Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2005, Síða 15
Fréttir / Fimmtudagur 26. mai 2005
15
Sigurlás Þorieifsson þjálfari:
Stelpumar eru orðnar betri knatt-
spymumenn
Unglingarnir söfnuðust saman við
Hrafnakletta á laugardagskvöldið:
Samkoman fór
nokkuð vel fram
Nafn: Sigurlás Þorleifsson.
Gælunafn: Lási.
Fjölskylduhagir: Giftur Karenu
Tryggvadóttur og á fimm böm sem
heita Kolbrún, Jóna Heiða, Sara,
Kristín Ema og Þorleifur.
Hæð, þyngd, aldur: 1,80 m, 80 kg ,
48 ára.
Ár sem þjálfari: Hef þjálfað frá árinu
1989 og síðan einhver ár fyrir 1984.
Menntun og störf:íþróttakcnnari. Er
aðstoðarskólastjóri í Hamarsskóla M
1999.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór: Eitthvað í líkingu við það
sem ég er í dag.
Ferill sem leikmaður: Byrjaði að
spila með IBV og gerði það til ársins
1991 með smá hléum. 1979 spilaði ég
með Víkingi, 1984 var ég spilandi
þjálfari á Selfossi og síðan spilaði ég
með Vasalund M Svíþjóð árin 1984-
1988.
Af hverju að þjálfa ÍBV: Stórt félag
með stór markmið.
Uppáhaldslið í enska og af hverju:
West Ham. Þeir hafa alltaf lagt upp úr
því að spila skemmtilega knattspymu.
Fyrirmynd annarra knattspyrnu-
manna: Alan Shearar.
Stærsta stundin í boltanum:
Bikarmeistari með ÍBV 1981 ogþegar
ÍB V fór upp í 1. deild á mínu fyrsta ári
sem þjálfari ÍBV.
Mestu vonbrigðin: Þegar ég hætti að
þjálfa ÍBV 1992.
Hvað eldarðu iyrir fjölskvlduna: Ég
grilla stundum en annars er ég frekar
lélegur í eldhúsinu.
Ertu hjátrúarfullur fvrir leiki: Nei.
Ef þú mættir bæta við einum
leikmanni í leikmannahóp ÍBV af
þeim sem spila í Landsbanka-
deildinni, hver yrði það: Það koma
margir til greina.
Undirbúningur liðsins, góður eða
slæmur: Gæti hafa verið betri.
Markmið sumarsins: Vera í efri
hluta deildarinnar.
Eigum við möguleika á toppbar-
áttunni í ár: Kemur í ljós í næstu
leikjum.
Af hverju ákvaðstu að taka að þér
þjálfun í meistaraflokki aftur: Ekki
var hægt að horfa uppá liðið án
þjálfara endalaust. Einnig sá ég í
þessu spennandi tækifæri en ég hef
enn gaman að þjálfa og þessu fylgir
líka ákveðin spenna sem getur gefið
ýmislegt. Hafa orðið miklar
breytingar í kvennaboltanum síðan
1998: Töluverðar breytingar hafa
orðið. Umgjörðin í kringum þetta er
meiri. Leikmennimir eru betri
knattspymumenn og fleiri góðir
leikmenn. Það sem ekkert hefur
breyst er það em sömu lið sem em að
beijast á toppnum nema kannski að
ÍBV em að blanda sér í alvömna.
Af hverju á fólk að koma á Há-
steinsvöllinn í ár: í ÍBV liðinu em
margir skemmtilegir leikmenn sem
gaman er að horfa á og liðið hefur
einnig spilað góða knattspymu í mörg
ár.
Leikmenn á teppinu:___________________
Lási þjálfari er algjör kroppur
Nafn: Elín Anna Steinarsdóttir.
Gælunafh: Lína.
Hæð, þyngd, aldur: 1.70 cm/ hmm-
mmm! 11/22 ára:).
Númer: Það er lOan.
Menntun: Stúdent frá Menntaskólanum
í Kópavogi og á leið í Háskóla íslands....
