Harmoníkan - 01.10.1999, Síða 8
sumar á síld og hafði þá harmonik-
una oft meðferðis og spilaði m.a. út í
Grímsey og Flatey á Skjálfanda. í
Flatey um Verslunarmannahelgina
eru sérstök böll. Einu sinni spilaði
ég þar með Stefáni Þórissyni þá
helgi. Það komu hreinlega allir sem
áttu hús í eyjunni og gestir þeirra til
að taka þátt í dansinum. Einstök
upplifun sagði Sigurður í lok sam-
talsins.
Sigurður Indriðason hefur tvisvar
sinnum verið formaður F.H.U.E. og
gjaldkeri félagsins í 2 ár. Gjaldkeri
S.Í.H.U. um tíma og nú varaformaður
sambandsins, ásamt að vera fulltrúi
félags síns innan S.Í.H.U. í nokkur ár.
Sigurður var giftur Rósu Kristínu
Jónsdóttur frá Akureyri og áttu þau
3 börn.
Sigurður missti konu sína í októ-
ber 1995. Hún studdi mann sinn
dyggilega í öllu þessu starfi og var
alltaf með.
Ég þakka Sigurði fyrir samtalið
sem hefur að geyma brot úr lífi
manns er hefur áhugamál og nýtur
þess að lifa lífinu á jákvæðan hátt þó
brotið hafi á.
Að síðustu datt mér til hugar að
spyrja einn góðan vin Sigurðar þeirr-
ar spurningar hvernig hann teldi
best að lýsa honum ? Hann svaraði
um hæl. Sigurður er mikill sóma-
maður og pottþéttur öndvegis ná-
ungi! H.H.
T ónskáldakynning
Oliver Guðmundsson fæddist í
Ólafsvík 10. janúar 1908. Þó Ólsarar
væru frægastir á þeim tíma fyrir að
slást við Sandara áttu þeir sína and-
ans menn, ekki síður er aðrir og einn
þeirra var Guðmundur Guðjónsson,
faðir Olivers, en auk þess að vera
skósmiður í þessu sjávarþorpi var
hann kikjuorganisti, Undir hans
leiðssögn tók Oliver fyrstu skrefin í
sínu tónlistarnámi. Hann lærði að
lesa nótur og leika á orgel og harm-
oniku, en þetta átti eftir að verða
honum drjúgt veganesti alla ævi.
Þegar hann var um fermingu flutti
fjölskyldan til Reykjavíkur og þar
starfaði hann upp frá því.
Oliver var ekki gamall þegar
fyrstu tónsmíðarnar urðu til. Aðeins
fimmtán ára samdi hann til dæmis
gullfallegan vals. Mörgum árum
seinna varð svo til ljóð, sem hæfði
þessu hugljúfa lagi, sem heitir síðan
„Hvar ertu vina.?“
Oliver varð fyrstur íslendinga til
að leika á harmoniku í útvarp hér-
lendis, stuttu eftir 1930, sem bendir
til að hann hafi notið mikils álits
sem hljóðfæraleikari. Á þessum
árum varð hinn svokallaði enski vals
mjög vinsæll dans. Upphaflega varð
hann til í Boston í Bandaríkjunum,
sem arftaki Vínarvalsins, en hingað
barst hann frá Englandi og varð að-
Oliver Guðmundsson
Friðjón Hallgrímsson tók saman
Við mánans milda Ijós
Einar Friðriksson
Oliver Guðmundsson
q i Am
Copyrighl 1978 by Lára Einarsdóttir, Reykjavik.
8