Harmonikublaðið - 01.09.2009, Page 9

Harmonikublaðið - 01.09.2009, Page 9
Hilmar og Þorsteinn í árdaga harmonikufélaganna á íslandi urðu tveir ungir menn fljótlega áberandi. Þetta voru þeir Hilmar Hjartarson, pípu- lagnameistari í Garðabæ og Þorsteinn Rúnar Þorsteinsson rakari í Reykjavík. Hilmar Hjartarson er fæddur í Steinstúni í Norðurfirði í Árneshreppi þann 13. apríl 1940. Kynni hans af harmonikunni hófust í barnæsku, en fóstri hans Gísli Guðlaugs- son, bóndi íSteinstúni, lékátvöfalda harm- oniku og var aðal harmonikuleikari sveit- arinnar. Hilmar hóf barnungur að leika á tvöfalda nikku, en skipti fijótlega yfir í þá krómatísku. Hann fiutti suðurtólf ára gam- all. Hilmar er kvæntur Sigríði Sigurðar- dóttur. Þorsteinn RúnarÞorsteinsson erfæddur á Hellissandi þann 13. apríl 1945. Hann fluttist átta ára gamall til Keflavíkur, þar sem hann ólst upp. Hann ólst upp við harm- onikuleik, en móðurbróðir hans var Guðjón Matthíasson. Þorsteinn hóf ungurað leika á harmoniku, þó gítarinn hafi lengst verið hans aðalhljóðfæri. Þorsteinn er kvæntur Ágústu Bárðardóttur. Á vetrum störfuðu þeir félagar með Félagi harmonikuunnenda í Reykjavík og þegar sumraði voru þeir komnir á flakk með fjölskyldurnar. Báðir voru þeir vel kvæntir, konum, sem gátu hugsað sér svipaðan lífstíl. Ekki veit undir- ritaður hvenær blaðaútgáfu bar fyrst á góma, en f október 1986 kom fyrsta harm- onikublaðið á íslandi út. Eitt atriði má ekki gleymast í þessari umfjöllun, nefnilega það að þeir félagar eru fæddir sama daginn, með fimm ára millibili. Mun svo langtogfarsælt samstarf tveggja hrúta vera afar sjaldgæft, enda hvorugur mannýgur, svo orð sé á ger- andi. Samstarfi þeirra lauk ekki fyrr en tíu árum síðar, þegar sfðasta blaðið á þeirra vegum kom útvorið 1996. Þá dró Þorsteinn sig út úr samstarfinu, en Hilmar hélt áfram til vorsins 2001. Þar með lauk merkilegum kafla f sögu harmonikugeirans á íslandi. Útgáfa blaðsins varákaflega góðurvitn- isburður um hugrekki og framsýni hug- sjónamanna, sem sáu aðeins kostina við þetta starf, en gleymdu vandamálunum jafnóðum og þeir höfðu leyst þau. Þeir voru óþreytandi við að afla efnis. Taka viðtöl, þýða erlendar greinar og síðast en ekki sfst, að halda harmonikumót og skrifa um harmonikumót. Þeir voru eins og gráir kettir við að afla áskrifenda, þvf án þeirra væri blaðið andvana fætt. Til voru þeir, sem álitu þetta jafnvel gróðafyrirtæki. Ég er hræddur um að þeir Hilmar og Þorsteinn hafi aldrei þorað að reikna út tímakaupið við þetta. Þetta var hugsjónastarf, sem gat ekki skilað ágóða, íþeim litla heimi sem harmoniku- heimurinn á íslandi var. Þeir voru frum- kvöðlar ísamstarfi við norræna harmoniku- leikara og hafa verið gestir harmonikumóta í Noregi og Svíþjóð. Stjórn Sambands íslenskra harmonikuunnenda ákvað í sumar að heiðra þessa tvo baráttumenn og afhenti Gunnar Kvaran, varaformaður sambandsins, viðurkenningarnar á laug- ardagsdansleik á harmonikumóti F.H.U.R. „Nú er lag“ í Árnesi um verslunarmanna- hetgina. Það að nota þetta tækifæri var ákaflega vel til fundið, enda báðir í stórum góðra vina hópi, sem samfagnaði þeim af heilum huga. FH 9

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.