Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2005, Qupperneq 20

Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2005, Qupperneq 20
o Skólavegi 21J J2 o >0 'S t! öb c* *ri X 08 í FRÉTTABIKARINN. Hildur Dögg Jónsdóttir og Grétar Eyþórsson fengu Fréttabikarana í ár en afhendingin fór fram á Iokahófl handboltans síðasta föstudag. Svein Erik Kristiansen frá NCC fundaði í Eyjum: Byggja sínar tölur á eigin reynslu af jarðgangagerð Niðurstöður bergmælinga liggja fyrir um mitt sumar Fyrir rúmri viku kom hingað til Eyja Svein Erik Kristiansen verkefnisstjóri hjá skandinaviska verktakafyrirtækinu NCC. Svein Erik komst í fréttimar á íslandi í vetur þegar hann gaf út minnisblað þess efnis að göng milli lands og Eyja væm hugsanlega mun ódýrari en tölur Vegagerðarinnar gerðu ráð fyrir, miðað við þær rannsóknir sem lægju fyrir. Það var Ámi Johnsen fyrrverandi þingmaður sem hafði milligöngu með aðkomu Svein Eriks að málinu. Svein Erik var með erindi í Höll- inni á fundi sem Ægisdyr stóðu fyrir. Þar var farið yfir stöðu mála og kynnti hann verktakafyrirtækið fyrir Eyjamönnum. Reyndar hélt hann fyrirlestur sinn á norsku og háði það fundinum nokkuð. Hann kynnti þau verkefni sem NCC hefur staðið að á síðustu áram ásamt þeim verkefnum sem framundan era. Ingi Sigurðsson, formaður Ægis- dyra var ánægður með fundinn þó hann vissi að engin ný sannindi yrðu lögð fyrir. „Hann kom hingað fyrst og ffemst í þeim tilgangi að kynna fyrirtækið og þau verkefni sem þeir era að vinna að og hafa framkvæmt." Ingi sagði athyglisvert að sjá kostnaðartölur við þau göng sem era á verkáætlun í Noregi um þess- ar mundir. „Annars vegar er verið að tala um átján kílómetra löng göng sem eiga að kosta um tólf milljarða og hins vegar þrjátíu kílómetra göng upp á 26 til 27 mill- jarða. Þar er ekki gert ráð fyrir svokölluðum flóttagöngum enda eru Norðmenn ekki aðilar að Evrópusambandinu frekar en ís- lendingar. Það er engin slík reglu- gerð í gildi innan Evrópusam- bandsins um slík göng og því í raun ekki tímabært að vera að gera ráð SVEIN Erik í ræðustól. fyrir einhverjum hugsanlegum reglum sem koma í framtíðinni. Svein Erik benti einnig á góða lausn fyrir Vestmannaeyjagöngin. Það era svokölluð öryggisherbergi á fjögur til fimm hundrað metra millibili. Þar gæti fólk farið inn og haft súrefni og símasamband í lang- an tíma ef eitthvað kæmi upp á.“ Ingi segir að slík lausn væri full- nægjandi fyrir göng á milli lands og Eyja enda yrði bílaumferð um göngin ekki eins mikil og í sam- þærilegum göngum annarsstaðar í heiminum. „Lengsta vegalengdin sem þyrfti að sækja fólk væri um tíu kíló- metrar og þá er verið að tala um sérútbúna bíla sem færa í það.“ Hann sagði að einn helsti punktur fundarins hafi verið sú fuílyrðing Sven Eriks að á næstu tíu áram yrði hægt að grafa helmingi lengri göng en nú þekkist. Allt veltur þetta þó á niðurstöðum rannsókna á berglögunum milli Heimaeyjar og lands sem hefjast í byrjun júní og ættu niðurstöður að liggja fýrir um mánaðarmótin júní- júlí. Nú þegar era hafnar rannsóknir á þykkt sandsins beggja vegna við Kross þar sem hugsanleg jarðgöng eiga að koma upp. „Þegar niðurstöðumar liggja fyrir þá mun NCC annað hvort staðfesta þær töl- ur sem þeir hafa nú þegar lagt fram eða endurreikna þær. Það er hins vegar alveg skýrt að þeir munu áfram fylgjast með verkefninu. „Það þurfa að koma talsvert nýjar og gjörbreyttar upplýsingar til þess að breyta þessu máli mikið héðan í ffá.“ Ingi sagði gríðarlega mikilvægt að fá Svein Erik hingað til Eyja. „Með fullri virðingu fyrir ráðgjafa- fyrirtækinu MottMacDonald þá er NCC, fyrirtæki sem er að vinna i svona verkefnum ffá degi til dags og hafa mikla reynslu af jarðganga- gerð. Þeir byggja þessar tölur upp á reynslu sinni af öðram göngum." Mikil umræða skapaðist um NCC og hvort fyrirtækið stæði á bakvið útreikninga Sven Eriks. Ingi segir það enga spumingu. „Hingað ætlaði einnig að koma yfírmaður hans, Knud Livaag, en því miður komst hann ekki vegna anna. Þessi vinna Svein Eriks er unnin í nafni NCC, við höfum fengið staðfestingu á því í gegnum samgönguhóp ráðherra sem ég ásamt Páli Zóphoníasyni og Bergi Ágústssyni eigum sæti í. Eg vil einnig þakka þeim fjölmörgu Eyjamönnum sem lögðu leið sína í Höllina til að hlýða á erindi Svein, og vona að aðalatriði erindis hans hafi skilað sér. Við eram einnig að skoða þann möguleika að þýða erindi Svein og að fundurinn verði sýndur á Fjölsýn við fyrsta hentu- gleika.“ fANcy Snyrtistofa A verslun Skólavegi 6 s. 481-3330 - ómissandí fyrir Eyjamenn! Askriftarsíminn er 481-1300 VIKUTILBOÐ 26. maí -1. júní Brillo Uppþvottalögur Brillo Glerhreinsir Brillo hreingerningarl. 1 Itr Lu Bastonge Jacobs Club orange Mars 3 stk Verð Nú Áður 149,- 279,- 189,- 299,- 119,- 199,- 169,- 228,- 149,- 199,- 169,- 209,- vörur ó tilboð SS Rauðv. Lambalæri hólfúrb SS Grand Orange lambafille SS Osta pylsur Búrf. nautahakk F&F kjúklingastubbar SS Pylsur 1 kg+geisladiskur SS Pylsur 1 kg + Grilltöng 1348,- 1698,- kr/kg 2358,- 2898,- kr/kg 648,- 828,- kr/kg 848,- 1008,- kr/kg 499,- 627,- 1498,- 1899,- 889,- 1199,-

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.