það bjargaðist allt saman. Við Steinunn duttum niður á ódýra ferð til Minneapolis í fyrra og ákváðum að heimsækja staðinn þar sem Islendingamir settust að.Við fórum þetta algjörlega á eigin vegum en Brent Haymond sá um skipulagninguna í Utah.“ Fengu frábærar móttökur Þegar Steinunn og Páll komu út var hins vegar búið að skipuleggja heljarmikla dagskrá og tekið á móti þeim sem höföingjum. „Þegar við komum til Salt Lake City þar sem 1 1 | J I \ 1 f - -> r — ' -~U A * 1 ■' " • I m PÁLL og Stcinunn með gcstunum úr vestri: -Þá hcimsóttum við Bliss Anderson í Spanish Fork sem er mikill ættfræðingur, það má segja að hún sé þeirra Torfi Haraldsson. Rcyndi hún að rekja ættir okkar saman við einhverja af þeim sem fluttu út en tókst ekki, en það tókst Torfa hins vegar þegar hann reyndi þetta um daginn. aðalstöðvar kirkjunnar em, fengum við ffábærar móttökur og okkur var boðið í málsverð með nokkmm ráða- mönnum kirkjunnar. Vom þar m.a. Rolfe Kerr, sem var yfmnaður kirkj- unnar á Norðurlöndum og haföi komið í vígsluna á minnisvarðanum árið 2000. Þetta var í móttökubygg- ingu kirkjunnar sem haföi verið glæsilegt hótel áður fyrr. Byggingin stóð við musteristorgið þar sem helstu mannviki kirkunnar em. Er þar helst að nefha Musterið sjálft en þangað fá aðeins innvígðir mormónar að koma inn, geysistórar ráðstefnu- hallir, sögusafn, byggðasafn og ættffæðisalh, en farið var með okkur á alla þessa staði," segir Páll og Steinunn bætir því við að mormónar leggi mikla áherslu á ættffæði. „Ef þú hefur verið góður mormóni og lifað samkvæmt kenningum kirkj- unnar þá hittirðu ættingja þína í himnaríki og þar af leiðandi skiptir ættffæðin svona miklu máli,“ segir Steinunn. Um kvöldið keyrðu þau suður í um klukkutíma og dvöldumst í Spring- ville sem er næsti baer við Spanish Fork þar sem flestir íslendingamir komu sér fyrir. „Daginn effir var okkur boðið í golf af borgarstjóra Springville, E. Fritz Boyer en það er algengt að sveitar- félögin eigi og reki golfvelli, oft með misjöfnum árangri. Þá heimsóttum við Bliss Anderson í Spanish Fork sem er mikill ættffæðingur, það má segja að hún sé þeirra Torfi Haraldsson. Reyndi hún að rekja ættir okkar saman við einhveija af þeim sem fluttu út en tókst ekki, en það tókst Torfa hins vegar þegar hann reyndi þetta um daginn." Flestir íslendinganna komu sér fyrir í Spanish Fork eftir að þeir komu til Utah. „Við reyndum að gera okkur í hugarlund hvemig Islendingum leið þegar þeir settust þama að. Ábyggi- lega fengu einhveijir heimþrá en fyrir ofan bæinn em gil og há fjöll í bak- grunni sem minna svolítið á ísland þó svo að landslagið sé í raun gjörólíkt. Við skoðuðum minnisvarðann sem var settur upp 1938 og fómm í gamla kirkjugarðinn og það var merkilegt að sjá grafskriftir með íslenskum nöfhum. Við skoðuðum líka hæð- imar fyrir ofan bæinn og þar mátti sjá leifar af jarðhýsum en fátækt fólk sem kom þama út haföi ekki alltaf tíma né efhi á því að byggja sér hús áður en veturinn gekk í garð og bjó í slíkum vistarverum. Okkur var sagt að dæmi heföu verið um að fólk byggi þama í allt að þijú ár,“ segir Páll. „Við borðuðum kvöldmat með meðlimum Islendingafélagsins nokkur kvöld og var gaman að spjalla við þau. Mörg þeirra vom líka með okkur þegar við þvældumst hingað og þangað um fylkið," segir Stein- unn. „Það