Harmoníkan - 01.10.1999, Blaðsíða 13

Harmoníkan - 01.10.1999, Blaðsíða 13
Á rölti meðal landsmótsgesta Mig langaði að heyra raddir fólks á mótinu, reyna aðeins að kanna hugþess gangvart ýmsu. Því brá ég mér á stjá meðal fólksins vopnað■ ur penna og myndavél ásamt smá hleðslu af stöðluðum spurningum. Jónína Einarsdóttir, Hornafirði Jónína er 27 ára gömul frá Horna- firði. Hennar hljóðfæri hefur þar til fyrir nokkru verið píanóið. Hún sagðist vera nýbyrjuð að leika á harmoniku í hljómsveit Harmoniku- félags Hornafjarðar. Það hefði strax virkað vel á sig og virtist mjög áhugavert. Landsmótið á Siglufirði væri það fyrsta sem hún tæki þátt í. Stemmningin væri góð og mjög vel staðið að öllu. Hún bætti við með áherslu (topp skipulag). Hana sagð- ist langa að kynnast Siglufirði betur við fyrsta tækifæri. Bragi Hlíðberg, Garðabæ „Ég er ánægður með framvindu mála hér á Siglufirði. Fólkið er vin- samlegt, finnur samkennd og sýnir hvert öðru tillitssemi. Skipulag hér er gott, allt rennur áfram. Það eru of mörg lög á dagskrá stórra hljóm- sveita, 3- 4 tímar of mikið fyrir tón- leika. Hljómsveitir ættu að velja færri lög, taka einungis topp æfðu lögin, í mesta lagi þrjú lög. Kynnirinn var góður. Heyrast hefði mátt meira um bakgrunn þessa alls. Innkoma á svið stórkost- lega fullkomin, rann áfram og það að meiga sitja við borð eins og hér hreint frábært. Jákvætt að geta keypt veitingar og hvaðeina á tón- leikunum, það truflaði heldur ekki neitt. Gaman að sjá unga fólkið vera komið með í miklum mæli, nú fær það tilsögn frá upphafi sem hlýtur að skapa raunverulega tilfinningu fyrir þessu.“ Hvað með gæðamat? „Besti búningur á hljómsveit var frá Siglufirði og besta hljómsveitin tví- mælalaust Kvintettinn frá Akureyri.“ „Siglufjörður virkar vel á mann, allur þessi skari fólks, umhverfið sterkt og öðruvísi. Ég hefði ekkert á móti því að sjá önnur hljóðfæri með hljómsveitunum,“ sagði Bragi í lok- in. Guðrún Eyjólfsdóttir, ísafirði „Ég er ánægð með mót og veður- far, nánast sátt við allt. Gaman að fylgjast með samheldni fólksins og þróuninni. Hljómsveitarspil er á uppleið, Siglfirðingar byrjuðu mótið skemmtilega, létt og gott lagaval. Eins var líflegt lagaval Vestlendinga og ísfirðinga. Ungt fólk er mjög mikil- vægt inn í þetta starf, mér fannst það þó vanta enn inn í sumar hljóm- sveitir. Þetta er samt að koma og ég tel mikilvægt að foreldrarnir fylgi börnunum í þessu öllu.“ Óánægð með eitthvað á mótinu?“ Fannst óneitanlega vanta í upphafi kynninga að minnst væri á þróun harmonikunnar, árangur náms og annað frá byrjun félagsstarfsins í Iandinu." Heimur Harmonikunnar? „Mér fellur þátturinn nokkuð vel, fellur þó sígild harmonikutónlist mun betur en jass!“ Blaðið harmon- ikan? „Blaðið er nauðsyn það fer ekki milli mála!“ Valdimar Sólbergsson, Akranesi „Mótið er búið að vera mjög gott, allt gekk eins og smurð vél, mikil framför hjá hljómsveitum almennt. Ákaflega gaman að sjá allt þetta unga fólk sem gerði reglulega góða hluti. Það má rekja beint út frá hinni miklu vinnu tónlistarskólanna í harmonikukennslu. Ég var mjög undrandi á því hve þeim þætti voru gerð lítil skil og hól til kennara og ungmenna í harmonikukennslu vant- aði alveg. Og enn varð ég undrandi að sjá hinum stórefnilega Matthíasi Kormákssyni stillt upp við vegg á síldarplaninu, að spila í jökulkulda en koma ekki fram á tónleikunum í samkomuhúsinu. Nauðsynlegt er að unga fólkið fái að heyra hvers virði það er. Landsambandið þarf að beita sér fyrir að fá færa kennara að utan til að koma til móts við það stóra 13

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.