Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.2005, Síða 17
Fréttir / Fimmtudagur 14. júlí 2005
17
Hún er Afródíta
númer eitt
Anna Kristín Magnúsdóttir er
verðugur fulltrúi ungs fólks í
Vestmannaeyjum sem Sumar-
stúlkan 2005. Fyrir utan að vera
gullfalleg kemur hún vel fyrir, er
frjálsleg og skemmtileg og býður
af sér góðan þokka.
Þegar hún er spurð hvernig
kvöldið hafi verið, grípur hún til
nútíma íslensku og segir það hafa
verið alveg geðveikt og æðislegt.
„Það var líka skemmtilegt að vinna
og að taka þátt í þessu með öllum
vinkonunum gerir þetta alveg
frábært," sagði Anna Kristín.
Allar eru stúlkumar jafngamlar
og þekkjast því vel en auk þess eru
átta þeirra í þjóðhátíðarhópnum
Afródítumar. „Við vomm að grín-
ast með að Afródíta er gyðja
fegurðar en við erum fyrst og
fremst vinkonur og þegar kemur að
þjóðhátíð mætum við í búningum
sem em okkar einkenni á hátíð-
inni.“
Kvöldið sagði Anna Kristín hafa
heppnast mjög vel og umgjörðin
verið góð. „Það var stuttur
undirbúningstími en við æfðum vel
og allt gekk þetta mjög vel. Nei, ég
var ekkert feimin við að koma
fram og þar naut maður þess að
vera með stelpum sem maður
þekkir. Þegar einhver fór inn á
sviðið stóðum við hinar í dyrunum
sendum jákvæða strauma inn á
sviðið. Það hjálpaði.“
Þegar Anna Kristín var spurð að
því hvort úrslitin hafi komið henni
á óvart, sagði hún já. „Mér fannst
allar stelpurnar æðislegar og eiga
skilið að vinna,“ svaraði hún en
stefnir hugurinn á fyrirsætustörf?
„Það fer allt eftir því hvort eitthvað
býðst og hvað það verður.“
Að lokum sagðist Anna Kristín
vilja þakka öllum sent studdu
Sumarstúlkukeppnina á einn eða á
annan hátt. „Hjördís var líka alveg
frábær og tókst að gera kvöldið
ógleymanlegt fyrir okkur. Óvissu-
ferðin var líka æðisleg og ég held
að við verðum allar ennþá sam-
rýmdari á eftir.“
VALA söng tvö lög og sá Sæþór Vídó um undirspil.
BIRKIR fékk óblíða meðferð í opnunaratriðinu.
DÓMNEFNDIN að störfum, Sæþór, Guðbjörg, Ester Helga, Bergey og Eva.
Fjölmargir
styrktu
keppnina
Eins og alltaf komu margir að
Sumarstúlkunni.
Framkvæmdaraðilar voru
Fréttir og Höllin en aðal-
styrktaraðili var Islandsbanki.
Einnig styrktu SS og TM
keppnina og öll blóm komu frá
Blómastofu Vestmannaeyja.
Aðrir sem komu beint að
Sumarstúlkunni eru Halla
Einarsdóttir, Ijósmyndari, sem
tók allar myndir fyrir keppn-
ina. Rakel Rut Stefánsdóttir
hannaði og saumaði búning-
ana í opnunaratriðinu en þar
komu líka fram Birkir
Hlynsson og Víðir Heiðdal sem
stóðu sig með stakri prýði.
Þá má ekki gleyma hári og
snyrtingu sem var í höndum
Asu Jóhannesardóttur og
Karenar Haraldsdóttur sem
sáu um hárgreiðslu og
Steinunnar Astu Hermanns-
dóttur snyrtifræðings, allar á
Ozio.
Myndarlegar gjafir
Allar fengu stúlkurnar blóm
og lítinn engil frá Blómastofu
Vestmannaeyja en auk þess
fengu stúlkurnar, sem unnu til
titla, myndarlegar gjafir.
Vinsælasta stúlkan fékk gjafa-
bréf frá Volare, Ijósakort frá
Hressó og sælgætiskörfu frá
Heildverslun Karls Krist-
manns.
Sportstúlka Puma og Axel Ó
fékk flug fyrir tvo fram og til
baka frá Landsflugi, gjafabréf
frá Axel Ó og Volare, Ijósa-
kort frá Hressó og sæl-
gætiskörfu frá Heildverslun
Karls Kristmanns.
Ljósmyndafyrirsætan fékk
flug fyrir tvo frá Landsflugi,
stafræna myndavél frá FOTO,
gjafabréf frá Volare og ljósa-
kort frá Hressó og sælgætis-
körfu frá Heildverslun Karls
Kristmanns.
Sumarstúlkan fékk flug fyrir
tvo frá Landsflugi, gjafabréf
frá Flamingó, Axel O. og
Volare, Ijósakort og þriggja
mánaða líkamsræktarkort frá
Hressó, gjafakörfu frá Hár og
snyrtistofunni OZIO. Sony
Ericson GSM síma sem
Síminn gaf. Gjafakörfu frá
verslun Grétars Þórarinssonar,
sælgætiskörfu frá Heildverslun
Karls Kristmanns og myndar-
legan blómvönd frá
Blómastofunni.
Frábær skemmtun
Skemmtiatriðin voru fjölbreytt
og þar voru stúlkurnar í
aðalhlutverki í opnunar-
atriðinu, tískusýningunum, í
lokaatriðinu þegar úrslitin
voru kynnt. En það komu
fleiri við sögu, fímleikasýning,
tveir hópar sýndu dans, Vala
og Sæþór fluttu tvö lög. Einnig
kom Hildur Vala fram ein og
sér og síðar sjálfir Stuðmenn.
Þá má ekki gleyma þætti Jarls
sem lét sér ekki nægja að vera
kynnir og fór fyrir fjöldasöng.
Náði hann upp góðri stemmn-
ingu. Þá var matur og þjón-
usta til fyrirmyndar þannig að
þegar upp var staðið var þetta
hið besta kvöld sem endaði
með dansiballi að hætti Stuð-
manna.
SKEMMTILEG dansatriði voru meðal þess sem boðið var upp á á skemmtuninni.