Harmonikublaðið - 01.09.2009, Qupperneq 15

Harmonikublaðið - 01.09.2009, Qupperneq 15
„Stóð upp til axla í þessu veseni 3 Litið við hjá Jóni Kr. Ólafssyni í Melódíum minninganna arNc Líklega kannast lesendur Harm- onikublaðsins við Jón Kr. Ólafsson, söngfuglinn frá Bíldudal. Hann hefur sungið víðs vegar um landið í meira en hálfa öld, söng með hljómsveitinni Facon á sjöunda áratugnum og hefur sungið inn á margar hljómplötur, ýmist einn eða með öðrum. Jón hefur ekki alltaf bundið bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir og kærir sig kollóttan þó það falli ekki öllum í geð. Hann hefur um langt árabil haldið saman og gert upp eða látið lagfæra margvísleg menningar- verðmæti í umhverfi sínu. í mörgár starfaði hann við að standsetja og lagfæra kirkjugarða, einkum á Vest- fjörðum, en hætti því þegar bak- meiðsli fóru að hrjá hann. Söngurinn hefurverið hans lífog yndi allt frá barnæsku. Hann söng með kirkju- kórnum á Bíldudal og yfirleitt var leitað til hans um einsöng við hátíðleg tækifæri. Hann söng með fjölmörgum hljómsveitum á árum áður en þá, eins og nú, voru þær skammlífar margar hverjar, þó alltaf væri þörfin fyrir hendi. Langlífust varð hljóm- sveitin Facon sem starfaði með litlum hléum lungann úr sjöunda áratugnum og fram á þann áttunda. Með þeirri hljómsveit söng Gamli saxinn og gullplötur ermeðal safnmuna mitt á Vestfjörðum sé að finna tvö tónlistarsöfn sem eiga ekki sinn Ifka nokkurs staðar. Þetta eru Melódíur minning- anna á Bíldudal og harmon- ikusafn Ásgeirs S. Sigurðs- sonará ísafirði, sem vissulega þyrfti að vera aðgengilegt í heild, en er núna að hluta til sýnt í Byggðasafni Vestfjarða á ísafirði. Mig ber að garði Jóns Kr. í húsinu Reynimel á Bíldudal á kyrrlátu ágústkvöldi. Söngv- arinn tekur mér vel og býður mér að ganga inn. Melódíur minninganna er svolítill ævin- týraheimur. Þetta er neðri hæð í húsinu Reynimel, Tjarn- arbraut 5, á Bíldudal, sem áður var skólastjóra- og kennarabústaður en er nú f eigu Jóns. Þarna á neðri hæðinni var áður íbúð og safnið var sett inn í hana lítið breytta. Hvergi er veggpláss látið ónotað. Þarna getur að líta hljómplötur, margar hverjar ófáanlegar og ómetanlegar, myndir og plaköt, fatnað og persónulega muni, hljóðfæri, málverk og fjöldamargt fleira. Við förum einn hring um safnið til upprifjunarogsvo setjumstvið að spjalli á efri hæðinni, ííbúð Jóns, en hún er reyndar safni líkust, því þar eru myndir og munir sem tengjast tónlistarferli Jóns sjálfs og ýmsum tónlistar- og listamönnum, ekki ólíkt því sem er á neðri hæðinni. Fyrst er spurt um addragandann að stofnun safnsins og hvers vegna hann lagði íþetta ævintýri. Þetta var hugmynd sem þróaðist út frá þeirri áráttu minni að halda til haga gömlum munum og minjum og láta mig varða ýmis verðmæti sem aðrir hirtu ekki um eða hentu. Þetta kom t.d. í Ijós þegar ég var kirkjuvörður hér, en þá lá altaristaflan, sem er eftir Þórarin B. Þorláksson, undir skemmdum og ég kom henni til Frank Ponzi, sem þá var nýkominn frá námi, og hann bjargaði henni. Einnig safnaði ég saman og setti upp gögn frá Leikfélaginu Baldri, svo saga þess er sýnileg á spjöldum og sama má segja um tónlistarsöguna hér á staðnum ogfjöldamargt annað sem hérvar að glatast að ég kom því í varðveislu. Ég hafði enga fyrirmynd að þessu safni á sínum tfma og reyndar sagði Þjóðverji sem var hér í sumar að hann hefði atdrei séð neitt þessu líkt og hafði hann þó vfða Söngvarinn kominn inn úr kuldanum ísafnið sitt. Honum á hægri hönd er eitt máiverka hans frá málaratímabilinu, en plötur og myndir í baksýn. Jón Kr. inn á hljómplötu árið 1969, en það var fyrsta hljómplata með danshljómsveit á Vestfjörðum og þótti nokkur upphefð. Þekktasta lag sveitarinnar var lagið Ég er frjáls, sem komst strax á vinsældalista og hefur lifað allt fram á þennan dag, en þar var líka fyrsta og líklega eina lag hljómsveit- arinnarPinkFloyd sem gefið hefurverið út með íslenskum texta ásamt tveimur fal- legum lögum eftirÁstvald Jónsson. Þá hefur Jón Kr. á síðari árum sungið með fjöl- mörgum hljómsveitum og öðrum söngvurum á höfuð- borgarsvæðinu og vfðar. En Jóni er fleira vel gefið en sönglistin. Um nokkurra ára bil málaði hann og eftir hann liggja þó nokkur málverk sem bera honum gott vitni. Hann útilokar ekki að taka upp þann þráð að nýju. Meðal verkefna sem Jóni Kr. voru kær var upptaka á sveitadansleik við fossinn Dynjanda í myndinni Börn nðttúrunnar. í þessu atriði er hann í stóru hlutverki með lagið Tondeleyó, við undirleik Ástvaldar. Þetta var nauðsynlegur inngangur að viðfangsefni þessa greinarkorns, en það er hið einstaka safn Melódíur minninganna, sem Jón setti upp vestur á Bíldudal fyrir tæpum áratug og hefur rekið á eigin spýtur sfðan. Grein- arhöfundur fullyrðir að ein- 15

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.