Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.2005, Síða 14
14
Frcttif / Fimmtudagur 14. júli' 2005
Kvennafílingur að hætti Eyjakvenna
-þegar Berglind, Selma og Va-Gínas slógu saman í púkk og sýndu föt með rokkívafi
Berglind Ómarsdóttir og Selma
Ragnarsdóttir, klæðskerar og kjóla-
meistarar, héldu fatahön-
nunarsýningu þann 16. júní sl. í
Gallery Smekkleysu. Berglind og
Selma reka vinnustofu 2. hæð á
Laugavegi 59 eða í sama húsi og
Smekkleysa en á jarðhæð er
Bónus.
Kvennahljómsveitin Va-Gínas var
með tónleika á eftir sýninguna.
Stelpurnar eru allar frá Eyjum en
hljómsveitina skipa Hafdís Víg-
lundsdóttir, Vigdís Ómarsdóttir,
Erla og Margrét Grétarsdóttir.
Tískusýningin og tónleikarnir hep-
pnuðust mjög vel og stelpunum í
Va-Gínas hefur í framhaldinu verið
boðið að koma fram á tónlis-
tarhátíð sem fram fer í Reykjavík í
haust.
„Þetta var heimilislegt og
skemmtilegt hjá okkur. Stelpurnar í
Va-Gínas sýndu föt ásamt fleiri
módelum en þær voru með tvær
innkomur og enduðu með því að
spila fyrir gesti, íklæddar fötum frá
okkur,“ sagði Berglind þegar hún
var spurð út í tískusýninguna.
Götufatnaður
„Þetta var aðallega götufatnaður
sem ég sýndi og allt mjög frjálslegt
og fötin frá mér voru öll saumuð úr
gömlum efnum. Guðlaugur
Sigurðsson, prentari bauð mér
nokkra kassa af gömlu fataefni sem
mamma hans átti og ég notaði það
eingöngu á sýninguna. Skræpótt
efni með skemmti- legum litum að
vinna úr. Þetta var ekki beint
sölusýning heldur frekar til að
vekja athygli á okkur og gera eitth-
vað annað en við erum vanar. Við
fengum mjög góð viðbrögð, fullt af
fólki og voða gaman. Va-Gínas
fékk mikla athygli og þær fengu
boð um að spila á Airwaves
tónlistarhátíðinni hér í Reykjavík í
október. Þannig að þær eru rosa
spenntar og eru að æfa öll kvöld.“
Eins og fyrr segir var þetta ekki
eiginleg sölusýning en Berglind og
Selma, sem báðar eru útlærðir
kjóla- og klæðskerameistarar, eru
mest við að sérsauma á fólk. „Eg
er að sauma jakkaföt núna og
Selma er að sauma brúðarkjól. Það
er brjálað að gera í kjólasaum og
við verðum báðar með nokkra
brúðarkjóla í sumar og það má
segja að nú sé hálfgerð vertíð í
gangi hjá okkur, “ sagði Berglind
og þegar hún var spurð nánar út í
brúðarkjólana sagði hún meira um
að þeir væru í fleiri litum en áður.
„Ég er nýbúin að sauma einn græn-
leitan og það er búið að panta einn
gylltan fyrir haustið. Það er líka
svolítið um að kjólarnir séu
tvískiptir, t.d. rauður toppur og
hvítt pils en þá eiga konumar
möguleika á að nota flíkumar í sitt
hvoru lagi. Þannig að það er nóg að
gera við að sauma á brúðir og
brúðguma en fólk er yfirleitt ekki
að láta sauma á sig nema fyrir stóra
viðburði, “ sagði Berglind en þær
M—Mi'iiHIMyil 1 i 1
tóiáv sr ■ M I MlÆíiMWS-lsEaiiJlÍm
—■ ’ WJ I
1
FLOTTAR, Erla, Hafdís, Selma, Berglind, Vigdís og Margrét, en þær Erla, Hafdís, Vigdís og Margrét skipa
Va-Gínas sveitina.
Selma hafa samt sem áður nóg að
gera. „Það em ekki svo margir í
þessu en það em nokkrar litlar sto-
fur og mikið að gera, en öll stærri
fyrirtæki láta sauma fyrir sig úti.“
Sýndum á okkur nýja hlið
Selma var líka ánægð með hvemig
til tókst með tískusýninguna og
hljómleikana. „Þetta tókst framar
vonum og góð stemmning. Það er
algjör snilld að hafa Smekkleysu í
sama húsi. Þeir em yfirleitt með
tónleika tvisvar í viku og við
ákváðum að slá þessu saman í gott
partí og fatasýningu í leiðinni. Það
var mjög gaman að setja upp
sýningu fyrir áhorfendur og okkur
sjálfar, sagði Selma og var ánægð
með hvemig til tókst.
„Ég sýndi boli en ég hef verið að
hanna boli undanfarið eitt og hálft
ár og ætla að halda því áfram.
Þetta var svona í bland, flíkur sem
við erum að selja og svo vomm við
líka að sýna nýja hlið á okkur.
Stelpurnar í Va-Gínas voru alveg til
í að sýna fötin frá okkur og taka
gott rokk á eftir þannig að það var
svolítill kvennafílingur í þessu.
