Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2005, Page 19

Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2005, Page 19
Fréttir / Fimmtudagur 26. maí 2005 19 | Landsbankadeild karla: ÍBV 2 - Keflavík 3 Ærið verkefni framundan -sagði Guðlaugur Baldursson þjálfari eftir slaka framgöngu sinna manna á sunnudaginn Flestir em sammála um að Eyjamenn hafi verið stálheppnir að vera aðeins einu marki undir í hálfleik þegar ÍBV tók á móti Keflvikingum á Hásteins- velli á sunnudaginn. Gestimir hrein- lega óðu í fæmm í fyrri hálfleik, áttu m.a. tvö stangarskot og eitt skot i slá og í raun aðeins þeirra eigin klaufa- skapur og glæsileg markvarsla Birkis Kristinssonar sem kom í veg fyrir fleiri mörk. Reyndar fengu Eyjamenn líka sín færi, framheijamir Steingrímur og Andrew Sam fóru afar illa að ráði sínu þegar þeir sluppu inn fyrir vöm gest- anna. En staðan í hálfleik var 1:2 fyrir Keflavík og flestir á því að staðan heföi átt að vera eitthvað í líkingu við 2:6. En Keflvíkingar héldu fengnum hlut, liðin skomðu sitthvort markið i síðari hálfleik og Keflvíkingar fóm ifá Eyjum með þrjú stig í farteskinu eftir 2:3 sigur. Lið IBV var algjörlega á hælunum í leiknum. Vamarleikur liðsins, sem i upphafí móts var talinn sterkasti hluti þess, var í algjörum molum, sérstak- lega í fyrri hálfleik þar sem sóknar- og miðjumenn Keflvíkinga hreinlega löbbuðu í gegnum vömina. Reyndar gerði það vamarmönnum erfitt fyrir hversu illa leikmönnum IBV gekk að senda einfaldar sendingar sín á milli og fyrir vikið fengu Keflvíkingar tækifæri til að sækja hratt á flata vöm ÍBV. Keflvíkingar em hins vegar vel að sigrinum komnir. Þeir vom mun ákveðnari í öllum sínum aðgerðum og Unglingameistaramót VM: Alexander varð meistari annað órið í röð Unglingameistaramót Vestmanna- eyja var haldið á sunnu- daginn í Ásgarði. Tefldar vom 9 umferðir með 10 mínútna umhugs- unartíma. Keppendur vom 16 talsins, en mótið var opið öllum á gmnn- skólaaldri. Sigurvegari annað árið í röð var Alexander Gautason og er hann Unglingameistari Vestmannaeyja 2005. Alexander og Nökkvi tóku snemma forystuna og unnu fyrstu 3 skákimar hvor, en gerðu síðan jafiitefli innbyrðis í 4. umferð. í næstu umferð tók síðan Alexander forystu sem hann lét ekki af hendi það sem eftir var mótsins. í þriðja sæti varð Ágúst Sölvi eftir harða baráttu við Hallgrím J og Sindra Frey. Úrslit: 1. Alexander Gautason 8,5 vinn- inga af 9 mögulegum. 2. Nökkvi Sverrisson 8 3. Ágúst Sölvi Hreggviðsson 6,5 4. Hallgrímur Júlíusson 6 5. Sindri Freyr Guðjónsson 5 6. -8. Kristófer Gautason 4,5 6.-8. Daði Steinn Jónsson 4,5 6.