Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Síða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Síða 14
14 Frcttif / Fimmtudagur 7. júní 2007 HEIÐA BJÖRG slappar af á æskustöðvunum í Eyjum. Hún var önnur tveggja kvenna sem hóf störf hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins árið 2001, wwm Heiða Björg hefur rofið mörg karlavígin eins og kemur fram í viðtali hennar við Guðbjö^u Sigurgeirsdóttur: Heppin að hafa fæðst á Islandi >segir hún eftir að hafa starfað við friðargæslu á flugvellinum í Kabúl í Afganistan -Hlutir, sem okkur finnst sjálfsagðir, eru það ekki í þessu stríðshrjáða landi Sl VIÐTflL I Guðbjörg Sigurgeirsdóttir Jn gudbjorg@eyjafrettir.is Það er óhætt að segja að Heiða Björg Ingadóttir fari óhefðbundnar leiðir í lífinu. Hún er eina konan sem starfar í útkallsliði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, var fyrsta konan sem fékk inngöngu í Flugbjörgunarsveitina og nú er hún nýkomin frá Kabúl þar sem hún starfaði við friðargæslu. Heiða er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum, dóttir Inga Júlíussonar og Guðlaug- ar Björgólfs, en fluttist til Reykja- víkur 1992 og hefur búið þar síðan. Fallhlífarstökkið gerði útslagið Heiða segir margar ástæður vera fyrir því að hún flutti á fastalandið ekki hvað síst að flestir úr vina- hópnum voru fluttir frá Eyjum. „Ég hafði lokið tveimur árum í Framhaldsskólanum í Vestmanna- eyjum þegar ég ákvað í sumarfríi að fara til Þýskalands. Ég ætlaði að vera í þrjár vikur en var í sex mánuði, mest að leika mér við að spila fótbolta og það var virkilega gaman. Þegar ég kom til baka voru flestar vinkonur mínar famar í skóla upp á land og það varð úr að ég fór líka,“ segir Heiða sem hefur haft það hlutverk að fella hvert karlavígið á eftir öðru þó svo að það hafi ekki verið beinn ásetn- ingur. „Ég gekk í Flugbjörgunarsveitina 1995 og var önnur tveggja kvenna sem fékk inngöngu í sveitina. Þannig að ég er í því að skemma karlavígin þó það sé ekki gert með ásetningi heldur fellur starfsemi í þessum geira meira að mínu áhuga- sviði. Ég ætlaði í aðra björgunar- sveit en þá var auglýstur kynning- arfundur hjá Flugbjörgunarsveitinni sem ég ákvað að fara á. Ég hafði ekki hugmynd um að þeir tækju ekki inn konur. Það sem gerði útslagið var fallhlífarstökkið og það var ástæðan fyrir því að ég vildi komast þar inn. Það er svolítið fyndið að ég hef aldrei stokkið á vegum sveitarinnar en hef stundað fallhlífarstökk á öðrum vettvangi." Eina konan í Slökkviliði höfuðborgarinnar Heiða segir að starfsemi Elugbjörg- unarsveitarinnar hafi orðið til þess að hún sótti um í slökkviliðinu. „Ég hafði farið í gegnum öll nám- skeið í skyndihjálp hjá Flugbjörg- unarsveitinni sem hægt var og starfaði mikið með sjúkrahópnum og þar kviknaði áhuginn á sjúkra- flutningunum og slökkviliðinu í framhaldinu. Svo hef ég alltaf verið eitthvað í íþróttum eins og fótbolta og handbolta í Eyjum en á þessum tíma var ég að æfa bæði karate og júdó og því í ágætis formi.