Harmoníkan - 01.10.1999, Page 12
/ hljómsueit HV er Ester Rögrwaldsdóttir
frá Hnífsdal. Hún leyfði okkur að heyra í
sínum einleik Ungverskan dans nr. 5 eftir
J.Brahms.
Guðbjörg Helga Einarsdóttir frá Egilsstaða-
koti Villingarholtshreppi lék í hljómsveit
FHSN og vakti mikla athygli fyrir út-
geislandi framkomu sína, auk þess sem
hljómsveitin öll í heild sinni gerði storm-
andi lukku fyrir fjör og frumleika.
Tríó íhljómsueit H.F.Þ. Frá vinstri Birgitta Elín Halldórsdóttir og lengst til hœgri systir
hennar Hanna María. Fyrir miðju erSigrún Pálsdóttir.
Vorgleði Braga Hlíðberg hljómaði frá
yngsta meðlim hljómsveitar HV Helgu
Kristbjörgu Guðmundsdóttur frá ísafirði.
Áhorfendur stóðu upp við mikinn fögnuð
og klöppuðu.
Ingvar Alfreðsson úr hljómsveit HV frá
ísafirði lék líka einleik, Rúsneska þjóð-
lagið „ Tveir gítarar".
Næsta landsmót
S.Í.H.U.
Fyrsta landsmót nýrrar aldar
verður haldið af Harmonikufélagi
Vestfjarða árið 2002 á ísafirði. Ásgeir
S. Sigurðsson núverandi formaður
H.V. gerði þetta kunnugt á síðasta
landsmóti er hann tók við landsam-
bandsfánanum úr hendi Sigrúnar
Bjarnadóttur á Siglufirði í sumar. Ás-
geir minnti á hina stórbrotnu nátt-
úru Vestfjarða og ásamt fleiru í því
sambandi. Það er mikið tilhlökkun-
arefni að áttunda landsmót sam-
bandsins verði á
Vestfjörðum. Vest-
firðir og sér í lagi ísa-
fjörður er löngu
kunnur fyrir langt og
dugmikið starf varð-
andi harmonikunám.
Mikið og árangurs-
ríkt tónlistarlíf um
áratugaskeið hefur
og þekkst vestra um
alla hina dreifðu
fjallaveröld hvort
heldur er inn til dala
eða út til stranda.
H.H.
Sigrún Bjarnadóttir afhendir hér forsvarsmanni fyrir nœsta
landsmót Ásgeiri S. Sigurðssyni formanni HV, landsam-
bandsfánann við setningu mótsins á Siglufirði. Fyrir aftan
Sigrúnu sést hinn frábœri kynnir og framkvœmdarstjóri sem
öllu kom til skila á tónleikunum á skilmerkilegan hátt,
Theodor Júlíusson.
12