-8.Valur Marvin Pálsson 4,5 STEINGRÍMUR og Andrew Sam hefðu mátt nýta færin. á köflum mjög beittir ffam á við. T.d. átti Guðmundur Steinarsson, sóknar- maður þeirra tvö stangarskot og eitt í slá. Það var hins vegar fátt um fína drætti hjá ÍBV. Atli Jóhannsson var líklega sá eini sem eitthvað gat hjá ÍB V og Birkir Kristinsson greip stund- um vel inn í en aðrir verða að endurskoða sinn leik. Guðlaugur Baldursson, þjálfari ÍBV var ekki ánægður með niðurstöðuna. „Við ætluðum okkur svo sannarlega að taka þijú stig hér í dag en það tókst því miður ekki. Vamarleikurinn var ekki nógu góður, við fáum á okkur þijú mörk og það er eitthvað sem við verðum að laga. Við gefúm þeim tvö af þessum þremur mörkum með klaufaskap og það gengur ekki. Okkur hélst afar illa á boltanum, sendingar vom mjög slakar og við glötum boltanum alltof fljótt. í kjölfarið er erfitt að halda uppi einhveijum sóknarleik en við fengum þó nokloir færi í fyrri hálfleik.” Er liðið kannski ekki tilbúið þar sem leikmenn vom að koma seint til liðsins? „Eg held að það sé ekki skýringin. Inni á vellinum í dag vom leikmenn sem hafa leikið saman jafnvel ámm saman en við náðum einfaldlega ekki að spila eins og við lögðum upp með og Ijóst að það er ærið verkefni ffamundan." ÍBV: Birkir Kristinsson, Bjami Hólm Aðal- steinsson, Einar Hlöðver Sigurðsson, Páll Hjarðar, Bjami Geir Viðarsson, Atli Jóhannsson, Andri Ólafsson, Ian Jeffs, Magnús Már Lúðvíksson, Steingrímur Jóhannesson, Andrew Sam. Varamenn: Lewis Dodds (kom inn á 30 mín. fyrir Bjama Hólm), Pétur Runólfsson (kom inn á 80 mín. fyrir Einar Hlöðver), Hrafh Davíðsson, Matthew Platt (kom inn á 54 mín. fyrir Magnús Má), Bjami Rúnar Einarsson. Mörk ÍBV: Steingrimur Jóhannes- son(25) og Andri Ólafsson(93). | Landsbankadeild kvenna: FH 1 - ÍBV 0 Þar fóru þrjú stig fyrir lítið ÍBV sótti FH heim í Landsbankadeild kvenna á laugardaginn en FH var fyrir tímabilið spáð áttunda og neðsta sæti deildarinnar í spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna fyrir tímabilið. En Eyjamenn ættu að vita manna best að ekkert er að treysta á spár þegar út í alvöruna er komið. Eyjastúlkur lentu í vandræðum með baráttuglatt FH-lið sem haföi að lokum betur 1:0. Það var í raun grátlegt að IBV náði ekki að fylgja eftir góðum sigri á ÍA í fyrstu umferð Islandsmótsins. Úrslit í Islandsmótinu höföu verið hagstæð, Valur tapaði þremur stigum og ólík- legt að liðið tapi mikið fleiri stigum í sumar. ÍBV heföi því verið í mjög góðri stöðu í toppbaráttunni með sigri en sú varð ekki raunin. Leikur IBV olli miklum vonbrigðum því þrátt fyrir að vera mun meira með boltann, vantaði færin. Það var eins og síðasta sending inn í vítateig gest- anna heföi aldrei heppnast og fyrir vikið fékk ÍBV í mesta lagi nokkur hálffæri. Sóknarþungi IBV var talsverður og það nýttu heimastúlkur sér með ágætlega útfærðum skyndisóknum en ein slík gaf mark, sem dugði til sigurs. í liði FH var fyrrum leikmaður IBV, Lind Hrafnsdóttir sem átti góðan leik. Næsti leikur liðsins verður ekki auðveldur en stelpumar taka þá á móti Breiðablik, sem er með fúllt hús stiga eftir tvær umferðir og lagði m.a. Val að velli. En með sigri geta Eyja- stúlkur opnað deildarkeppnina upp á gátt og gert hana spennandi sem þekkist varla lengur í kvenna- boltanum. ÍBV: Nanna Rut Jónsdóttir, Guðrún Soffía Viðarsdóttir, Pálína Guðrún Braga- dóttir, Rakel Rut Stefánsdóttir, Rachel Jeanne Kruze, Hólmffíður Magnús- dóttir, Sigríður Ása Friðriksdóttir, Ema