Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2005, Qupperneq 13

Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2005, Qupperneq 13
Fréttir / Fimmtudagur 26. maí 2005 13 Lögreglan: Ýmislegt kom upp á Þrír þjóínaðir vom tilkynntir lögreglu í sl. viku en um var að ræða þjófnað á farsíma, reiðhjóli og fánum. Farsím- inn mun hafa verið tekinn úr jakkavasa um sl. helgi á veitingastaðnum Lundanum. Annað í vasanum, t.d. peningar var látið eiga sig. Reiðhjólinu var stolið um miðjan apríl við Framhaldsskólann en það er af gerðinni Treck. Aðfaranótt föstu- dags var tilkynnt um að fjórum fánum hafi verið stolið við Ráðhúsið. Þeim var skilað á lögreglustöðina daginn effir og munu þeir sem stóðu að þessum þjófhaði hafa fengið samviskubit af gjörðum sínum og skiluðu því fánunum. Einn fékk að gista fangageymslu lögreglu um helgina en hann hafði verið til óþurftar á veitingastaðnum Comero sökum ölvunar og óspekta. Alls liggja fyrir sjö kærur vegna brota á umferðarlögum eftir sl. viku. Tveir voru staðnir að hraðakstri á Hamarsvegi og mældist annar á 83 km/klst. en hinn á 82 km/klst. Þá voru tveir sektaðir fyrir að hafa vanrækt að vátryggja ökutæki sín, einn fyrir að aka um á nagladekkjum og einn fyrir að aka án þess að hafa öryggisbelti spennt. Þá haföi lögreglan afskipti af þrem- ur ungum drengjum sem voru réttindalausir við akstur númers- lausrar bifreiðar á Nýjahrauni. Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í vikunni og átti annað sér stað á Hraunvegi þann 17. maí sl. en þama haföi verið ekið aftan á biffeið sem stöðvað haföi við gangbraut. í hinu tilvikinu var um að ræða lyftara sem ekið var utan í kyrrstæða bifreið í Fiskiðjusundinu. Ekki var um slys á fólki að ræða í þessum tveimur tilvikum en nokkuð tjón á ökutækjum. Séra Þorvaldur Víðisson: Pistill frá Landakirkju Með sumar í sál og sínní Það er með sumar í sál og sinni að skráningar í prestþjónustubókum Ofanleitissóknar em teknar saman. Það er orðið alllangt síðan slíkur pistill birtist, því er horft nokkuð aftur í tímann í þessari samantekt, eða til febiúar og mars á þessu ári. Eg vil óska þér lesandi góður gleðilegs sumars, megi kærleikur og gleði fylgja þér í lífi og leik. í Guðs fi'iði, Sr. Þorvaldur Víðisson Skráningar í prestsþjónustubók Ofan- leitissóknar í febrúar og mars 2005 em eftirfarandi: Skímir vom átta í febrúar og mars. Andri Snær, sonur hjónanna Vilborgar Friðriksdóttur og Sigmars Þrastar Óskarssonar, var skírður á heimili sínu 12. febrúar. Hann er fæddur á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 23. nóvember 2004. Benóný Friðrik, sonur hjónanna Anniku Geirsdóttur og Jóns Gísla Benónýssonar, var skírður heima hjá afa og ömmu 17. febrúar. Hann er fæddur á Heilbrigðisstofnun Vest- mannaeyja 2. febrúar 2005. Nathalie Lilja, dóttir Lilju Matthías- dóttur og Lars Mikaels Andersen, var skírð í Landakirkju 20. febrúar. Hún er fædd í Öskersund í Svíþjóð 30. ágúst 2004. Ólaftir Kristján, sonur hjónanna Berglindar Jóhannsdóttur og Kristleifs Guðmundssonar, var skírður heima hjá afa og ömmu 12. mars. Hann er fæddur á Heilbrigðisstofnun Vest- mannaeyja 3. janúar 2005. Hinrik Hugi, sonur hjónanna Grétu Hólmfríðar Grétarsdóttur og Heiðars Hinrikssonar, var skírður í Landa- kirkju 13. mars. Hann er fæddur á Landsspítalanum í Reykjavík 28. september 2004. Benedikt, sonur hjónanna Iðu Brá Benediktsdóttur og Einars Þórs Guðjónssonar, var skírður á skírdag 24. mars. Hann er fæddur í Hollandi 22. desember 2004. Dagur og Sunna, tvíburar hjónanna Bryndísar Einarsdóttur og Einars Bjöms Ámasonar, vom skírð á heimili sínu 31. mars. Þau fæddust 27. nóv- ember 2004. Hjónavígsla var ein í febrúar og mars. Sigríður Sveinbjörg Þórðardóttir og Sigurður Þór Sveinsson gengur í heilagt hjónaband 26. febrúar í Akóges salnum við Hilmisgötu. Þau era búsett að Brekastíg 14 í Vest- mannaeyjum. Andlát í febrúar og mars vom sex. Guðmundur Armann Böðvarsson, fv. vélstjóri og formaður, lést á Heil- brigðisstofnun Vestmannaeyja 5. febrúar síðastliðinn. Útförin fór fram frá Landakirkju 12. febrúar. Ármann var fæddur