Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 13.11.2008, Blaðsíða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 13.11.2008, Blaðsíða 16
Sun Investments s.L FASTEIGNASALA A SPÁNI LINDA RÓS (0034) 646 930 757 lindarosg@hotmail.com www.suninvestmentsl.com 4 4 þlús ™ taM sumBRFER0IR SÍmÉIíÉ^IM: ?Æ)íismíií jOjjjjJyusjaaiuj " Húsasmíði er mitt fag og þjónustu mína veiti. Hringdu í mig strax í dag og húsinu þínu ég breyti. “ Sn kkar nn I Sigurður Oddur | húsasmiður I I sími: 899-2576 | eyjar1@hotmail.com | Nýr banki tekur til starfa í Eyjum Heimaey - þjónustuver hefur ákveðið að opna banka Eyjamanna, Gleðibankann. Markmið félaga í GLEÐIBANKANUM er að skapa jákvætt hugarfar, bjartsýni og trú á samfélagi Eyjanna. Til að gerast hluthafi leggur þú inn nafn þitt í félagatal Gleðibankans. Það gerir þú með því að koma við á skrifstofu Heimaeyjar sem er að Vesturvegi 10. Þar færð þú félagsskírteini og þiggur kaffisopa og spjall. Það er alltaf hægt að taka út úr GLEÐIBANKANUM, ef þú ákveður að fara í FYLU, þá verður þú að koma aftur við hjá okkur og eyðileggja reikning þinn og afmá nafn þitt úr félagaskránni. EYJAMENN hafa alltaf staðið saman í gegnum súrt og sætt. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður í samfélaginu, þá er staða okkar Eyjamanna sterk, og félagar í GLEÐIBANKANUM ætla með undirskrift sinni að vinna áfram að því með jákvæðni og bjartsýni. F.h. Gleðibankans Guðjón Hjörleifsson. Með Guðjóni á myndinni eru Ingi Sigurðsson, Olafur Elísson, Elliði Vignisson og Páll Zóphóníasson. Vinnueftirlitið leggur niður stöðugildi í Eyjum Vinnueftirlitið auglýsti eftir eftirlits- manni um miðjan september við fyrirtækjaeftirlit á Suðurlandi. Aðalskrifstofa umdæmisins er í Hveragerði en starfssvæðið er frá Sandskeiði að Skeiðarársandi að Vestmannaeyjum meðtöldum. Fram til þessa hefur einn starfsmanna vinnueftirlitsins haft starfsaðstöðu í Vestmannaeyjum en það fyrirkomu- lag verður ekki áfram. Nú hefur ákveðin tilfærsla farið fram innan Vinnueftirlits Suðurlands frekar en að ráða inn nýjan starfsmann. Tilfærsla innan Vinnu- eftirlitsins Gísli Rúnar Sveinsson, umdæmis- stjóri Vinnueftirlitsins á Suðurlandi sagði að ráðið hafí verið í starfið en stöðugildum ekki fjölgað. Tveir menn hafa sinnt vinnuvéla- og tækjaskoðun og hálf staða annars þeirra fer yfir í fyrirtækjaeftirlit. Þetta er tímabundin ráðstöfum í þrjá mánuði, hvað sem framtíðin ber í skauti sér,“ sagði Gísli Rúnar. Hversu margir starfa hjá Vinnu- eftirlitinu á Suðurlandi? „Það eru fjórar stöður með 100% starfshlutfall hjá Vinnueftirliti Suðurlands, við vorum með 4,8 stöðugildi en maður sem staðsettur var í Vestmannaeyjum var í 20% starfshlutfalli hjá Tæknideild Vinnu- eftirlitsins í Reykjavík. Akvörðun um að vera með tilfærslu innan Vinnueftirlitsins á Suðurlandi frekar en að ráða inn nýjan starfs- mann var tekin hjá Vinnueftirlitinu í Reykjavík. Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlits ríkisins, sagði að vissulega mætti líta þannig á að ríkisstarfsmönnum fækkaði í Veslmannaeyjum þar sem ekki var ráðið í stöðu starfsmanns sem hafði aðsetur og starfsaðstöðu í Eyjum. „Það sem hefur áhrif er að við erum í fjárhagserfiðleikum og við fækk- um um eitt stöðugildi tímabundið. Sá sem var ráðinn var í 100% stöðu hjá okkur og skiptist þannig að hann verður í 50% stöðu við vinnu- vélaskoðun og 50% stöðu við fyrir- tækjaeftirlit. “ Er ekki svolítið sérkennilegt að rík- isfyrirtœki séu nœr ófáanleg til að fjölga starfmönnum á jaðarsvœðum í þenslu og byrji svo á draga saman á þessu sama svœði í kreppu ? „Við erum að reyna að draga úr kostnaði. Það hafa ýmsir forystu- menn í Eyjum rætt við okkur en við töldum okkur verða að gera þetta núna. Mikilvægast er að við munum áfram sinna okkar eftirliti og þjón- ustu í Vestmannaeyjum, sem og annars staðar á Suðurlandi.“ Nú tala menn um hagræð- ingu vegna kreppunnar Elliði Vignisson, bæjarstjóri sagði að hann hefði fengið grun um að starfið hjá Vinnueftirlitinu yrði flutt í burtu frá Eyjum, fyrir tæpum tveimur mánuðum. „Þá þegar talaði ég við þingmenn Suðurlands, Lúðvík Bergvinsson og Björgvin G. Sigurðsson og taldi að þeir hefðu besta aðgengið að þessari ákvörðun. Þeir tóku eftirgrennslan minni vel og ég veit þeir höfðu báðir samband við félagsmálaráðuneytið vegna þessa máls. Ég er auðvitað mjög ósáttur við að standa í því að verja þau fáu ríkisstörf sem við höfum hér í Vestmannaeyjum í stað þess að vera að berjast fyrir fjölgun þeirra. Með þessum gerningi er félagsmálaráðuneytið að flytja starf frá jaðarsvæði yfir til Hveragerðis sem tilheyrir vissulega höfuðborg- arsvæðinu. Nú tala menn um hag- ræðingu vegna kreppunnar en þenslan hefur aldrei náð hingað. Þenslan hófst á höfuðborgarsvæðinu og henni á að ljúka þar,“ sagði Elliði. Kertaverksmiðjunni verður ekki lokað Ekki stendur til að loka kertaverksmiðjunni Heimaey en öllum starfs- mönnum hefur verið sagt upp. Um er að ræða skipulagsbreytingar þannig að þeir starfsmenn sem hafa minni vinnugetu, fara í vist á Búhamar en aðrir verða endurráðnir samkvæmt kjörum verkalýðs- félagsins og tekið upp nýtt starfsmat. Sveinn Pálmason, framleiðslustjóri, staðfesti þetta í samtali við Fréttir. „Það hefur staðið lengi til að skipta þessu svona enda er þetta svona víðast hvar annars staðar á vernduðum vinnustöðum. Stefnt er að því að klára þetta um áramót.“ Göteborg piparkökur 4oo9 verð nú kr 298f- verð óður kr 348,- Kjarnafæði Svinalundir verð nú kr/kg 1648,- verð áður kr/kg 2115,- Búrfells skinka 11 sncMar verð nú kr 350,- verð áður kr 420,- Egg meðalstór io»h. verð nú kr 278/■ verð áður kr 328,- Dial sturtusápa 3S4 ml verð nú kr 179,- verð áður kr 348,- VIKUTILBOÐ 13. -19. nóv Yankie bar 4.<k verð nú kr 328,- verð áður kr 398,- SS Cordon Bleu verð nú kr 289,- verð áður kr 389,-

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.