Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Page 4

Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Page 4
4 Frcttir / Fimmtudagur 7. júní 2007 Úr bloggheimum: Eyjamaður vikunnar: Kirkjur bazjarins: Ship ohoj Sjómanna- dagurinn er í dag og hafa hátíðarhöldin staðið yfir um helgina. Hefð- bundin dagskrá var í Friðar- höfn í gær og Daði og Bragi kepptu með sínum liðum í róðrarkeppninni. Einnig keppti Bragi í koddaslag og Daði í lokahlaupi og enduðu þeir báðir í sjónum. Friðrik getur ekki beðið eftir að ná þeim aldri að geta tekið þátt. Um kvöldið var sjómannaballið í Höllinni. Við Adda fórum á það með Guðmundu, Viðari, Siddý og Gunna. Var þetta í fyrsta skipti sem ég fer á þetta ball. Eg hélt að þetta yrði skrall þar sem allir sjómenn væru á perunni, en reyndin var önnur. Frábær skemmtun með fjölda góðra skemmtiatriða. Mörg atriði heimafólks voru framúrskarandi t.d. Lúðrasveit Vestmannaeyja og Verkalýðsins léku með hljómsveitinni Tríkot og atriði með stórsveitinni Obbosí. Beddi á Glófaxa kom svo reglulega upp á svið og söng með öðrum flytjendum og náði alltaf upp stuði. Jarl Sigurgeirs stjómaði hátíðinni með glæsibrag. Og ekki má gleyma matnum frá Gri'mi sem var mjög góður. Og fyrst maður var farinn að taka svona mikinn þátt í hátíðarhöld- unum var eins gott að klára þetta með stæl og fómm við Adda í sjó- mannamessu á sunnudeginum. Þar löggðu tengdaforeldrar mínir blómsveig að minnismerki um látna sjómenn. Eftir heitt kakó á Höfðaveginum var svo farið á Stakkó. En veðrið hefði mátt vera eins og það var um hvítasunnuna. http://www. sjopjohn. com/maggi Sjómannslíf, sjómannslíf, ástir og ævintýr Þar sem ég er ekki í gríðar- legu formi til að skrifa vil ég endurbi rta, blogg til heið- urs sjómanna- deginum. Sjómanna- dagurinn er, eins og nafnið gefur til kynna, til heiðurs þessum hetjum hafsins. Eg tel mig, eða öllu heldur taldi mig, vera hetju hafsins, því einu sinni fór ég á sjó. Sú saga var nú kannski engin frægðarför en ég hef þó reynt. En þetta var fyrir allnokkrum ámm. Ástæðan var auðvitað að afi minn hafði verið alla sína hunda og katta- tíð á sjó. Auðvitað leit ég upp til þessara manna þetta voru svona alvöru karlmenn, þeir kölluðu ekki allt ömmu sína. Þessir menn byrjuðu ekki daginn á því að fá sér Coca Puffs. Lesa síðan á netinu með heitan kaffibolla, hlustandi á Josh Groban. Þessir menn rifu sig á fætur, hentu í sig morgunmatnum sem samanstóð af síld, fiskroði og loðnumjöli en þessu var síðan skolað niður með þorskalýsi. Já þetta em karlar í krapinu, þeir em með sigg á höndum, hraust- mennskan uppmáluð. Á meðan þessir MetroSexual nú- tíma menn bera á sig morgunkrem við rólega Joga músik. Meira á: http://www.blog. central. is/latur Tríkot og lúðró er málið Á skemmtun sjómannaballsins voru skemmtiatriðin fjölmörg og hver önnur betri. Þó var eitt atriði sem sló öll önnur út en það var þegar Tríkot og Lúðró leiddu saman hesta sína. Um var að ræða hljómsveitina Tríkot og blandaða lúðrasveit frá Vest- mannaeyjum og Lúðrasveitar verkalýðsins. Ur varð frábær flutningur gamalla slagara sem náði hámarki með Bohemian Rhapsody. Söngvari og for- sprakki Tríkot er enginn annar en Sæþór Þorbjarnarson, betur þekktur sem Sæþór Vídó og hann er Eyjamaður vikunnar. Nafn: Sæþór (Vídó) Þorbjamarson, má samt víst ekki heita Vídó samkvæmt mannanafnanefnd. Fæðingardagur: 20. júní 1977. Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar. Fjölskylda: Foreldrar mínir em Sæsa Vídó og Bjössi Núma. Systkinin Sigurgeir og Marta María. Svo á ég köttinn Mána. Draumabíllinn: Hmm, mig hefur alltaf langað í einhvers konar blæjubíl. Kannski bara Ferrari eða eitthvað. Uppáhaldsmatur: íslenska lambið klikkar aldrei. Versti matur: Sláturkeppi á ég mjög erfitt með að melta. Uppáhalds vefsíða: www.myspace.is/trikot - tvímælalaust. Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Sú tónlist sem ég spila Sœþór Vídó Þorbjarnason er Eyjamaður vikunnar hverju sinni, ég kemst alltaf í gott skap með gítarinn í hönd. Aðaláhugamál: Tónlist og ljós- myndun. Hvaða mann/konu myndir þú vilja hitta úr mannkynssögunni: Það væri gaman að djamma eina kvöldstund með Bítlunum. Fallegasti staður sem þú hefur komið á: Ég hef enn ekki fundið stað sem toppar Vestmannaeyjar. Uppáhalds íþróttamaður og íþróttalélag: Það myndi vera Júlíus Ingason hjá Lunch Utd., einn af fáum mönnum sem ég næ alltaf að leika á. Ertu hjátrúarfullur: Nei, það held ég ekki. Stundar þú einhverja íþrótt: Maður sparkar í einstaka bolta. En ég veit ekki hvort það kallast að stunda hana. Uppáhaldssjónvarpsefni: Simpsons klikka aldrei. Hvernig kviknaði hugmyndin að Tríkot og Lúðró: Þetta er hugmynd sem ég fékk í kjölfarið á sinfóníuæði íslenskra poppara. Fannst þetta mjög spennandi að fá að spila með svona miklum fjölda af tónlistarmönnum á bakvið sig. Þannig að ég hugsaði bara Sálin og Sinfó, það er nú bara prump. Trikot og Lúðró, það er málið. Hvernig gekk að æfa saman 40 manna stórsveit: Þetta gekk nú bara ótrúlega vel enda valinn maður í hverju rúmi. Má búast við frekara samstarfi: Já, þetta var bara smá tilraun, svona smá sýnishom til að sjá hvernig gengi að samræma þetta og hvemig viðbrögðin yrðu hjá fólki. Planið er að halda stóra tónleika í vetur og ég held að við komumst ekkert upp með að annað en að slá til, miðað við þau viðbrögð sem við fengum í Höllinni á laugardaginn. Eitthvað að lokum: Já, mig langar fyrir hönd Tríkot að nota tækifærið og þakka Obba, Lúðrasveit Vestmannaeyja og Lúðrasveit Verkalýðsins fyrir að vera til í að hellast í þetta verkefni. Og síðast en ekki síst Þóri Olafssyni sem lék á píanó með okkur, þar er snillingur á ferð. Landakirkja Laugardagur 9. júní. Kl. 14.00. Útför Garðars Sigurjónssonar. Sunnudagur 10. júni. Kl. 11.00. Guðsþjónusta. Kór Landakirkju syngur. Orgelleikari er Rósa Guðmundsdóttir. Sr. Guðmundur Öm prédikar og þjónar fyrir altari. Hvítasunnukirkjan Fimmtudagur 7 júní 20:30 Biblíulestur