í Vestmannaeyjum 19. júlí 1926. Guðni Friðþjófur Pálsson, fv. mat- sveinn og sjómaður, lést á Heil- brigðisstofhun Vestmannaeyja 18. febrúar síðastliðinn. Útförin fór fram frá Landakirkju 26. febrúar. Guðni var fæddur í Vestmannaeyjum 30. september 1929. Ánna Aðalbjörg Sigfusdóttir, fv. hús- móðir og fiskverkakona, lést á Líknardeild Landsspítalans Kópavogi 21. febrúar síðastliðinn. Útförin fór fram ffá Landakirkju 26. febrúar. Anna var fædd á Raufarhöfn 27. október 1945. Hallgrímur Axel Guðmundsson, húsasmíðameistari og kennari, lést á Landsspítalanum 4. mars síðastliðinn. Útförin fór fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði 11. mars. Hallgrímur var fæddur að Grafargili í Önundarfirði 23. apríl 1943. Guðrún Elsa Guðlaugsdóttir, hús- móðir og fv. verkakona, lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 21. mars síðastliðinn. Útförin fór fram ffá Landakirkju 2. apríl. Guðrún Elsa var fædd í Vestmannaeyjum 27. nóvem- ber 1946. Guðrún Kristín Ingvarsdóttir, hús- móðir, lést á Heilbrigðisstofhun Vest- mannaeyja 26. mars síðastliðinn. Útförin fór fram ffá Landakirkju 9. apríl. Guðrún Kristín var fædd í Reykjavík 5. mars 1907. S Hera Osk Einarsdóttir framkvæmdastjóri skrifar: Fjölskylduhelgin komin til að vera Fjölskyldu- helgin haföi það markmið að ná fjölskyldum saman til þátt- töku, hreyfingar og samveru, til að styrkja dag- leg tengsl fjöl- skyldunnar, traust, velferð og vellíðan innan hennar. Möguleikinn á því að vera virkur, virtur og viðurkenndur þátttakandi í félagslegum athöfhum byggir upp já- kvæða sjálfsmynd og eykur hæfi- leikann til félagslegra samskipta hjá bömum og fullorðnum. Foreldrar og Við viljum þakka þeim f jölmörgu félagasamtökum og einstaklingum, sem lögðu sitt af mörkum til að gera dagskrá fjölskyldudagsins sem veglegasta. fjölskyldan gegna alla lífsleiðina mikilvægu hlutverki í lífi einstakl- ingsins, þar er uppspretta flestra þeirra lífsgilda sem við tökum með okkur út í lífið sem einstaklingar. Rannsóknir sýna að líðan og velferð bama byggir ekki bara á fjölskyldu- gerðinni heldur einnig; aðbúnaði stjómvalda í að skapa skilyrði fyrir heilbrigði og vellíðan með því að bæta ytri skilyrði fjölskyldna, samvemtima foreldra og bama, bæði eðli hans og lengd, skiptir miklu um ánægju og aðlögun í ijölskyldu og samfélagi viðhorf foreldra til sjálfs síns og aðstæðna sinna auk stuðnings og tengsl bama við stórfjölskylduna og sitt næsta nágrenni. Við viljum þakka þeim fjölmörgu félagasamtökum og einstaklingum, sem lögðu sitt af mörkum til að gera dagskrá fjölskyldudagsins sem veg- legasta. Einnig viljum við þakka bæjarbúum fyrir frábæra þátttöku í viðburðum helgarinnar. Ekki er hægt að segja annað en að Vestmanna- eyingar hafi með þátttöku sinni í fjölskylduhelginni undirstrikað í verki mikilvægi fjölskyldunnar og gildi hennar í daglegu lífi. Nú er bara að muna að skila stimpluðu vega- bréfunum, í þar tilgerða kassa, á miðhæð Ráðhússins. Skilaffestur er til 27. maí nk. F.h. starfsfólksfélags - ogfiöl- skyldusviðs ogfrœðslu - og menningarsviðs Hera Ósk Einarsdóttir, framkvœmdastjóri Hver eru með henni Öllu á Borgarhól? Mynd þessi er komin frá Ragnari Eyjólfssyni frá Laugardal. Hún er úr búi Guðmundar Jónssonar og komst í hendur Ragnars gegnum Grím Marinó Steindórsson lista- mann, bróðurson Guðmundar. Myndin er tekin í slipp Gunnars Marels, það sér í austurhlíð Heimaklctts, og er sennilega frá því um eða upp úr 1930. Stúlkan til vinstri á myndinni er Aðalbjörg Jóh. Bergmundsdóttir frá Sjávargötu, síðar kennd við Borgarhól. Hin stúlkan er óþekkt, svo og maðurinn sem stendur milli þeirra. Ragnar vildi líka fá vitneskju um hvaða bátur væri til viðgerðar hjá Gunnari Marcl, ef einhver vissi. Spurt er: Borðar þú fýlsegg? Hafdís Snorradóttir Já. Mér finnst þau bara ansi fln. Guömundur I. Jóhanncsson Já, ég borða hvítuna. Þau eru bara fín, er bara nýbyrjaður að borða þau. Stefán Jónsson Nei. Eg hef smakkað en mér fannst það vont. Hörður Pálsson Já, mér finnst þau mjög góð sem og svartfuglsvegg.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.