Harmonikublaðið - 01.05.2008, Page 13

Harmonikublaðið - 01.05.2008, Page 13
Pistill um aðalfund S.Í.H.U. 22. september 2007 og þá helgi. <%>■ Aðalfundur Sambands islenskra harm- onikuunnenda S.Í.H.U. var haldinn að Steinsstöðum í Skagafirði 22. september 2007. Um miðjan janúar fengum við bréf frá formanni S.Í.H.U. Jónasi Þór um að Félag harmonikuunnenda í Skagafirði, F.H.S. héldi aðalfundinn þetta árið, enda vorum við búin að falast eftir því. Gengum við fljótlega í að útvega þá að- stöðu sem þarf til þess arna. Ferðaþjón- ustan að Steinsstöðum og félagsheimilið Árgarður, sem er á sama stað, urðu fyrir valinu og dagsetningin ákveðin. Vað nú fundað af og til um framkvæmd helg- arinnar. Allt var þetta komið í fastar skorður í lok ágústmánaðar. Nú fengum við upphring- ingu var það Einar Guð- mundsson Akureyri með beiðni frá Guðmundi Samú- elssyni að fresta þessum fundi um eina viku. Þessari beiðni var hafnað, þar sem þessi helgi er frátekin okkur fyrir löngu og búið að ráð- stafa öðrum heigum hjá ferðaþjónustunni. Þá fengum við aðra upp- hringingu, það var sjálfur formaður S.Í.H.U. Jónas Þór, var hann að leita eftir þvf fyr- ir Guðmund Samúelsson að flýta fundinum um eina viku, þessu gátum við ekki orðið við. Þessar breytingar, sem farið var fram á voru vegna þess að Guðmundur Samú- elsson var með erlendan harmonikuleik- ara, Lars Hólm, sem átti að halda tónleika og vera með námskeið fyrir harmoniku- kennara hérlendis um þessar mundir. sem við héldum að yrðu skemmtilegri fyrir gestina en kvölddagskrá og gam- ansemi sem við vorum með á prjónunum og ætluðum að vera með það kvöldið. Það hefði orðið heldur líflegra fyrir all- flesta gestina sem fundinn sóttu. Lars Holm var svo með námskeið fyrir ein- hverja allan laugardaginn áÁrgarði. Fundurinn var haldinn í sal tengdum ferðaþjónustunni. Eftir aðalfundinn átti ég tal við nokkra fundarmenn og lýstu sumiróánægju með fundinn, sögðu hann hringlandi, léleg fundarstjórn og sífellt verið að breyta prentaðri dagskrá vegna þess að Guðmundur Samúelsson þurfti I þessu símtali var rætt um að þeir kæmu norður og héldu þessa tónleika og námskeið þessa sömu helgi og á sama stað. Þetta þurftum við að skoða. Stjórn S.Í.H.U. talid frá vinstri: Frosti Gunnarsson, jónas Þórjóhannsson form., Adalsteinn ísfjörd, Melkorka Benediktsdóttir, Einar Gudmundsson, Jóhann Bjarnason. Á myndinni vantar Gunnar Kvaran, sem ekki komst á fundinn vegna veikinda. að taka til máls á fundinum og líka vera á námskeiðinu hjá Lars Holm. Ergreinilegt að þetta fór ekki saman að halda nám- skeið á sama tíma og aðalfundinn. Einn fundarmanna sagðist sakna samveru- stundanna á föstudeginum og mætti ekki fyrir nokkurn mun hætta með þær og sagðist ekki hafa áhuga á að sitja í klukkutíma og hlusta á tóndæmi. Þegar farið er frá Sauðárkróki austur yfir Héraðsvötn, förum við yfirum, svo að handan þegarvið komum til baka. Þegar farið var frá veitingunum hjá veitunum, var farið yfirum og farið “Heim að Hólum” í Hjaltadal, þar stoppað í dágóða stund, skoðuð HóladómkirkjaogAuðunnarstofa, með leiðsögn. Þá var haldið í samgöngu- minjasafn Skagafjarðar að Stóragerði, þar var margt að sjá, bílar og ýmis tæki til margra ára aftur í tímann. Þeir sem leið eiga um Skagafjörð ættu ekki að aka framhjá þessu glæsilega safni. Þarna var drukkið kaffi með meðlæti, tekið lagið við undirleik Elínar Jóhannesdóttur. Þá var haldið til baka, ekið fram Skagafjörð að austanverðu fram Blönduhlíð. Þegar farið er úr Blönduhlíð vestur yfir Héraðsvötn í Varmahlíð gildir það sama, við komum að handan. Komið var að ferðaþjónustunni Steins- stöðum á góðum tíma, var þá farið úr ferðafötunum og í samkvæmis pussið, fyrir kvölddagskrána. Kvölddagskráin hófst með matarveislu f Ásgarði, sem hjónin Friðrik Rúnar og Jóhanna, sem reka ferða- þjónustuna að Steinsstöð- um, sáu um og báru fram ásamt aðstoðarfólki, meiri- háttar góður matur, eiga skilið margar stjörnur. Að- alsteinn Isfjörð spilaði dinnertónlist á meðan fólkið var að koma sér í sæti. Jón- as Þór Jóhannsson, formaður S.Í.H.U. ávarpaði samkomuna með nokkrum orð- um og færði Lars Holm gjöf í þakklæt- isskyni. Einnig kom þarna fram í dag- skránni, harmonikuleikarinn Jón Gíslason og fiðluleikarinn Kristín Halla, sem spiluðu saman nokkur lög, fengu þau frábærar undirtektir. Þegar umræðan var komin á þetta plan hefur Guðmundur Samúelsson samband við okkur með fyrirspurnir um þetta. Þar sem Guðmundi Samúelssyni er fullkunn- ugt um hvenær aðalfundir S.Í.H.U. eru haldnir hefði hann átt að koma í veg fyrir að Lars Hólm kæmi á sama tíma. Vorum við búin að velta þessu upp ogniðurstað- an varð sú að við gáfum eftir Árgarð föstudagskvöldið fyrir þessa tónleika, Makar og fylgdarlið fóru að venju í óvissuferð sem tókst með ágætum. Farið var sem leið lá til Sauðárkróks. Fyrsti viðkomustaðurinn var Skagafjarðarveit- ur, sem er dælustöð vatnsveitunnar, þar var heldur betur tekið vel á móti hópnum með léttum veitinum, drykkir úr borholu nr. Þetta og annað bragð úr borholu nr. þetta, o.s.frv. Það þarf enginn að vera hissa á allri þessari sönggleði og skemmtilegheitum í Skagafirði þegar vatnið okkar hefur þennan gæðastuðul. Sá ungi og efnilegi Jón Þorsteinn Reyn- isson spilaði einnig nokkur lög af sinni algjörri snild. Þá spiluðu Þeir Jón Þor- steinn og Aðalsteinn ísfjörð saman og var virkilega gaman að sjá og heyra þá spila saman, þessi léttu og gömlu dans- lög. Dansleikur hófst svo eftir borðhald fram eftir nóttu. 13

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.