Leikir í efstu deild: 72 leikir.
Mörk í efstu deild: 41 mark.
Hverjir eru bestir í enska boltanum: Það er án efa
Liverpool.
Fyrirmyndin í fótboltanum: Olga Færseth er og hefúr
alltaf verið mín helsta fyrirmynd innan vallar sem utan!
Það heftir sýnt sig undanfarið hversu mikilvægur leikmaður
Olga er fyrir ÍBV.
Stærsta stundin í boltanum: Bikarmeistarar í fyrra (2004)
þegar við unnum Val 2-0. Það var æðisleg tilfinning.
Mestu vonbrigði: Leikurinn fyrir norðan í fyrra, á móti
Þór/KA/ KS þar sem við gerðum jaMefli 1-1 og það má
eiginlega segja að þar höfúm við tapað deildinni!!!
Hver er grófust á æfingum: Það er Thelma, hún stendur
alltaf fyrir sínu svo kemur Guðrún Soffia sterklega til
greina.
Hvern er auðveldast að klobba á æfingum: Það er
auðveldast að klobba Elenu Einisdóttur...
Hver er mesti höslerinn í liðinu: Hólmfríður
Magnúsdóttir sem var að koma frá KR... hún er mjög
dugleg!!
Þrjú orð til að lýsa þjálfaranum: Lási er skipulagður,
dúlla og algjör kroppur:)
í hvaða sæti endar ÍBV í haust: Á maður ekki alltaf að
vona það besta og ég segi 1. sæti. Áfram ÍBV og allir að
koma á völlinn í sumar... Við eigum besta heimavöllinn og
því eru þeir leikir sem við spilum hér á Hásteinsvelli
gríðarlega mikilvægir fyrir okkur.
-en lögregla og séra Víðir söknuðu
foreldranna
Það var töluverður erill hjá lögreglu
um helgina enda söfnuðust á annað
hundrað ungmenni saman við
Hrafnakletta, eins og undanfarin ár
og búist hafði verið við. Lögreglan
sendir foreldrum unglinga og
starfsfólki í félagsmálageiranum
tóninn vegna unglingasamkomunnar
á laugardagskvöldið. Segir hún að þar
hafi verið krakkar allt niður í 13 ára.
Lögreglan var með viðbúnað á
staðnum og séra Þorvaldur Víðisson
var þar einnig og fylgdist með því
sem Mm fór.
Þrátt fyrir allt segir lögreglan að
samkoman hafi farið nokkuð vel
fram. „Enda hafði lögreglan nokkum
viðbúnað á svæðinu og var m.a.
kannað með aldur þeirra sem þama
vom og áfengi tekið af þeim sem
höfðu ekki aldur til að neyta áfengis.
Kom ffarn hjá einhverjum af þeim
sem áfengi var tekið frá að foreldrar
hafi keypt áfengið fyrir þau. Öllum
yngri en 16 ára var vísað frá, enda
komið ffarn yfir útivistatíma þeirra
þegar samkoman hófst. Er talið að
um 100 ungmennum hafi verið vísað
ffá og sögðu lögreglumenn sem vom
á svæðinu að þetta hafi verið
ungmenni allt niður í 13 ára aldur,“
sagði lögreglan.