“ Heiða var önnur tveggja kvenna sem hóf störf hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins árið 2001 „Við vorum tvær sem byrjuðum á sama tíma, sú sem kom inn um leið og ég er hætt og er aftur farin að starfa hjá lögreglunni. Það eru nokkrar konur starfandi í slökkvi- liðinu á Keflavíkurvelli og ein er byrjuð að vinna hjá Slökkviliði Akureyrar," segir Heiða þegar hún er spurð hvort það séu ekki fáar konur við slökkvistörf enda er hún eina konan sem er starfandi á öllu höfuðborgarsvæðinu. „Við vorum fyrstu konurnar sem hófum störf hjá Slökkviliði höfuð- borgarsvæðisins en þá þegar voru einhverjar konur komnar til starfa á Keflavíkurvelli. Það er talsverður munur á starfsemi þessara liða því við sjáum um alla sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu. “ Töldu að við myndum skemma móralinn Hvernig var þér tekið afkörlunum sem vorufyrir íslökkviliðinu? „Að mestu leyti var mér vel tekið. Það var ákveðinn hópur innan liðsins sem vildi ekki fá konur í starfið en flestir voru mjög al- mennilegir. Það eru alltaf einhverjir sem eru á móti breytingum, sumir töldu að við myndum skemma móralinn og einhverjir töldu að við gætum ekki sinnt því starfi sem þeir voru að sinna. Ég fann að það var horft yfir öxlina á okkur konunum og jafnvel beðið eftir því að við klúðruðum einhverju en þetta er orðið fínt í dag. Það eru gerðar kröfur á starfsmennina, við förum í þrekpróf einu sinni á ári og við þurfum að ná prófinu til að halda starfmu. Æftngar eru partur af vinnunni og þess utan erum við að æfa í okkar frítíma eins og gengur og gerist. Það er nauðsyn- legt að hafa gott þrek, bæði við reykköfun og í sjúkraflutningum þarftu að lyfta þungu. Hentaði ekki að kona talaði við þorps- foringjann Heiða fór svo út á vegum ICRU 20. febrúar sem er friðargæsla á vegum Islands og lýtur að friðargæslu í Afganistan og fleiri verkefnum. „Ahugi minn á þessu verkefni vaknaði fyrir tveimur árum. Þá var samningur í gangi milli utanrikis- ráðuneytis og slökkviliðsins en liðið skaffaði slökkviliðsmenn til starfa í Kabúl. Ég sótti um en komst ekki að eins og margir aðrir slökkviliðsmenn. Þá kom annað verkefni sem mér fannst spennandi en þá voru menn sendir í afskekkt fjallahéruð á breyttum jeppum en oft er ekki hægt að komast öðruvísi í þessi þorp. Þessi hópur vinnur svo með þróunarfulltrúa og saman meta þau hvaða aðstoð þarf helst að veita á viðkomandi stað. í þessu starfi eru ekki bara Islendingar heldur líka fólk frá öðrum þjóðlöndum. Ég fór og talaði við menn í utanríkis- ráðuneytinu en svörin sem ég fékk voru að starfið hentaði ekki fyrir konu.“ Heiða segir skýringuna hafa falist í því að í þessu starfi tala menn yfirleitt við einhvers konar þorps- foringja eða lögreglustjórann á staðnum og það eru alltaf karl- menn. „Það hentaði ekki að kona talaði við þorpsforingjann og ég skildi þetta sjónarmið því á þessu svæði er allt önnur menning og afstaða til kvenna en við eigum að venjast. Hitt er annað mál að mér finnst að konur hefðu átt að vera með í för og þær hefðu þá mögu- lega getað talað við konumar í þorpunum því þá koma fram önnur sjónarmið og þá helst þau sem lúta að fjölskyldunni,“ segir Heiða en hún fékk svo hringingu frá utan- ríkisráðuneytinu og henni boðið að taka að sér starf við flugvöllinn í Kabúl. Aðstoðarmaður yfir- manns á vellinum „Starfið, sem mér bauðst að taka að mér, tengist ekki beint slökkvilið- inu en það voru menn úti frá flug- björgunarsveitinni og þeir bentu á „Við vorum fyrstu konurnar sem hófum störf hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en þá þegar voru einhverjar konur komnar til starfa á Keflavíkurvelli. Það er talsverður munur á starfsemi þessara liða því við sjáum um alla sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu. “

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.