Harmoníkan - 01.10.1999, Page 5
Jón Gíslason frá Miðhúsum
r
I kyrmingu blaðsins
Maður sá er ég ætla að kynna
hér í blaðinu ætti að vera mörgum
kunnur, en áður en ég kynni hann
nánar læt ég fylgja með aðdragand-
ann að því hvernig ég náði af hon-
um tali.
í þau fáu skipti sem maður Iætur
eftir sér að glápa á sjónvarp fyrir
utan hefðbundinn fréttatíma, er
þegar eitthvað áhugavert íslenskt
efni birtist á skjánum og annað
sem tilheyrir sérstöku áhugasviði.
í fyrsta sinn sem ég sá Jón Gíslason
var það í sjónvarpsþætti með Álfta-
gerðisbræðrum og byijaði þá strax
að velta fyrir mér hver og hvaðan
þessi harmonikuleikari væri, sem
lék svo listilega undir með þeim
bræðrum. Á haustfundi S.Í.H.U. á
Flúðum í fyrra birtist Jón þar, sem
fulltrúi félags síns og notaði ég þá
tækifærið til að fá skorið úr því,
sem ég hafði velt fyrir mér. Auk
þess að hafa leikið með Álftagerð-
isbræðrum hefur Jón tekið þátt í
ýmsu öðru tónlistarstarfi eins og
við komumst nánar að hér í fram-
haldinu.
Jón Gíslason bóndi og harmoniku-
leikari er fæddur 30.apríl 1950 á
Sauðarkróki. Hann ólst upp í Mið-
húsum í Akrahreppi meðal fimm
systkina og fékk snemma pata af
tónlist. Faðir hans lék á harmoniku
og því byrjaði Jón snemma að leika
sjálfur. Móðurbræður Jóns, þeir
Rögnvaldur og Egill Stefánssynir úr
Kelduhverfi léku einnig mikið á
harmonikur og af þeim smitaðist
hann verulega. í kórstarfi byrjaði
hann 15 ára gamall í Karlakórnum
Feyki, en um 1970 gengur Jón til liðs
við Heimi, sem venjulegur söngmað-
ur, en undirleikurinn kom svo í fram-
haldi af því og hefur verið æ síðan.
Þá kom stuðningur og leiðsögn Árna
Ingimundarsonar sér vel, um það
hvernig á að bera sig til við að leika
með kór. Samstarfið við þá Álfta-
gerðisbræður var eingöngu fólgið í
því, að aðstoða við undirleik á
hljómdiski þeirra og leika í
sjónvarpsþætti til kynningar á hon-
um. Þeir bræður hafa hinsvegar ver-
ið ýmist ein, tví eða þrísöngvarar
Jón Gíslason frá Miðhúsum. Myndin er
tekin á Flúðum 1998
með karlakórnum Heimi til margra
ára. Starfið í Heimi hefur að sögn
Jóns verið bæði skemmtilegt, læra-
dómsríkt og ekki síður viðburðaríkt.
Kórinn hefur ferðast mjög mikið,
bæði innanlands og til fjölmargra
landa, svo sem ísraels, Egyptalands,
Kanada,
norðurland-
anna, auk
Grænlands og
Færeyja. Þá
má ekki
gleyma Vest-
mannaeyjum.
í þessum
ferðum hefur
Jón verið sem
undirleikari
ásamt dr.
Tómasi Hig-
gerson og
fleirum sem
lærdómsríkt
hefur verið að kynnast, bæði í venju-
legu kórstarfi og svo við upptökur á
hljómdiskum kórsins. Það er ekki
alltaf heppilegt fyrir bónda að vera
mikið á ferðalögum eins og starf
með vinsælum kór sem Heimi út-
heimtir. Því hefur ekki alltaf verið
hægt að fórna þeim tíma sem þarf
með kórnum. Þegar Jón er inntur
nánar eftir hvenær spilamennska á
dansleikjum hafi hafist, segist hann
hafa leikið með ýmsum danshljóm-
sveitum, allt frá 12 ára aldri og þá
mikið með Stefáni bróður sínum, en
margir aðrir hafi einnig komið þar
við sögu. Síðustu tvö ár hefur svo
Jón aflað sér meiri þekkingar í tón-
listinni og sótt nám hjá bróðir sínum
Stefáni, yfirkennara Tónlistarskóla
Skagafjarðar og jafnframt stjórnanda
karlakórsins Heimis. Skemmtana-
hald hefur tekið þó nokkrum breyt-
ingum í tímans rás, og er ekki laust
við að gleðin áður fyrr hafi haft öllu
meiri innihald segir Jón að lokum í
þessu stutta spjalli við blaðið.
í nokkur ár hefur Jón verið félagi í
Harmonikufélagi Skagafjarðar og nú
jafnframt fulltrúi félags síns innan
S.Í.H.U.
Hann er giftur Sigríði Garðarsdótt-
ur, frá Neðra Ási í Hjaltadal og eiga
þau þrjú börn.
H.H.
iónusta
'psetnlng og viógeröir. ipic-up,
1 tidi og magnarakerfum fyrir
monikur. Einui
hágœðáíhiutr,, vöt^du
hish
T7-- -• _____• ■"... | rj—1 -tnrrrr-nr- s
S OIafsson & Co. ehf. hannar og framleiðir A VOtecli.
Alþjóðlega Frosini-félagið
Eftirtöldum aðilum eru fœrðar sérstakar þakkir fyrir veittan stuðning.
Samband íslenskra Harmonikuunnenda. - Félag Harmonikuunnenda Reykjavík.
Samvinnufélagið Hreyfill Fellsmúla 26.
Lýsing H.F. Suðurlandsbraut 22.
Hljóðfœraverslun Leifs H. Magnússonar Gullteig 6.
Lista- og menningarráð Kópavogskaupstaðar.
Fulltrúi alþjóðlega Frosinifélagssins á íslandi
Hilmar Hjartarsson S: 5656385
5