Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.2005, Qupperneq 10
10
Fréttir / Fimmtudagur 14. júlí 2005
Hjálparhönd serr
Félags- og fjölskyldu-
svið Vestmannaeyja-
bæjar veitir ýmis
úrræði sem styðja við
einstaklinga og fjöl-
skyldur í samfélaginu.
Stuðningurinn getur
verið fólginn í ráðgjöf
á skrifstofu sviðsins,
leiðsögn og aðstoð á
heimili varðandi heim-
ilishald og uppeldi
barna, aðstoð við þrif
og félagslegur stuðn-
ingur. Það er marg-
breytilegur hópur fólks
á öllum aldri sem nýtur
þjónustunnar. Þeir
geta átt við veikindi að
stríða eða fötlun, hafa
lent í aðstæðum sem
gera þeim erfitt að
sinna uppeldisskyldum
sínum og/eða átt í
ýmsum félagslegum
erfiðleikum. Arangur
af þessum stuðningsúr-
ræðum getur verið dýr-
mætur, getur hjálpað
fólki að halda sjálf-
stæði sínu, rofið
félagslega einangrun
og bætt líðan barna
og fullorðinna.
Starfsfólkið, sem veitir
stuðninginn, er jafn
breytilegt og þjónustu-
þegarnir en af ein-
hverjum ástæðum
hefur oft reynst erfitt
að manna þessi störf.
Guðbjörg Sigurgeirs-
dóttir hafði tal af
Guðríði Ástu
Halldórsdóttur, Mar-
gréti Þorsteinsdóttur,
Ingibjörgu Bryngeirs-
dóttur og Trausta
Hjaltasyni en þau hafa
tekið að sér störf við
liðveislu, tilsjón og
persónulega ráðgjöf.
Þora að segja og leiðbeina
-segir Guðríður Ásta Halldórsdóttir tilsjónarmaður sem aðstoðar for-
eldra við að sinna forsjár- og uppeldisskyldum
ÁSTA: Ábendingar geta hafa borist frá leikskólum
eða skólum um að foreldrarnir séu í einhverjum
vandræðum með uppeldið og sumir foreldrar óska
sjálflr eftir aðstoð.
Guðríður Ásta Halldórsdóttir er
sjúkraliði að mennt, hefur tekið að
sér tilsjónarstörf og segir starfið
skemmtilegt og gefandi. Hlutverk
tilsjónarmanns er að aðstoða for-
eldra við að sinna forsjár- og
uppeldisskyldum og öðrum þeim
störfum sem tilheyra heimilishaldi
sem best.
Stundum er eingöngu verið að
vinna með barn og þá þarf að miða
vinnuna út frá því. Verkefnin eru
margþætt eins og einstaklingarnir
eru margir og vinnan tekur mið af
þörfum viðkomandi fjölskyldu.
„Tilsjónarstarfið felur í sér ráðgjöf
inni á heimili. Þetta er forvamar-
starf þar sem unnið er með börn á
leikskólaaldri til að koma í veg
fyrir erfiðleika á grunnskólastigi.
Til þess að börn standi sig þá þurfa
foreldrar að vera í stakk búnir til
að sinna sínum uppeldisskyldum
og ef foreldrar eru í slæmum
málum þá kemur það niður á börn-
unum, “ segir Ásta þegar hún er
spurð út í starfið.
„Ábendingar geta hafa borist frá
leikskólum eða skólum um að
foreldrarnir séu í einhverjum vand-
ræðum með uppeldið og sumir
foreldrar óska sjálfir eftir aðstoð.
Starfið er oftast í tengsium við
börn og unglinga til dæmis þarf að
fylgjast með því að börnin mæti í
skóla o.s.frv. Tilsjónin getur snúið
að ýmsu inni á heimilinu eins og
leiðbeiningum með þrif á heimil-
inu, persónulegum þrifum, svefn-
venjum krakkanna, útivistartíma,
samskiptum heimilisfólks og sam-
skiptum foreldra við skóla og leik-
skóla.“
Ásta leggur áherslu á að starfið
byggist á samvinnu og trausti milli
hennar, heimilisfólks og tengiliðs
sem hún hafi hjá félagsþjónust-
unni. „Skólastjómendur og kennari
vita af því ef ég starfa inni á heim-
ili bams sem er í skólanunt eða á
leikskólanum. Ég reyni að styðja
við foreldra og ef foreidri vill fá
stuðning þegar farið er í viðtal inni
á leikskóla þá hef
ég farið með. Öll
samskipti þurfa
að vera opin og
hreinskilin.
Maður verður að
þora að segja
fólki hvað manni
finnst og
leiðbeina því. Ég
dreg fram það
sem er vel gert
og bendi á það
sem miður fer
þannig að fólk
veit hverju er
ábótavant og við
reynum að ná
samkomulagi um
framhaldið.
Viðkomandi veit
líka að ég læt
minn tengilið í
Ráðhúsinu vita
hvemig gengur
þannig að málin eiga að vera á
hreinu.“
Ásta hvetur fólk til að sækja í
þessa vinnu sem er mjög skemmti-
leg og gefandi. „Ég mæli hiklaust
með þessu starfi fyrir fólk sem
treystir sér í þetta og hefur áhuga.
Það er hægt að vera í mismiklu
starfshlutfalli og vinnutíminn getur
verið sveigjanlegur. Ég hef stund-
um verið með tvær fjölskyldur,
tíminn er misjafn, allt frá tveimur
tímum, þrisvar í viku niður í einn
tíma einu sinni í viku og stundum
meira. Það fer allt eftir þeirri
áætlun sem er í gangi. Fyrst og
fremst snýst þetta um ráðgjöf inni
á heimilunum og við erum að
leiðbeina fólki. Mér finnst hins
vegar mjög mikilvægt að hitta
fólkið reglulega á ákveðnum tíma.
