Harmonikublaðið - 01.12.2011, Síða 21
frídar fararstjóra) var eitthvað
að spila á trommur en það var
ekki mikið. Oft var bara harmon-
ikan ein á böllunum. Það þótti
þvf mjög gott þegar ég gat
komið og spilað. Ég spilaði á
Bíldudal, á Barðaströnd ílitlum
skúr niðri við sjó, í Örlygshöfn
og vfðar. M.a. spilaði ég með
vini mínum Bjarna í Haga og
mörgum fleirum."
„En svo varð breyting á þínum
högum?“
„Já, ég flutti suður til Reykja-
víkur árið 1959. Fyrst fór ég að
vinna í Hampiðjunni, svo hjá
Júpíter og Mars en sfðan fór ég
að vinna hjá Reykjavíkurborg og
var þar í vinnu f tæp 50 ár.
Það var ekki mikið spilað allra
skemmtanir. Eftir það fór ég að
spila með ýmsum. Ég spilaði í
Garðaholtinu með Gunnari
Parmessyni, í Brautarholti og
Breiðfirðingabúð með Guðjóni
Matthfassyni og líka með Guð-
mundi Finnbjörnssyni, í Hreyf-
ilshúsinu og vfðar með Steina
rakara, Vilhelm Guðmundssyni
og fleirum. Ég hef spilað með
svo mörgum og svo víða, að það
er ekki viðlit að reyna að telja
það allt upp. Ég verð samt til
viðbótar að nefna góðan vin
minn, Guðmund E. Jóhannsson.
Margir þekktu Guðmund, því
hann varoftvið miðasölu ogvið
innganginn á böllum sem harm-
onikuunnendur héldu. Hann var
Ifka í skemmtinefnd félagsins.
Guðmundur spilaði á tvöfalda
endum og hef látið
það duga. Það er
alltaf eitthvað um að
vera, gömludansa-
böll hingað og
þangað um bæinn á
vegum þessara
félaga og ég spila
með þeim báðum.
Ég held að ég hafi
komið á öll landsmót
harmonikuunnenda
sem haldin hafa verið
og líka spilað á þeim
öllum, bæði með
hljómsveitum f dag-
skránni og á böll-
unum. Sama máli
gegnir um sumarhá-
tíðir FHUR í Þrasta-
skógi, Árnesi og
Varmalandi."
Þórir með Rögnu og Karli Höfddal, systkinum sínum
við skakka turninn í Písa 2008
Guðmundur E. jóhannsson og Þórir voru góðir félagar
fyrstu árin hérna. Ég gekk f FÍH
fljótlega eftir að ég kom suður
og hefverið þar síðan. Það varð
ekkert úr því að ég lærði frekar
á trommur. Ég hitti Guðmund
Steingrímsson samt einu sinni,
en það kom ekkert út úr því.
Hann var þá að spila með KK f
Þórskaffi.
Fyrsti maður sem ég spilaði
með í Reykjavík var Ingimar
heitinn Guðjónsson. Hann spil-
aði m.a. með Ásum. Þetta var f
Oddfellowhúsinu á annarri
hæð. Þar voru þá oft böll og
harmoniku. Við spiluðum oft
saman ogvorum góðirfélagar.
Hann fékk heilablóðfall fyrir
nokkrum árum og lamaðist öðru
megin. Hann dósvo fyrirtveimur
árum.“
„Þú hefur spilað mikið á vegum
harmonikufélaganna í Reykja-
vík. Hvert var upphafið að því?“
„Ég var stofnfélagi í Félagi
harmonikuunnenda ÍReykjavfk,
FHUR. Það var Karl Jónatansson
sem stóð fyrir því og var guð-
faðirinn. Félagið var stofnað í
Miðbæjarskólanum
í Reykjavfk 8. sept-
ember 1977 og ég
hefverið íþvífélagi
síðan og mikið
spilað með þeim.
Seinna stofnaði
Kalli líka Harmon-
ikufélag Reykjavíkur
ogéghef líkaspilað
mikið með þeim, en
ég hef alltaf verið
félagsmaður hjá
harmonikuunn-
„Ég man að þegar Sören Brix
kom á landsmótið f Norðfirði þá
var leitað að trommuleikara
sem gæti spilað óæft með
honum. Þú varðst strax fyrir
valinu og leystir það með prýði.
Hefurðu spilað með fleiri
þekktum nikkurum?"
„Já, það gekk ágætlega. Jú, ég
hef spilað með ýmsum. Sig-
mund Delhi, þegar hann kom
hingað, Otto Johansen og Ivar
Thoresen og líka Hávard Stens-
rud í Árnesi, Annette og Kjær
Valentin á landsmótinu í Kefla-
vík. Svo var Dani, Paul Uggeli
og ýmsir fleiri sem ég man ekki
nöfnin á. Svo vil ég líka nefna
Gretti Björnsson og Braga Hlíð-
berg, þá miklu harmonikusnill-
inga. Bragi er að
spila með okkur
ennþá, en Grettir
er því miður far-
inn.“
Ég sá viðurkenn-
ingarskjöl frá
félaginu hans
Þóris á veggjum.
Það elsta er frá
1989, svo silfur-
merki 1997 og
hann var gerður
að heiðursfélaga
FHUR árið 2008. Þessi skjöl
segja sfna sögu. Ég fæ Þóri til
að spenna á sig rauðu Serenelli
harmonikuna og smelli af
honum mynd. Hann lætur lítið
yfir kunnáttunni, en hefur
gaman af harmonikunni.
Nú er Þórir kominn með hita-
könnuna og fína formköku og
við drekkum kaffi við eldhús-
borðið. Þórir lagar mjög gott
kaffi og er hlýr heim að sækja.
Við Þórir höfum spilað í hljóm-
sveit í tfu ár. Það er jólahljóm-
sveit sem er kölluð SÍBS bandið
og við spilum á tveimur, þremur
jólaskemmtunum fyrir hver jól.
Þegar ég leitaði fyrst til Þóris
vorum við bara tveir, en flest
hafa verið fjórtán í bandinu.
Síðastþegarvið Þórirspiluðum
saman uppi í Garðheimum, lá
við að illa færi. Ég gleymdi að
skila trommusettinu niður í
Breiðfirðingabúð f tæka tfð og
ballið þar um kvöldið byrjaði
Þóris- og trommulaust. Honum
var ekki skemmt en hann erfir
aldrei svona hluti.
Næst spilar SÍBS bandið fyrir
Neistann, hjartveik börn, þann
10. des. ogvið hlökkum báðir
til. Við bindum það fastmælum
að ég komi við og sæki hann
tímanlega ásamt settinu, sem
ég lofa að skila aftur á réttum
tíma.
Pétur Bjarnason
Þórir ásamt greinarhöfundi í Ítalíuferð
21