Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.2005, Qupperneq 2

Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.2005, Qupperneq 2
2 Fréttir / Fimmtudagur 14. júlí 2005 Bryggju- dagur á laugar- daginn SKRIFAÐ undir samning. Sitjandi, Kristín Jóhannsdóttir, Bergur Elías, Einar Kr. og Guðmundur Oddsson ferðamálafulltrúi. Skýr hugsun að baki verkefninu -segir Einar K. Guðfinnsson formaður Ferðamálaráðs í síðustu viku komu fulltrúar Ferða- málaráðs til Vestmannaeyja ásamt fríðu föruneyti. Tilgangur ferð- arinnar var tvíþættur, að skrifa undir samning um styrk til handa verkefn- inu Pompei norðursins og til fund- arhalda. Ráðið hefur haft þann sið undanfarin ár að halda sumarfund ráðsins á landsbyggðinni. Einar Kr. Guðfmnsson, formaður Ferðamálaráðs, var mjög ánægður með ferðina og leist vel á verkefnið, Pompei norðursins. „Okkur leist vel á þetta og það sést best á því að verkefnið fékk hæsta styrkinn að þessu sinni vegna umhverfisverk- efna. Verkefnið sameinar einnig af- þreyingar- og sögulegt gildi og þess vegna var það mikið áhugamál hjá okkur að styðja við það.“ Skrifað var undir samninginn á slóðum verkefnisins og leist Einari vel á það sem komið var. „Þetta er mjög áhugavert og af orðum þeirra sem að þessu standa er ljóst að það er mjög skýr hugsun á bakvið þetta og raunhæfar áætlanir sem liggja fyrir.“ Árlegur sumarfundur Ferðamála- ráðs var haldinn í Eyjum í ferðinni sem stóð yfir í tvo sólahringa. „Einnig höfum við haft þann sið að hitta aðila í ferðaþjónustu á þeim stöðum sem við fundum á og við áttum mjög góðan fund með aðilum innan ferðaþjónustunnar í Eyjum og þó margt hafí verið mótrækt að undanförnu í ferðaþjónustunni og ýmis vandamál við að etja tel ég að menn í Eyjum séu að taka þetta mjög faglegum tökum." Aðspurður hvort hann telji að Vestmannaeyjar eigi möguleika á að stækka sem ferðaþjónustusvæði sagði hann að það væri ekki spum- ing. „Við þekkjum vandamálin sem við er að etja, sérstaklega í sam- göngumálum en mér sýnist menn vera að taka á þeim málum eins vel og kostur er. Ferðin öll var mjög jákvæð og fróðleg fyrir okkur sem komum þarna sem aðkomumenn og ég vona að hún hafi einnig verið gagnleg fyrir heimamenn,“ sagði Einar að lokum. Handboltadeild ÍBV stendur fyrir sínum árlega Bryggjudegi í samvinnu við Eimskip næsta laugardag. Björn Elíasson, einn forsvars- manna Bryggjudagsins, sagði áherslu lagða á að gera daginn fjölskylduvænan. „Við verðum með fisk til sölu en jafnframt því bjóðum við fólki að setjast niður og kaupa sér kaffi, kakó, kökur og vöfflur. Auk þess verður ýmis- legt til skemmtunar. SJOVE er í samstafi við okkur með dorg- veiðikeppni sem byrjar klukkan 12.30 við Nausthamarsbryggju. Við verðum með leiki fyrir börnin, þrautir og leiktæki og ýmsar uppákomur.“ Á Bryggjudegi verður hægt fá mikið úrval af nýjum fiski á góðu verði. Sem dæmi verður hægt að kaupa ýsu, humar, saltfisk, gellur, kinnar, skötusel, kola, steinbít og jafnvel hvalkjöt líka. „Þetta er fimmta árið sem við stöndum fyrir Bryggjudegi og hann hefur verið mjög vel sóttur. Fyrst vorum við að vonast eftir 300 til 400 manns en það fylltist allt hjá okkur og komu miklu fleiri en við áttum von á. Þetta er svolítið krydd í bæjarlífið og við vonumst til að sjá sem flesta hjá okkur á laugardag,“ sagði Björn og bætti því við að dagskráin stæði frá 13.00 til 16.00 á Eimskipsplaninu við Friðarhöfn. Minnisvarði um Gunnar A. Ragnarsson, föður Maríu á Kirkjubæ afhjúpaður: Fórst í Stórhöfða daginn áður en hún varð níu ára MARÍA við minnisvarðann um föður sinn. Minnisvarði um Gunnar Aðalstein Ragnarsson sem fórst 10. júlí 1954 var afhjúpaður austur í Stórhöfða á sunnudag. Sigurður Gottharð Sigurðsson lét smíða og reisa minnisvarðan en Gunnar hrapaði í Stóru Tó, austan í höfðanum aðeins þrjátíu og tveggja ára gamall. Um fjörutíu manns voru viðstödd þegar minnisvarðinn var afhjúp- aður og þar minntist María Gunnarsdóttir frá Kirkjubæ föður síns og Sigurður Gottharð frá Norðurbæ á Kirkjubæjum góðs vinar. María er fædd 11. júlí 1945 og hélt uppá sextíu ára afmæli sitt á laugardag en faðir hennar lést daginn fyrir níu ára afmælisdaginn hennar. „Gotti var með pabba þegar hann hrapaði en þá var hann sextán ára gamall. Hann minntist Gunnars föður míns og sagði við þetta tækifæri að hann hefði verið honum sem besti faðir. Pabbi smíðaði ýmislegt fyrir hann enda var hann laghentur og góður smiður. Eg minntist líka föður míns, hann var í karlakór og UM 40 manns voru samankomin í Stórhöfða við athöfnina á sunnudaginn. kenndi mér að syngja. Ég lærði fullt af lögum og ljóðum af honum og það var mjög sárt að missa hann svona ung, sagði María þegar hún var spurð út í athöfnina í Stórhöfða. „Gotti hefur lengi haft hug á að minnast pabba með þessum hætti og þegar hann fékk boðskort í afmælið mitt þá ákvað hann að láta smíða kross og reisa á þessum stað. Krossinn var smíðaður í Kópavogi hjá fyrirtæki í eigu bræðranna Stefáns, Ólafs Amar, Guðbjörns Bergs og Lámsar. Krossinn er mjög vel gerður og veglegur, smíðaður úr ryðfríu stáli. Þetta var yndisleg stund en minn- isvarðanum er einnig ætlað að vera ungum bjargveiðimönnum áminning um að fara varlega," sagði María. Útgefandi: Eyjasýn elil'. 480278-0549 - Vestniannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Signrsvcinn Þórðarson, GuðbjörgSigurgeirsdóttir. fþróttir: Július Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjasýn/Eyjaprent. Vestinannaeyjum. Aðsetur ritstjómar: Strandvegi 47. Simar: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur: frettír@eyjafrettir.is. Veffang: http//www.eyjafrettír.is FRÉTTHt koma ut alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig i lausasölu á Klettí, Tvistinum, Toppnum, Vönival, Ilerjólfi, Flughafnarversluninni, Krónunni, Isjakanum, Bónusvideó, verslun 11-11, Skýlinu í Friðarhöfn og í Jolla í Hafnarfirði og afgreiðslu Ilcjrólfs í Þorlákshöfn. FRÉTTER eru prentaðar í átKHI eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og liéraðsfréttablaða. Eftirinentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heiniilda sé getið. 4t

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.