Þetta er mjög skemmtilegt og
áhugavert starf og mér hefur alltaf
verið vel tekið og samstarfið við
fólkið sem ég hef unnið með er
mjög gott. Maður verður að vera
góður hlustandi, þarf að geta tekið
ákvarðanir og vera sjálfum sér
samkvæmur."
Ásta segir að ekki að ekki séu
gerðar kröfur um menntun en ekki
saki að hafa einhvem grunn til að
byggja á, hún hafi t.d. sótt nám-
skeið sem em í boði. Félags-
þjónustan heldur mjög vel utan um
okkur og launin hafa hækkað. Við
sem vinnum við þetta mættum hafa
meira samband okkar á milli, við
erum öll að gera góða hluti en það
væri samt gaman að geta hitt aðra
sem eru að vinna svipað.
Aðstæður fólks geta verið þannig
að það þarf aðstoð og mér hefur
gengið ágætlega að mynda tengsl
við þá sem ég hef unnið með. Ég
er vön að vinna inni á heimili hjá
fólki í gegn um heimahjúkrun og
þar af leiðandi með fólki. Þetta á
mjög vel við mig og ég mæli með
því að fólk gefi sig í þetta og
allavega prófi því það er mjög vel
að okkur búið,“ sagði Ásta.
Ingibjörg Bryngeirsdóttir er persónulegur ráðgjafi og tilsjónaraðili:
Oft má leysa málin á einfaldan hátt
INGIBJÖRG: Maður á ekki að vera kvarta yfir
bólu á nefinu eða nokkrum aukakílóum því skjól-
stæðingar mínir eru oft að glíma við stærri vanda-
mál á einhverju sviði.
Ingibjörg Bryngeirsdóttir hefur
starfað sem persónulegur ráðgjafi
og tilsjónaraðili fyrir Félags og
fjölskyldusvið Vestmannaeyja-
bæjar. Hún vinnur nú með bam
sem nýlega hefur hafið skólagöngu.
„Ég kem inn á heimili barnsins
einu sinni í viku og leiðbeini því
með heimanám í tvo tíma í senn.
Við förum líka yfir verkefni sem
tengjast fínhreyfingum sem eiga að
stuðla að því að barninu gangi
betur við námið. Ef barnið stendur
sig vel þá spilum við eða förum í
leiki og stundum fær það að sjá
myndband, allavega gerum við eitt-
hvað skemmtilegt ef vel hefur
gengið þá vikuna í skólanum. Þetta
eru eins konar verðlaun barnsins ef
það hefur staðið sig vel,“ sagði
Ingibjörg þegar hún var spurð út í
starfsvið sitt sem tengist tilsjón og
persónulegri ráðgjöf við barn.
„Tengslin ganga mjög vel, bamið
er auðvitað misjafnlega fyrirkallað
eins og gengur og gerist með börn.
Þetta gengur mjög vel og það
kemur fyrir að barnið er erfitt í
umgengni en þegar það hefur séð
að sér þá kemur það og faðmar mig
og vill vera gott. Samstarfið við
móður barnsins gengur mjög vel og
ég kem þarna inn í fullu samstarfi
við hana.“
Þegar Ingibjörg er spurð hvernig
hafi komið til að hún tók að starfa
á vegum félagsþjónustunnar segir
hún að upphaflega hafi hún tekið
að sér að leiðbeina barni sem hún
þekkti til. „Ég byrjaði með barn
sem ég þekkti en móðirin vildi
ekki fá hvem sem
er þannig að þetta
hentaði mjög vel.
Telma hringdi svo
í mig og bað mig
að taka að mér
meiri vinnu á
þessu sviði og ég
ákvað að gera það.
Ég var með tvö
börn um tíma en
nú er ég með eitt
barn en það er
þriðja bamið sem
ég sinni."
Ingibjörg segir
þetta vera mjög
gefandi vinnu og
hún kunni betur að
meta lífið en áður.
„Maður á ekki að
vera kvarta yfir
bólu á nefinu eða
nokkrum
aukakílóum því
skjólstæðingar
mínir em oft að
glíma við stærri vandamál á ein-
hverju sviði. Það er ekkert sjálf-
gefið að maður sé heilbrigður,"
sagði Ingibjörg. Tilsjón og per-
sónuleg ráðgjöf er aukavinna hjá
henni en hún vinnur hjá Vilberg á
daginn og í Skýlinu um helgar.
„Ég er ekki að vinna með bamið í
sumar en ég reikna með að_ við
byrjum aftur næsta haust. Ég er á
þeim tíma sem skóladegi lýkur á
daginn. Ég hitti bamið seinni part
dags því það hentar báðum. Ég gef
móður bamsins oft á tíðum líka ráð
í sambandi við mataræði og al-
mennt hvemig hlutimir ganga best
fyrir sig. Oft er hægt að leysa mál
með einföldum hætti, útskýra
málin og þá verður allt léttara. Það
getur t.d. snúist um hvenær leita
beri læknis og hvenær ekki.
Foreldri getur orðið óþarflega hrætt
við blóðnasir o.s.frv."
Þegar Ingibjörg er spurð hvort hún
geti hugsað sér að vinna meira á
þessu sviði, segist hún alveg geta
það. „Þetta er ekki allt skemmtilegt
en mjög gefandi. Bömin geta verið
erfið og maður þarf stundum að
brýna raustina. Ég hvet fólk til að
taka að sér svipuð störf því að
mínu mati er þörf á þessari þjón-
ustu. Þessi vinna getur verið sniðug
fyrir skólakrakka því maður ræður
vinnutímanum svolítið sjálfur en í
samvinnu við Félags og fjölskyldu-
svið.“