um grunn- kenningar kristinnar trúar. Föstudagur 8. júní 20:00 Unglingasamvera. Laugardagur 9. júní 20:30 Bænastund í umsjá Lilju Óskarsdóttir. Sunnudagur 10. júní 13:00 Samkoma í umsjá Hafþórs Viðarssonar. Til frelsis frelsaði Kristur oss. (Galatabréfið 5:1 a) Bænastundir kl 07:30 alla virka daga. Aðventkirkjan Laugardagur 10. júní kl. 10.00 Biblíurannsókn. Mánudagur 11. júní Kl. 13.00 Útför Þórðar Stefánssonar. Matgazðingur vikunnar: Kótelettur og Mars Mousse í eftirrétt Eg vil þakka honum Óðni kærlega fyrir áskorunina. Eg ætla að bjóða upp á kótel- ettur sem eru mjög vinsælar hjá mér og mínum. Og svo dýrindis eftirrétt. Kótelettur með tirísyrjonum 10-12 kótelettur 4 msk. hveiti 2 tsk. salt 2 tsk. karrý Sósan 3 dl tómatsósa 3 dl vatn 1 -2 dl rjómi Hveiti, salti og karrý blandað saman. Kótelett- unum velt upp úr því og svo steiktar vel á pönnu upp úr olíu. Tómatsósan og vatnið sett út á pönnuna. Sjóða kjötið í smá stund á pönnunni. Soðin hrísgrjón sett í eldfast mót. Kóteletturnar settar ofan á hrísgrjónin. Rjómanum hellt á pön- nuna saman við tómatsósuna og vatnið og suðan Kolbrún Stella Karlsdóttir er matgœðingur vikunnar látin koma upp. Sósunni svo hellt yfir kótelett- umar og hrísgrjónin. Berist fram með fersku salati. Mars Mousse 4 Mars súkkulaðistykki 1/2 1 rjómi léttþeyttur 2 eggjahvítur 2 msk. mjólk Skerið Marsstykkin í meðalstóra bita og setjið í pott með 2 msk. af mjólk. Bræðið súkkulaðið við vægan hita. Takið pottinn þá af hellunni. Látið standa í 10-15 mín. Hellið blöndunni því næst í skál. Þeytið rjómann og blandið honum varlega saman við súkkulaðið. Stífþeytið þá eggjahvíturnar og blandið þeim varlega við súkkulaðirjómann. Sett í fallegar skálar og inn í ísskáp eða frysti þar til blandan er orðin stíf. Skreytið með þeytt- um rjóma, Marsbitum, Maltesers kúlum eða súkkulaðispónum. Eg œtla að skora á stórvinkonu mína, hana Ingu Magg. Veit að Malli er snillingur í eldhúsinu um borð í Gandí svo nú reynir á Ingu. Handverkssýning og kaffisala: Boccia: Vel heppnaður dagur á Hraunbúðum Eldri borgarar unnu Hin árlega handverkssýning og kaffisala var haldin á Hraunbúðum á dögunum. Það eru starfsmenn Hraun- búða og aðstandendur heimilisfólksins sem hafa veg og vanda af deginum sem var vel sóttur í ár eins og undan- farin ár. Allur ágóði kaffisölunnar rennur til kaupa á tækjum til að létta heimilisfólkinu lífið. Á myndinni til vinstri eru þær Hanna og Anna að sýna afrakstur handa- vinnu heimilismanna í vetur. SVANA fær sér af glæsilegu hlaðborðinu en Jói athugar úrvalið á meðan. íþróttafélagið Ægir skoraði á eldri borgara í boccia- keppni og var keppnin haldin í húsnæði þeirra, gamla ísfélaginu. Bæði yngri og eldri hópur Ægis tók þátt í keppninni og höfðu eldri borgaramir betur að þessu sinni. Mikil stemmning myndaðist í liðunum og var keppnisandinn greinilega til staðar. I leikslok buðu eldri borgarar svo upp á kökur og gos.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.