Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2005, Qupperneq 16

Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2005, Qupperneq 16
16 Fréttír / Fimmtudagur 26. maí 2005 »v' '<IC litocf ■llinclt t? t rtcc.jt. .«|| tonutTO?,^ 25"*'’"'C I tlKW “f 'fto» Vt'.Wír-—.;?'* V ttjf fii f«r liotutt ••i it mT) *»ht* ií * ' FJÖLSKYLDAN samankomin á merkum tímamótum. Marý, Sigursteinn Marinósson eldri, Ingibjörg, Sigfríður Björnsdóttir, Sigursteinn yngri og Marinó. Miðstöðin opnaði á föstudaginn: Viðtökurnar alveg ljómandi -segir Marinó Sigursteinsson sem sennilega er að opna glæsilegustu verslun í einkaeigu á landsbyggðinni Þeir voru margir sem heimsóttu Marinó Sigursteinsson og Marý Kol- beinsdóttur þegar þau opnuðu verslun sína Miðstöðina í nýju og stór- glæsilegu húsnæði á föstudaginn. Formleg opnun var klukkan fimm mínútur yfir fimm, strax var fjöldi fólks mættur til að sjá þessa verslun sem er trúlega glæsilegasta bygginga- vöruverslun í einkaeigu á lands- byggðinni. Að baki var mikil vinna fjölda fólks sem lagt haföi nótt við dag til að allt stæðist og afraksturinn er frábær verslun og bætt aðstaða bæði fyrir starfsfólk og viðskiptavini. „Viðtökumar hafa verið alveg ljómandi, það er ekki hægt að segja annað,“ sagði Marinó þegar rætt var við hann á þriðjudaginn. „Viðbrigðin eru líka mikil fyrir starfsfólkið sem á sinn þátt í að okkur tókst þetta. Það er greinilegt að fólk kann að meta framtakið því okkur hafa borist um 70 kveðjur, blóm og gjafir en þegar við opnuðum á gamla staðnum voru þær 40. Mér finnst að við höfúm hækkað standardinn og það er að skila sér í meiri viðskiptum. Og þau em meiri en við nokkum tímann áttum von á.“ Um kvöldið var móttaka í Miðstöð- inni þar sem fjöldi manna mætti til að fagna áfanganum með fjölskyldunni. Ámi Johnsen ámaði þeim heilla og fékk fólk til að taka undir með sér í nokkrum lögum. Sigurgeir Jónsson í Gvendarhúsi flutti erindi um sögu staðarins þar sem Miðstöðin stendur en þar stóðu nokkrar af krónum sem settu svip sinn á höfhina í Vest- mannaeyjum ffam á miðja síðustu öld. Hafði hann tekið þetta saman að frumkvæði Marinós. Um verslunina er það að segja að þar fær viðskiptavinurinn tækifæri til að sjá hvemig hin ýmsu tæki og tól koma til með að líta út þegar búið er að setja þau upp. MARÍANNA var mætt um Ieið og Miðstööin opnaði og kom færandi hendi með blómvönd sem hún afhenti Marinó. M— ÞEIR voru margir sem litu við í versluninni á föstudaginn.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.