Harmonikublaðið - 01.12.2011, Side 2

Harmonikublaðið - 01.12.2011, Side 2
Ávarp formanns A Ágæti harmonikuunnandi Þetta er í fyrsta sinn sem ég undirritaður skrifa grein í Harmonikublaðið sem for- maður sambandsins. Ég vil byrja á því að þakka öllum formönnum og fulltrúum aðildarfélaga sambandsins fyrir góðan aðalfund sem haldinn var á vegum Félags harmonikuunnenda við Eyjafjörð íloksept- ember og um leið vil ég þakka fyrir góðan stuðning við mig f kjöri til formanns sam- bandsins. Ég vona að ég eigi eftir að eiga gott samstarf við meðstjórnendur mína og að starf okkar megi verða farsælt á kom- andi starfsári. Einnigvilégvið þetta tæki- færi þakka öllu því góða fólki innan raða F.H.U.E. fyrir frábæran undirbúning og framkvæmd aðalfundarins. Ég held að það sé óhætt að segja að þessi fundur og öll umgjörðin um hann hafi verið fram- kvæmdaraðilum til mikils sóma. Mér fannst þessi aðalfundur einkennast af einhug og að allir sem fundinn sóttu hafi komið tit fundarins með jákvæðni að leiðarljósi, enda voru umræðurá fundinum í þeim anda. Ég vil þakka fráfarandi formanni sam- bandsins, Jónasi Þór Jóhannssyni fyrir frábært starf fyrir sambandið og verður hans minnst fyrir dugnað og óþrjótandi áhuga á þvf sem Samband íslenskra harmonikuunnenda stendur fyrir. Það verður erfitt, en um leið hvetjandi, fyrir mig að reyna að feta í fótspor Jónasar Þórs og leiða sambandið áfram á þeirri braut er hann hefur nú þegar varðað sem for- maður í sexár. Stjórn sambandsins á eftir að sakna góðs vinar, en ég lofa því að ég mun ekki láta hann ífriði, vanti mig góðar hugmyndir eða ráðleggingar. Það bar þó einn skugga á annars góðan aðalfund að það vantaði formenn og fulltrúa frá nokkrum félögum og var þeirra sárt saknað. Það er trú mfn að betur takist til næst og að fulltrúar mæti frá öllum aðild- arfélögum til næsta aðalfundar. Ákomandi starfsári vænti égmikilsafmeð- stjórnendum mfnum, því það er í mörg horn að Ifta og ýmis verkefni sem þarf að leysa. Það er staðreynd að halli var á rekstri sambandsinsá liðnu ári ogvið því þarf að bregðast. Að sjálfsögðu verður efnt til fjáröflunardansleiks á vordögum og leita þarf allra leiða til að finna fjáröflun sem gefur sambandinu auknar tekjur. Stjórnin mun standa við það loforð sem hún gaf á aðalfundi, að allt verði gert til að endurvekja æfingabúðir fyrir börn og ungmenni innan okkar raða ogfinna þeim viðburði góðan stað. Éghefnú þegarsent Verkstæði til alhliða viðgerða á harmonikum að Sóleyjarima 15, Reykjavík. Hafið samband við Guðna í síma 567 0046. Harmonikuþjónusta Guðna öllum formönnum aðildarfélaganna póst og óskað eftir svari frá þeim um hvort þeirra félög séu í stakk búin til að taka þetta verkefni að sér. Ég man það vel hvað ungmennin voru ánægð með æfingabúð- irnarsem haldnarvoru að Reykjum ÍHrúta- firði fyrir nokkrum árum og finnst mér sá staður henta sérstaklega vel fyrir atburð sem þennan. Það er Ijóst f mínum huga að til þess að hægt sé að halda æfingabúðir sem þessar þarf röskan mannskap til verksins og að nauðsynlegt sé að eitt eða fleiri aðildarfélög komi að þessu verki. Útgáfa Harmonikublaðsins hefur gengið vel síðustu árog hefur blaðið staðið undir sér og skilað Iftilsháttar hagnaði undan- farin ár. Þessa velgengni blaðsins má þakka okkur öllum, þeim sem hafa staðið blaðinu næst, þeim sem hafa verið ötulir að skrifa greinar og pistla f blaðið, þeim sem hafa tekið fjölda mynda og sent blaðinu auk fjölda annarra góðra manna og ber að þakka öllu þessu góða fólki fyrir frábærtframlagtil blaðsins. Éghefverið í forsvari fyrir blaðið, verið ritstjóri og ábyrgðarmaður þess. Nú verður breyting á þessu fyrirkomulagi og var ákveðið á síðasta stjórnarfundi að Friðjón Hallgríms- son taki við sem ábyrgðarmaður og rit- stjóri blaðsins um næstu áramót. Melkorka Benediktsdóttir verður áfram í forsvari fyrir peningamál, innheimtu og áskriftarskrá blaðsins. Ég vil bjóða Friðjón velkominn til starfa við blaðið og hef ég lofað að vera honum til halds og trausts. Ljóst er að stjórn og allir þeir er vilja veg blaðsins sem mestan, verða að leggjast á eitt um að fjölga áskrifendum, því það verða atltaf einhver afföll áskrifenda ár hvert. í dag eru áskrifendur 550 og þarf að leggjast á árarnar með að fjölga áskrif- endum. Eflaust gæti ég haldið áfram að telja það upp sem liggur fyrir stjórn, en læt hér staðar munið. í hönd fer hátíð Ijóss og friðar og stutt í að árið 2012 gangi í garð. Ég og kona mín viljum óska öllum harmonikuunnendum nær og fjær gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju harmonikuári. Gunnar Ó. Kvaran, formaður Leiðrétting Beðist er velvirðingar á því að það gleymdist að setja nafn Guðrúnar Guðjónsdóttur undir grein um Harm- onikumessu í Árbæjarkirkju í Holtum í septemberblaði Harmonikublaðsins. 2

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.