Harmoníkan - 01.10.1999, Blaðsíða 6

Harmoníkan - 01.10.1999, Blaðsíða 6
A Dussabar hljómar harmonikan Eitt fallegt vorkvöld í byrjun apríl ókum við út úr höfuðborginni um Mosfellsbæ og Kjalarnes, stungum okkur undir Hvalfjörðinn með stefnu á Borgarnes. Okkur hafði borist til eyrna að gamall félagi úr harmoniku bransan- um léki á krá þar umrætt kvöld og hugðumst í því skyni kynna okkur krármenningu Borgnesinga við harmonikuleik og söng, þetta föstu- dagskvöld. Harmonikuleikarinn sem heitir Ingimar Einarsson hefur leikið á harmoniku frá 12 ára aldri en þá eignaðist hann 24 bassa Scandali. ingimar er fæddur 5.ágúst 1935 í Kjarnholtum í Biskupstungum en býr nú á Hvanneyri. Eins og áður segir stefndi hugur hans þegar á unglingárum til harmonikunnar. Ingimar starfaði mikið með Aðal- steini Símonarsyni heitnum að stofn- un H.U.V. síðar fyrsta formanni fé- lagsins og sjálfur var hann formaður þess félags (1985-1988). Umrædd krá í Borgarnesi heitir í raun Mat- stofan, en er ávallt nefnd Dússabar í höfuð eiganda síns sem í fyrrahaust fékk Ingimar til að leika fyrir gesti og gangandi annað hvert föstudags- kvöld með svo góðum árangri að oft er fullt út úr dyrum síðan. Tónlistar- svið Ingimars spannar yfir allt mögu- legt, hann syngur og leikur lög úr söngleikjum, ítalskar aríur, íslenska slagara, jass m. meiru, að ógleymd- um óskalögum gestanna. Ingimar var í harmonikunámi í 5 vetur m.a. hjá Ólafi Guðmundssyni og Gretti Björnssyni. Jafnframt hef- ur hann stundað söngnám í 6 vetur ásamt tónheyrn og tók 3 stig í söng- Ingimar Einarsson á Dússabar, þegar hvíld gafst milli laga. náminu í hitteðfyrra hjá Dagrúnu Hjartadóttur við tónlistarskólann í Borgarnesi. í auglýsingu frá Dússabar stend- ur! „Gleðigjafinn Ingimar spilar á harmonikuna föstudagskvöld frá 22:00 til 02:00. Við fjögur sem rennd- um uppeftir umrætt kvöld getum tekið undir það að tónlistarflutning- ur Ingimars var ánægjulegur og skóp góða stemmningu enda sýnilegt að fólk er ánægt með harmonikuleik án mögnunar og líður vel að geta rætt málin við Ijúfa tóna. Ég læt fylgja með greininni ljóð samið af Sveinbirni Eyjólfssyni sem hann hefur tileinkað Dússabar og Ingimar við lag „ Ég bíð við bláan sæ.“ Vegalengdirnar skruppu sam- an við að geta smeygt sér undir öld- ur Hvalfjarðarins og að geta brugðið sér bæjarleið eina kvöldstund eins og í Borgarnes er ekkert stórmál lengur, aðeins smá spölur, þegar ánægjan er annars vegar. H.H. Á Dússabar Lag: Ég bíð við bláan sœ Texti: Sveinbjörn Eyjólfsson í Borgarnes'i er bar það er bísna gaman þar þegar stemmingu í stelpurnar nær stuðkarlinn Ingimar. Já dátt er á Dússabar og dreymandi stúlkurnar Dússabar, Dússabar. Hvergi betri er bjórinn en á barnum hjá Dússa í kvöld. Og hér verður kátur kór í kvöld verður gleðin við völd. Og ég dett inná Dúddabar og dembi í mig kollu þar. Þegar dreymandi dömurnar þar dansa með Ingimar. Já dátt er á Dússabar og dýrindist veitingar. Dússabar, Dússabar. Nýr formaður S.Í.H.U. Á aðaðlfundi Sambands ís- lenskra harmonikuunnenda í Varmahlíð 23. september 1999, gaf Sigrún Bjarnadóttir ekki kost á sér til endurkjörs. Hún hafði gegnt embætti formanns S.Í.H.U. frá 20.júní 1996 og var fimmti formað- ur sambandsins frá upphafi. Nýr formaður var kosinn Jó- hannes Jónsson formaður F.H.U.E. Hann mun sinna báðum þessum embættum fyrst um sinn. Jóhann- es var kosinn einróma á fundinum. Hinn nýi formaður er vel þekktur innan raða harmonikuunnenda og þaulkunnugur starfinu í landinu. Ég vonast til að geta kynnt Jóhann- es nánar í næsta blaði en óska hon- um nú til hamingju með þennan nýja titil, enn og aftur. Þá vil ég nota tækifærið og þakka Sigrúnu Bjarnadóttur fyrir samstarf liðinna ára. Hún hefur verið einlægur stuðningsmaður þessa blaðs og einskis látið ófreist- að að auglýsa það innan raða harmonikuunnenda í landinu, hafðu þökk. Útgefandi 6

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.