Fréttir - Eyjafréttir - 17.01.2008, Blaðsíða 1
Bílaverkstæðið
BrAGGINN sf.
Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð - Sími 481 3235
Réttingar og sprautun - Sími 481 1535
35. árg. I 3. tbl. I Vestmannaeyjum 17. janúar 2008 I Verð kr. 200 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
Gífurlegt fannfergi hefur verið í Eyjum í vikunni. Fyrst snjóaði á sunnudag en svo kyngdi niður snjó aðfaranótt þriðjudags og lentu margir í
vandræðum vegna þess. Aðeins þiðnaði í gær en samkvæmt spá, má búast við að þessi hvíti gestur sé ekki á förum í næstu bráð. Dráttarvélarnar
hans Gunnars í Lukku tóku á sig alveg nýja mynd í snjókomunni eins og sjá má.
Ferjan Baldur:
Afsláttur í
samræmi
við notkun
Fjörlegir fundir stjórnmálaflokkanna:
Gangarannsóknir, ný stefna
í Skipalyftumálinu og sann-
gjarnari gjaldskrá Herjólfs
-Var meðal þess sem kom fram á fundum stjórnarflokkanna
Þrír stjórnmálaflokkar, stjórnar-
flokkamir Samfylking og Sjálf-
stæðisflokkur og Frjálslyndir, sem
em í stjómarandstöðu með Vinstri
grænum og Framsókn, héldu fundi
hér á fimmtudag, laugardag og
sunnudag. Víða var komið við og
það sem mesta athygli vakti var ný
staða í málum Skipalyftunnar,
loforð fjármálaráðherra um fjár-
magn til að ljúka rannsóknum vegna
ganga og upplýsingar samgöngu-
ráðherra um nýja ferju og hugsan-
lega uppstokkun á fyrirkomulagi
vegna afsláttareininga sem far-
þegum Herjólfs stendur til boða.
Á fundi sjálfstæðismanna mættu
Ámi Mathiesen, fjármálaráðherra,
og þingmennirnir Árni Johnsen,
Kjartan Ólafsson og Björk Guðjóns-
dóttir. Víða var komið við á fund-
inum en mesta athygli vakti hug-
mynd sem Ámi Johnsen kynnti um
það sem hann kallar leið B í
málefnum Skipalyftunnar. Upptöku-
mannvirki hennar eyðilögðust
haustið 2006. Hefur umsókn um
aðkomu rikisins á byggingu á stærri
lyftu verið til umsagnar hjá Eftirlits-
nefnd ESA í Bríissel síðan um mitt
síðasta ár. Ekki sér fyrir endann á
þvi' og sagði Ámi að nú væri komin
upp sú hugmynd að skilja fram-
kvæmdimar að, ramma af 20 metra
sinnum 92 metra kví. Ekkert ætti að
vera því til fyrirstöðu að ríkið styrki
kvína með 60% framlagi.
Sjálf lyftan væri svo aðskilin og
hefur verið leitað til fjögurra
útboðsaðila í Ameríku, Asíu og
Evrópu. í samtali við Fréttir sagði
Ámi að gangi allt að óskum gæti ný
og stærri lyfta verið komin í gagnið
á næsta ári.
Til em peningar í Hafnabótarsjóði
en til að Skipalyftan geti fengið
tjónabætur þarf samþykki frá
Briissel og er Ámi í hópi manna sem
em á leiðinni út til að útskýra stöð-
una.
Ekki vakti síður athygli loforð
Áma, íjármálaráðherra, um að hann
væri tilbúinn að útvega fjármagn, 50
til 60 milljónir sem áætlað er að það
kosti að gera lokarannsóknir á
göngum. Á fundi Samfylkingar-
innar kom fram fyrirspurn hvort von
væri á breytingum á gjaldskrá Herj-
ólfs og afsláttarkjörum sem fást ef
keyptar eru farmiðaeiningar fyrir
rúmar 16.000 krónur.
Lúðvík Bergvinsson sagði að í
athugun væri að íbúar í Vestmanna-
eyjum gætu fengið meiri afslátt en
aðrir. Vonaðist hann til að það
fengist í gegn.
Björgvin G. Sigurðsson, við-
skiptaráðherra, sagði það stefnu
Samfylkingarinnar að gjaldskrá á
sjó væri sambærileg því sem kostar
að fara sömu vegalengd á landi. Það
mál væri komið í ákveðinn farveg.
Breiðafjarðarferjan Baldur er í
áætlunarferðum milli Stykkis-
hólms og Brjánslækjar. Afslátta-
kjör eru í boði af fargjöldum og
fyrirkomulagið var með svipuðu
sniði og tíðkast með Herjólfi.
Farþegar keyptu fyrirfram
ákveðinn fjölda af ferðum og
fengu afslátt í samræmi við það.
Þessu hefur verið breytt og far-
þegar fá afslátt af hverri ferð gegn
framvísum á korti þar sem koma
fram upplýsingar um afsláttarkjör.
„Við vorum upphaflega með af-
sláttarkort sem gáfu 20 til 50%
afslátt en breyttum þessu fyrir-
komulagi því gamla kortakerfið
var þungt í vöfum og farþegar
þurftu að greiða 50 til 60 þúsundir
fyrir kort sem gaf mesta afslátt-
inn,“ sagði Pétur Ágústsson,
framkvæmdastjóri í Stykkishólmi
þegar hann var spurður um
fyrirkomulag við greiðslukerfið
hjá ferjunni Baldri.
„Nú getur fólk keypt fargjald
með afslætti ef þeir framvísa korti
sem við gefum út og þar kemur
fram hversu mikinn afslátt við-
komandi á rétt á að fá. Við erum
þá búin að meta viðskiptin og
þeir sem nota þjónustuna mest fá
mestan afslátt en hann getur verið
á bilinu 10 til 50%, allt eftir
viðskiptum, Við gefum líka afslátt
af þungaflutningum og hópar sem
koma í skipið fá hópafslátt o.s.frv.
Kortin sem við létum gera eru
ekki ósvipuð kreditkortum og þar
koma upplýsingar um afslát-
tarkjör fram. Þetta hefur gefist
vel,“ sagði Pétur.
Stofnun Þekk-
ingarseturs
Á fundi bæjarráðs var tekin fyrir
ósk starfshóps um eflingu há-
skóla- og rannsóknastarfsemi í
Vestmannaeyjum, um að
Vestmannaeyjabær gerist stofnað-
ili að Þekkingarsetri Vestmanna-
eyja með 300 þúsund kr. stofn-
framlagi.
Bæjarráð samþykkir að gerast
stofnaðili að Þekkingarsetri Vest-
mannaeyja með 300 þúsund kr.
stofnframlagi og hvetur aðra
framsækna aðila til þátttöku.
í fundargerð bæjarráðs segir að
tilgangur Þekkingarseturs Vest-
mannaeyja sé að stuðla að aukinni
almennri þekkingu og fjölbreytni
atvinnulífs í Vestmannaeyjum
með fræðslustarfí, eflingu há-
skólamenntunar, vísindarann-
sóknum og nýsköpun.
VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMI.J
nelShamar
VÉLA-OG BÍLAVERKSTÆÐI
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / ^ ÞJÓNUSTUAÐILI
I EYJUM
FLATIR 21 / S.481-1216 / GSM.864-4616