Harmonikublaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 15

Harmonikublaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 15
Viðtal við Gísla Brynjólfsson Akureyri tekið 9. febrúar 2008 Komdu sæll Gísli og þakka þér fyrir að koma í viðtal fyrir Harmonikublaðið. Þar sem ég þekki ekki mikið til þín þá geta spurningar mfnar virkað svolftið heimskulegar. Hvenær ertu fæddur og hvar? Ég er fæddur 1. ágúst 1929 á Eskifirði og fer með foreldrum mínum og einum bróð- ur til Vestmannaeyja 1933. Vilbergur, hálfbróðir minn, ólst upp hérna á Byggð- arholti. Ég er búinn að vera einn síðan 1950 en þá drukknaði albróðir minn með Helga VE 333. Hvað varstu lengi íVestmannaeyjum? Ég var þar f 33 ár og eignaðist fjölskyldu, konu, tvær dætur og son. Önnur dætr- anna, sú eldri, er gift Snorra í Betel en hin býr í Bandaríkjunum og sonurinn er bú- settur í Svíþjóð. Eldri dóttir mfn fór f háskólanám, iðjuþjálfun, á Ak- ureyri og flutti ekki til baka. Ég flutti því einnig til Akureyrar. Eins og áður er komið fram var ég í 33 ár í Vestmannaeyjum en þaðan fiutti ég til Hveragerðis og bjó þar í 30 ár. Þá flyst ég aftur til Vest- mannaeyja og bjó þar í 9 ár en flyt svo til Akureyrar í júní 2005. Hvenær og hvernig kynntist þú harmonikunni? Ég var þriggja ára gamall þegar ég man fyrst eftir harmoniku. Það var verið að halda 17. júní hátíð, þarna inni íEskifirði, einhvers staðar rétt innan við þar sem kirkjugarðurinn er f dag, þá var þetta bara tún og villtur gróður. Þarna var dansað í tjaldi og ég man vel eftir þessu. Uppi í túninu var ver- ið að leika úr Skugga Sveini “Á grasa- fjalli” og ég man eftir þegar pabbi labb- aði með mér þarna og grasið náði mér upp í höku. Ég var bara þriggja ára þarna, varð fjögurra ára í águst og svo fórum við til Vestmannaeyja í september. Ég man sérstaklega eftir þessu út af harmonik- unni sem hreif migstrax. Pabbi átti reynd- artvöfalda harmoníku en ég held að hann hafi nú aldrei getað spilað neitt á hana. Það vareinhversem spurði hann eittsinn hvað hann væri að spila og hann svaraði því til að þetta væri nú bara samkomulag- ið þeirra Magnúsar sem hann væri að spila. Einnig man ég frá þjóðhátíð íVestmanna- eyjum, Ifklega 1936 eða 1937, en þar skiptust þeir Eiríkur Jónsson, frá Gerði í Reyðarfirði og Hjálmar Jónsson, frá Döl- um í Vestmannaeyjum á að spila gömlu dansana á tvöfalda nikku. Þarna spilaði Alfreð W Þórðarson, nýju danasana á þriggja kóra nikku. Ég og Árni Árnason spiluðum á kven- félagsskemmtun á tvöfalda nikku. Hann var sá besti á tvöfalda nikku þar til ég hitti Hauk Ingimarsson á Akureyri sem var sá besti. í Vestmannaeyjum átti ég heima, í götu þar sem var töluvert mikið af ungum músíkköntum þá. Það voru sérstaklega tveir bræður þarna Sigurður og Herbert Sveinbjörnssynir sem spiluðu á einfalda nikku. Síðan eignaðist Siggi tvöfalda og svo fór hann í bretavinnuna og kom það- an með píanónikku. Auk þess spiluðu Tómas Ólafsson á orgel og Hilmar Sig- urðsson á mandolfn. Arni úr Eyjum og Gísli málari Ég byrjaði upphaflega á þvf að fá lánaða þýska hnappanikku með norskum grip- um. Hún var dálítið furðuleg smíð, hún var óskaplega þung, bara með víólu rödd og allar lokurnar voru úr kopar. Undir þeim voru gormar og þær toguðust beint upp þegar spilað var. Hún var með fjórum röðum, lítil en alveg ótrúlega þung. Ég byrjaði nú að reyna við þetta og gat nú spilað eitthvað smávegis. Ég var nú bara krakki þá, þetta var rétt upp úr fermingu. Svo eignast ég ekki hljóðfæri fyrr en ég var 17 ára gamall, þá keypti ég nýja þriggja kóra Hagström nikku,i2o bassa. Þetta var mjög fallegt hljóðfæri og ég á mjög góða mynd sem var tekin af mér og Herberti Sveinbjörnssyni, sem ég minnt- ist á áðan. Myndin var tekin á balli þar sem ég er með Hagströminn og Herbert með fjögurra kóra Hohner, þessa með gamla grillinu sem þekktist fyrir stríð og hún var með skiptingu f bassa sem var alveg nýtt fyrir manni. Þetta var alveg upphafið og eins og hjá mörgum þá byrj- ar maður á balli með að spila fimm lög og svo smá eykst það. Já, það var nú þannigað égvar beðinn að koma og spila uppi í Gagnfræðaskóla og ég var varla búinn að Ijúka því þegar ég var sóttur til að spila niður á matstofu þvf aðalspilari bæjarins, Vosi, var forfallaður. Hann varágætis nikkari á þessum tíma en var fyrst og fremst píanó- leikari, úti í Kaupmannahöfn og víðar. Hann spilaði eftir nótum og það var sama hvað var lagt fyrir hann. Þegar ég var að spila þarna með honum í samkomuhúsinu, líkiega fyrir 1946, þá kom þarna farmaður einn, Vestmannaeying- ur, sem var á skipum í siglingum og hann kemur með nótur að lagi og segir “þetta gengur eins og eldur í sinu um Evrópu” og réttir þetta manni sem sat við boogi voogi og spilaði þarna. Hann gat náttúrlega ekkert gert við þetta og sagði “réttu Vosa það” og Vosi setti þetta á píanóið, strauk hök- una og las þetta yfir og svo bara spilaði hann þarna Fiskimannaljóð frá Kaprí, sennilega spilað í fyrsta skipti á íslandi. Hvað varð til þess að þú ákvaðst að harm- onikan væri þitt hljóðfæri? Já, það er nú ekki gott að segja. Ég lenti í lúðrasveit mjög snemma og spilaði á, já nefndu það bara. Ég byrjaði nú sem trommuleikari því það vantaði trommu- leikara. Svo spilaði ég á alt saxafón, ég spilaði á alt horn ogtenor básúnu. Sfðast var ég með trompet lengst af og svo alveg í restina, þegar ég ákvað að hætta, um það leyti sem ég var að búa mig undir að fara, þá spilaði ég á annan klarinett og sópran saxafón. Allt var spilað eftir nót- um. Ég lærði að spila eftir nótum í lúðra- sveitinni. Seinna meir fór ég að spila á 15

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.