Það sem sló þá lögreglumenn sem
þama vom var að í nokkmm tilvikum
sögðu þessi ungmenni, sem vísað var
heim, og þá aðallega stúlkur, að
foreldrar þeirra hafi leyft þeim að vera
þama. „Éf þetta reynist rétt, að for-
eldrar og foMðamenn em að heimila
þeim ungmönnum sem þau bera
ábyrgð á að vera á almannafæri eftir
að útivistatíma lýkur og ekki sé talað
um að kaupa handa þeim áfengi, er
ekki undarlegt að umræðan sem búin
er að vera hér í bænum sé eins og hún
er. Það er líka annað sem kom þeim
lögreglumönnum sem þama vom á
óvart að ekki skyldi neitt foreldri láta
sjá sig þama, né aðilar ffá félags-
málayfirvöldum. Þorvaldur Víðisson,
prestur kom á svæðið til að kanna
með ástandið og virtist hann vera sá
eini sem hafði áhyggjur af velferð
þeirra ungmenna sem þama vom.“
Annað sem lögregla benti á er að
foreldrar og forráðamenn verða að
hafa í huga varðandi svona taumlaust
eftirlitsleysi með bömum sínum er að
neysla áfengis eykur líkumar á annarri
vímuefhaneyslu. „Þá em þessir sömu
„ábyrgu" aðilar tilbúnir til að
gagnrýna lögreglu fyrir að sinna ekki
fikniefnalöggæslu. Hins vegar er rétt
að hafa það í huga að framboð
fikniefna fer eftir fjölda neytenda
hvetju sinni.“
Umburðarlyndi gagnvart
áfengisneyslu unglinga
Séra Þorvaldur sagði að Eyjamenn
væm gleðinnar fólk og ekki nýtt að
þeir komi saman til að skemmta sér
og taka lagið. Hann sagði líka að
samkoman hefði í flestum tilvikum
farið vel ffam en hann saknaði for-
eldranna. „Þetta var kannski ekki
beint vettvangur fyrir skóla- eða
félagsmálayfirvöld nema þá helst fólk
úr félagsmiðstöðinni. Það var líka
mikið lagt á tvo lögreglumenn að
fylgjast með því að reglum um útivist
og áfengisneyslu væri ffamfylgt um
leið og þeir vom á sinni hefðbundnu
vakt og sjúkravakt.“
Þorvaldur sagði að þama hefðu verið
krakkar úr Framhaldsskólanum og
tíundu bekkingar og svo yngri
krakkar. „Það er ekkert að því að fólk
komi saman til að skemmta sér en það
verður að fara eftir lögum um útivist
og áfengi. Það er líka ákveðið um-
burðarlyndi gagnvart unglingadrykkju
hér í Eyjum sem er ekki gott mál.
Þátttaka og eftirlit foreldra er jákvætt
því eftirlitslausar skemmtanir ung-
menna bjóða hættunni heim.“
Bergur og Hlynur skrifa um fótboltann:
Stöndum vörð um
ÍBV í baráttunni
sem framundan er
Kœru Eyjamenn
Eins og öllum er kunnugt hefúr
kantspymuvertíðin ekki farið af
stað sem skildi fyrir þjálfara okkar
og leikmenn, þar sem við höfúm
upplifað tvö töp hjá karlaliðinu og
einn sigur og eitt tap hjá
kvennaliðinu. Af tólf mögulegum
stigum hafa því aðeins þijú skilað
sér til Eyja. Áð auki hefúr okkar
maður Páll Hjarðar fengið
óskemmtilega umfjöllun í
Dagblaðinu sem að okkar mati er
blaðinu til skammar. Þeir sem
þekkja leikmanninn Pál Hjarðar
vita að þama er á ferðinni góður og
heilsteyptur leikmaður sem ávallt
leggur sitt að mörkum fyrir lið sitt
og stuðningsmenn þess.
Ohöpp sem fótbrot, slitin liðbönd
og tognanir gerast því miður í
knattspymu, hér er ekki um
ásetning leikmanna að ræða heldur
slys og ber að fjalla um þau sem
slík.
Sem stuðningsmenn og fyirum
leikmenn meistaraflokks IBV
viljum við hér og nú hvetja alla
Eyjamenn til að standa vörð um lið
sitt þ.e. knattspymuráð, þjálfara og
leikmenn í þeirri baráttu sem
framundan er. í næstu leikjum
fjölmennum við á völlinn og
hvetjum okkar menn. Samstaða,
barátta og leikgleði mun skila okkur
góðu sumri og mörgum stigum,
fyrir það erum við Eyjaskeggja
þekktir.
Bergur Elías Agústsson
Hlynur Stefánsson