Þetta var því rosalega gaman og ég
hef mikla trú á þessu bandi.“
Selma vinnur ekki eingöngu við
kjóla- og klæðskerasauminn heldur
er hún líka að vinna á saumastofu
Þjóðleikhússins í hlutastarfí og
kennir við Fjölbrautarskólann við
Ármúla -FÁ. „Mér finnst gott að
geta brotið daginn upp, vera ekki
alveg bundin við einn stað. Ég hef
alltaf viljað hafa vinnuna mína fjöl-
breytta og þannig verður dagurinn
skemmtilegur. Er með puttana í
öllu núorðið, og flest sem ég ffía í
botn. Einnig er ég að sauma
búninga fyrir ýmsa hópa og ein-
staklinga og er með nokkur spenn-
andi verkefni fyrir Gay Pride sem
er í byrjun ágúst á hverju ári.
Mér fannst sýningin lukkast vel
og við fengum góða athygli og
umfjöllun og erum að undirbúa
stærri sýningu í haust undir sama
merki. Samstarf okkar Berglindar
gengur mjög vel, við emm frekar
ólíkar en bætum hvor aðra upp.
Svo er hún líka svo skemmtileg
hún Berglind," sagði Selma.
Heilsuhorn Helgu Bjarkar:
Blóð og járnskortur
Hvað er blóðskortur?
Ef einstaklingur þjáist af blóð-
skorti (anæmi) vantar rauðar
blóðflögur. Ef ekki er nóg af þeim
rauðu eða þær á einhvern hátt
starfa illa, þá fáum við þreytu-
einkenni og verðum illa upplögð
sem orsakast af súrefnisskorti.
Blóðskortur stafar oftast nær af
lítilli framleiðslu á rauðum
blóðflögum. Rauðar blóðflögur
myndast í beinmergnum og „lifa“ í
u.þ.b. 4 mánuði.
Til framleiðslu á rauðum blóð-
kornum þarf meðal annars járn og
B12 vítamín ásamt fólinsýru. Sé
skortur á einhverju af þessum
efnum, verður framleiðslu á
rauðum blóðflögum ábótavant, og
við fáum einkenni blóðskorts.
Hvað eru rauðar blóðflögur?
Rauðar blóðflögur eru frumur
blóðsins, sem fínnast i blóðvökva
líkamans. Hjartað dælir blóði í
gegnum æðakerfið. Blóðið fær
súrefni frá lungunum og færir það
svo áfram til
fruma líkam-
ans.
Frumurnar
nota súrefnið
meðal annars
til brennslu
líkamans á
sykri og fitu,
sem gefur
okkur orku.
Við brennslu
myndast koldíoxíð, sem bindur sig
á rauðu blóðflögurnar, sem hafa
gefið frá sér súrefnið sem fékkst í
lungunum. Koldíoxíð flyst svo til
baka til lungnanna, þar sem
andardráttur okkar skiptir á því og
nýju súrefni.
Af hverju jóirnskortur?
Lítið sem ekkert jám í fæðunni:
Járnskortur sést oft hjá græn-
metisætum. Ástæðan er sú, að
okkar ríkasta járnfæða er kjöt. Þar
að auki geta fyrirburar þjáðst af
járnskorti þvíjárnforði byggist upp
síðustu mánuðina fyrir fæðingu.
Aukin þörf: Aukin þörf verður
þegar miklar frumubreytingar eiga
sér stað. Til dæmis þegar kona
verður barnshafandi eða þegar
börn taka vaxtarkippi.
Takmörkuð nýting: Við sjúkdóma
í þörmum, sem hafa áhrif á tak-
markaða nýtingu næringarefna t.d
glutenóþol eða Crohns sjúkdómur.
Jámskort án augljósrar ástæðu ætti
alltaf að láta athuga hjá lækni.
Ástæðan gæti verið lítil sár í þörm-
um eða krabbamein. Jámskortur
sést oftast hjá konum sem þjást af
kröftugum blæðingum, konum sem
reykja og konum sem neyta jám-
snauðrar fæðu.
Hvernig lýsir járnskortur sér?
Ef maður er hraustur og heil-
brigður sjást sjaldan einkenni fyrr
en blóðprósentan er komin niður
undir 6 millimol pr. lítra. Fyrstu
einkennin em þreyta og
hjartsláttartruflanir, þar að auki
getur viðkomandi fundið fyrir
svima og andarteppu. Sé blóð-
skorturinn mjög mikill getur
viðkomandi þjáðst af hjarta-
krampa, höfuðverk og sársauka í
fótum.
Hvernig er hœgt að forðast jám-
skort?
Til að koma í veg fyrir járnskort er
mikilvægt að neyta jámríkrar
fæðu, og taka þar að auki jám
aukalega sem töflur eða í fljótandi
formi.
Bestu jámgjafamir em blóðmör,
lifrarpylsa og lifur. (Þó ber að
athuga að lifur og aðrar lifraraf-
urðir innihalda mikið kólesteról).
Allur innmatur er jámríkur. Dökkt,
magurt kjöt, nautakjöt og lamba-
kjöt. Sardínur, hörpudiskur, kræk-
lingur. Brauð og kommeti:
Heilkomsbrauð, gróft kom, heil-
hveiti, hveitiklíð, hveitikím. AU
Bran. Hnetur og möndlur.
Grænmeti og ávextir: Baunir,
brokkál, rósakál, aspas. Þurrkaðir
ávextir, s.s rúsínur, sveskjur,
apríkósur, ferskjur, döðlur og
fíkjur. Sveskju- og tómatsafi.
C-vítamín eykur nýtingu jáms í
líkamanum. C-vítamín auðugir
ávextir em t.d sítrónur, appelsínur,
greipaldin og kíwí.
Gangi ykkur vel.