Dögg Sigurjónsdóttir, Bryndís Jóhannesdóttir, Elín Anna Steinars- dóttir, Elena Einisdóttir. Varamenn: Nína Björk Gísladóttir, Þórhildur Ólafsdóttir, Tanja Tómasdóttir, Thelma Sigurðardóttir Sænska úrvalsdeildin: Ung Eyjostúlka vekur mikla athygli Ung eyjastúlka, Erla Steina Amardóttir er að slá í gegn í sænsku úrvalsdeildinni í knattspymu með liði sínu Mallbacken. Erla Steinunn er dóttir Ólafar Erlu Ólafsdóttur sem er dóttir Ólafs Ámasonar, Óla í olíunni og Þorsteinu Ólafsdóttur konu hans en þau bjuggu að Hólagötu 9. Hún hefúr leikið vel með liðinu það sem af er tímabilsins en hún kom til Mallback ffá Sunnaná, hvar hún lék fyrri hluta tímabilsins. Erla er í íslenska landsliðshópnum sem mætti Skotlandi í Skotlandi í gær en úrslit leiksins vom ekki kunn þegar blaðið fór í prentun. Sagt er frá Erlu í Morgunblaðinu síðasta þriðjudag en þar hefúr blaðið m.a. effir sænska blaðinu Varmlands Folkblad að Erla hafi breytt miklu fyrir Mallbacken. "Það er kominn meiri sóknarþungi á miðju liðsins. Erla er lágvaxin en ber ekki nokkra virðingu fyrir mótheijunum þegar kemur að návígjum. Hún er líka mjög góð með boltann, með fina knatttækni og gott auga fyrir spili, sem lið Mallbacken mun njóta vemlega góðs af." Erla er með tvöfalt ríkisfang, sænskt og íslenskt vegabréf en hún hefúr þegar leikið fimm landsleiki með íslenska landsliðinu. Gunnar Heidar að springa út Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Eyja- peyinn í liði Halmstad, hefúr þurft að sætta sig við það í upphafi leiktíðar í sænska boltanum að verma tréverkið. Hann hefúr þó alltaf fengið að koma eitthvað inná. En í síðustu tveimur leikjum hefúr hann verið i byrjunarliðinu og í vikunni fór hann á kostum. Halmstad tók á móti Landskrona í sænsku úrvalsdeildinni og eftir að hafa verið marki undir i hálfleik, opnuðust allar flóðgáttir í þeim síðari og Halmstad vann 5:1. Gunnar Heiðar gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu. Gunnar minnti reyndar á sig fyrr í mánuðinum þegar hann lék með Halmstad í bikarkeppninni. Leikið vargegn 1. deildarliðinu Boden og lentu Gunnar og félagar í miklum vandræðum og voru undir 2:0. En Eyjapeyinn kom þá sínu liði til bjargar, skoraði tvö mörk og jaftiaði metin og lagði svo upp sigurmarkið í framlengingu. Það verður því erfitt fyrir Janne Anderson, þjálfara Halmstad, að ganga framhjá Eyjapeyjanum knáa í næsta leik næstkomandi sunnudag. Halmstad er sem stendur í öðru sæti deildarinnar með þrettán stig eftir sjö umferðir en Helsingborg er efst með fjórtán. Fratnundan Fimmtudagur 26. maí Kl. 19.15 FH-ÍBV Landsbankadeild karla. Laugardagur 28. maí Kl. 14.00 ÍBV-Þróttur 2. fl. kvenna. Kl. 14.00 Sindri-KFS 3. deild karla. Sunnudagur 29. maí Kl. 14.00 IBV-Leiknir 2. fl. karla. Mánudagur 30. maí Kl. 19.15 Grindavík-ÍBV Lands- bankadeild karla. Kl. 20.00 ÍBV-KR 3. fl. karla. Þriðjudagur 31. maí Kl. 20.00 ÍBV-Breiðablik Lands- bankadeild kvenna. Miðvikudagur 1. júní Kl. 17.00 ÍBV-Haukar 4. fl. kvenna.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.