Harmonikublaðið - 01.05.2008, Page 8
Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð
IHi Ú'él ic & ú & W9§WK~mW ifif
Dagurinn gekk vel, það var stundvís-
lega byrjað á dagskránni sem hófst kl.
14:00 með leik ungra harmonikuleiara
sem sýndu snilli sína. Að því loknu var
gert kaffihlé. Gestir fengu sér kaffi sem
félagskonur ofl. reiddu fram, m.a. bak-
aðarvöfflurmeð rjóma ogtilheyrandi auk
hlaðborðs. Að því loknu tók stórsveitin
sig til og lékfimm eða sex lög undir dyggri
stjórn Roars Kvam. Haft var á orði að stór-
Fréttir afdegi harmonikunnar
sveitin hafi aldrei verið betri og vilja
menn þakka það mjög góðum stjórn-
anda, Roari Kvam ásamt þrautseygju og
dugnaði stórsveitarmanna. Það verður
gaman að sjá hvert framhaldið verður í
sumar, fram að landsmótinu sem verður í
Keflavík á Suðurnesjum.
Dagskránni lauk um kl. 16:30 og um
kvöldið var svo dansleikur í Lóni. Þar léku
fyrrir dansi Haukur Ingimars og með hon-
um Ingimar Harðar á trommur og Grímur
á Rauðá á bassa. Síðan kom hljómsveit
Svanhildar og þá Hörður Kristinsson
ásamt Ingimar ogGrími. Þá kom Afaband-
ið og kláraði ballið.
Tekið efnislega af heimasíðu FHUE:
http://fhue.blogcentral.is/
í kaffhléi.
Stórsveitin og Roar Kvam að kynna lögin.
Harmonikufélag Héraðsbúa - Harmonikudagurinn 3. maí 2008
Harmonikudagurinn hjá H.F.H. fór af stað
um kl. 14.00 með því að nokkrir félagar
fóru í verslanir og stofnanir á Egilsstöð-
um og léku þar fyrir gesti og gangandi.
Kl. 15:00. hófust svo tónleikar í Fellaskóla.
Fyrst lék Torvald Gjerde nokkur lög með
nemendum sínum sem voru einnig með
einleik. Þá komu tveir dúettar, Jón Sigfús-
son og Gylfi Björnsson og síðan Guttorm-
urSigfússon og Hreinn Halldórsson. Svo
var Baldur Pálsson með einleik. Loks lék
stórsveit H.F.H. þrjú lög undir stjórn Tor-
vald Gjerde sem lék einnig á píanó.
Gestirirnir, sem voru rétt um tveir tugir,
hafa vonandi notið stundarinnar. Seinni
hálfleikurvarsíðan um kvöldið á Arnhóls-
stöðum íSkriðdal en árshátfð H.F.H. hófst
þar kl. 20. Veislustjórinn, Einar Eiríksson,
sá um að fóðra gesti með dagskrá sem
samanstóð af samspili stórsveitar, dúett-
um og einleik auk söngs og skemmtiefnis.
Meðan þessu fór fram nutu gestir, um 50
manns, lambs og meðlætis.
Kl. 22:45 hófst dansleikur þar sem félagar
H.F.H. skiptust á að spila með aðstoð
góðra manna. Sigurður H. Jónsson á
trommur, Andrés Einarsson á gftar og
Þórarinn Rögnvaldsson á bassa. Þessi
árshátfð tókst með ágætum, þó fámenn
væri. Vonandi fjölgar á ný í röðum þeirra
sem setja harmonikutónlistina í öndvegi.