er skemmtilegt að sjá og heyra hversu miklir Islendingar þau em en þetta virðist vera einkennandi fyrir íslendinga en ekki aðrar þjóðir,“ bætir Páll við. Páll og Steinunn skoðuðu líka safh í Salt Lake City með gömlum bygg- ingum frá tímum landnámsins. Þetta er þeirra Árbæjarsafn með um 50 gömlum húsum af öllum tegundum. Það hefúr verið sett upp á skemmti- legan máta og þar er fólk á gangi í búningum frá þessum tíma þannig umhverfið verður allt mjög raun- vemlegt. Er þetta á stað fyrir ofan borgina þar sem sagt er að Brigham Young, leiðtogi mormóna, hafi sagt árið 1854 orðin: „Þetta er staðurinn." Háskólabær og hljóm- leiktihöll Fjölkvæni hefur verið umdeildasti þátturinn I bókinni Gekk ég yfir sjó og land eftir Kristjón Róbertsson er fjallað um Islendinga sem tóku mormónatrú og fluttust vestur um haf. Fyrstu Vest- mannaeyingarnir lögðu af stað til Utah 1854 en flestir fóru fró Islandi ó órunum 1881 til 1890. Mun flestum íslendingunum hafa farnast vel úti, þó svo að ekki væru allir sóttir við hinn nýja sið þegar út var komið. Fjölkvæni hefúr verið umdeildasti þáttur mormónatrúarinnar en spá- maðurinn Joseph Smith fékk opin- bemm um að hún væri til blessunar. Stjómvöld í Bandaríkjunum stóðu í deilum við áhangendur kirkjunnar en samkvæmt landslögum var fjölkvæmi bannað. Runólfur Runólfsson frá Draumbæ stofnaði Lútherskan söfhuð í Spanish Fork 1890 en langflestir íslensku innflytjendur héldu fast við nýja siðinn. Þegar við landnámið lögðu mormónar mikið kapp á að koma upp skólum til að tryggja bömum sínum Við skoöuðum minnisvarðann sem var settur upp 1938. góða menntun og í Utah er að finna margar af bestu menntastofhunum Bandaríkjanna. íslendingamir munu hafa komið sér vel, bæði fyrir dugnað og útsjónarsemi en margir lögðu stund á handverk og íslensku kon- umar þóttu skara fram úr í hann- yrðum og við vefnað. Létu skírast í Eyjum Ekki er gott að segja til um hvers vegna fólk á íslandi tók sig upp og lagði á sig langt og strangt ferðalag til Utah. Eflaust hefúr boðskapur trú- boðanna höföað til fólks vegna þess að hann var fluttur á einfaldan hátt og einkenndist af bjartsýni og trú á mannlífið. Fyrirheitna landið Síon var í Utah og vafalaust hefúr vonin um betra líf höföað til fátæks fólks sem átti sér litla von hér heima. Þó er ekki hægt að segja annað en betri borgarar hafi líka lagt upp í ferðina miklu og þannig fylgt trúarsannfæringu sinni. Guðmundur Guðmundssonar og Þórarinn Hafliðason vom báðir í Danmörku við nám þegar þeir tóku mormónatrú. Hófú þeir að boða nýja trú á Islandi og Þórarinn skírði hjónin í Kastala, Benedikt Hannesson og Ragnhildi Stefánsdóttur í maí 1851. Vora þau fyrstu Vestmannaey- ingamir sem létu skírast til mor- mónatrúar. Kom það miklu róti á Eyjaskeggja og mætti mikilli and- stöðu sr. Jóns Austmanns og sýslu- mannsins. Johan P. Lorentzen var sendur frá Kaupmannahöfn og útnefndur yfirmaður hinnar nýju kirkju á íslandi. Vígði hann Guðmund til prests og skírði þijá menn 3. júní 1853 en það vora: Samúel Bjamason, bóndi í Kirkjubæ, Magnús Bjamason, tómthúsmaður í Helgahjalli og Loftur Jónsson bóndi í Þórlaugargerði. íslensku landnemarnir Fyrstu íslendingamir sem námu land í Norður- Ameríku vora hjónin Samúel Bjamason og Margrét Gísla-

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.