Fréttir - Eyjafréttir - 11.12.2008, Page 7
Fréttir / Fimmtudagur 11. desember 2008
7
Golfklúbburinn útnefndur
/ S
sem Fyrirmyndarfélag ISI
-Einhver mesta viðurkenning sem íþróttafélag getur fengið -Frábær enda-
punktur á hátíðahöldum vegna 70 ára afmælis klúbbsins
Samantekt
Sigurgeir Jónsson
sigurge @ intemet. is
Golfklúbbur Vestmannaeyja hélt
veglega upp á 70 ára afrnæli sitt í
síðustu viku. Afmælisdagur
klúbbsins er 4. desember og þann
dag var aðalfundur klúbbsins hald-
inn. Síðan var veglegur afmælis-
fagnaður á föstudagskvöld. Þetta
tvennt var lokaþáttur hátíðahalda
vegna 70 ára afmælis klúbbsins en
sú hátíð hefur staðið síðan í júní í
sumar.
Slæm skuldastaða vegna
kreppunnar
Á aðalfundinum kom m.a. fram að
starfíð var einkar blómlegt á árinu
eins og hæfir á afmælisári. Haldið
var sérstakt afmælismót í júní og
Islandsmótið í höggleik var einnig
haldið í Eyjum. Þá var Volcano
Open mótið hið fjölmennasta sem
haldið hefur verið til þessa frá upp-
hafi. Formaðurinn, Helgi Braga-
son, kom inn á það í skýrslu
stjómar hve forysta GSI væri
ánægð með framkvæmd Lands-
mótsins sem hér var haldið í sumar,
þar sem allt hefði gengið eins vel
og hægt væri að hugsa sér. Þá
hefðu sjónvarpsmenn frá Stöð 2
sagt að öll golfmót landsins ætti að
halda í Vestmannaeyjum, þar kynnu
menn til verka og engin vandamál
væm til staðar.
Helgi sagðist ekki í vafa um að
þetta mætti rekja til hins öfluga
hóps félaga í GV sem legði á sig
ómælt sjálfboðastarf fyrir klúbbinn,
meðan algengt væri uppi á landi að
slfk vinna væri aðkeypt. „Þetta er
okkur dýrmætt," sagði Helgi, „og
vonandi á klúbburinn eftir að njóta
þessa um ókomna framtíð."
Efnahagskreppan hefur sín áhrif á
starf GV, ekki síst fjárhaginn. Sí-
fallandi gengi krónunnar á árinu
hefur haft þau áhrif að gengis-
munur er um 40 milljónir á reikn-
ingsárinu og tap ársins því tæpar 36
milljónir króna. Hagnaður varð af
sjálfum rekstri klúbbsins en áður-
nefndur gengismunur skilar óhag-
stæðri niðurstöðu. Þar sem lang-
tímalán klúbbsins eru öll í erlendri
mynt, hefur gengisþróun undan-
farinna mánaða tvöfaldað skuld-
imar á síðasta reikningsári. Vonast
er til að með hagstæðara gengi á
næsta ári komi þær skuldir til með
að lækka. Þrátt fyrir þetta er lausa-
fjárstaða klúbbsins góð, eða um sjö
milljónir króna.
Helgi Bragason var endurkjörinn
formaður klúbbsins og með honum
í stjóm þeir Haraldur Óskarsson,
Hörður Óskarsson. Ragnar Bald-
vinsson og Böðvar Bergþórsson.
Til vara þeir Sigurjón Pálsson og
Jón Árni Ólafsson. Þetta er svo til
sama stjórn og setið hefur það sem
af er þessari öld. Sú breyting varð
á núna að Jón Pétursson hætti í
varastjórn en nafni hans Ólafsson
kom inn. Með tilliti til efnahags-
ástandsins ákvað stjórnin að árgjöld
skyldu haldast nær óbreytt á næsta
ári.
Á aðalfundi eru veittar viður-
kenningar til efnilegasta kylfingsins
og besta kylfingsins. Að þessu
sinni var Hallgrímur Júlíusson,
yngri, valinn besti kylfmgurinn og
kom fáum á óvart en þessi ungi
kylfingur hefur skarað fram úr í
!■ I
I ú )■■■ aiwIik)!\sso.n
Xmilssos i—( /VIII S;’(,/)/o/n ÖsA-wssov
BjBpBBBBki1.'~ r),y <»»/<» __
! I | Otölucsdoiií
hknlm i (,, ,
i '/!'■ I cí IIÍ CíiHÓiH*SO\
-LL L.' ■■'
wliU,itl(,nnA
ÞAU voru heiðruð, Gunnar, Fríða Dóra, Kristín, Einar, Elsa, Gísli, Sigurgeir, Guðni og Leifur.
Ólafur Kafnsson, forseti íþróttasambands íslands og Helgi formaður. GV var valinn sem Fyrirmyndarfélag
ISI. Slík útnefning er eins konar gæðavottun og felur í sér að viðkomandi félag er talið samfélagslega verð-
mætara en önnur félög. Það er mikill heiður að fá slíka viðurkenningu og þau félög sem hafa hlotið slíka
útnefningu hafa notið þess í hærri fjárframlögum frá viðkomandi sveitarfélagi.
Heiðranir
Á þessum tímamótum voru
nokkrir félagar klúbbsins heiðr-
aðir, bæði af ÍBV, GSÍ og GV.
Gullmcrki ÍBV hlutu þessir:
Haraldur Óskarsson,
Hörður Óskarsson.
Silfurmerki ÍBV hlutu:
Helgi Bragason,
Bergur Sigmundsson
Gullmerki GSÍ hlutu þessi:
Helgi Bragason,
Elsa Valgeirsdóttir,
Haraldur Óskarsson,
Hörður Óskarsson,
Böðvar Bergþórsson,
Ragnar Baldvinsson,
Kristín Einarsdóttir.
GuIImerki GV hlutu þessi:
Gísli Jónasson,
Guðni Grímsson,
Gunnar Kr. Gunnarsson,
Sigurgeir Jónsson,
Einar Ólafsson,
Kristín Einarsdóttir,
Fríða Dóra Jóhannsdóttir,
Leifur Ársælsson.
sumar. Sá efnilegasti var einnig af
yngri kynslóðinni, Sveinn Sigurðs-
son, sem sýndi mjög góðan árangur
í sumar.
Fjölskylda Sveins Magnússonar,
sem lést á árinu, kom færandi hendi
og færði klúbbnum gjafabréf í
minningu Sveins, upp á 273 þúsund
krónur og er þess óskað að það fé
renni til styrktar barna- og ung-
lingastarfi innan klúbbsins.
Þá afhenti Kristín Einarsdóttir,
ekkja Marteins heitins Guðjóns-
sonar, klúbbnum stóra fjárupphæð í
minningu Marteins og sagðist
vonast til að klúbburinn gæti nýtt
þessa aura. Helgi Bragason þakk-
aði Kristínu þessa rausnarlegu gjöf
og sagði hugmyndir uppi um að
nýta hluta fjárins í að gera veglega
steinbrú yfir tjörnina á 16. braut,
brú sem myndi bera nafn Marteins.
Um 30 manns sóttu þennan aðal-
fund klúbbsins.
Yeglegur afmælisfagnaður
Á föstudag var blásið til afmælis-
fagnaðar í Golfskálanum þar sem
70 ára afmælisins var minnst og var
þetta lokapunkturinn í þeim hátíða-
höldum sem hafa staðið frá því
snemma í sumar. Um hundrað
manns sátu þennan fagnað sem
hófst með borðhaldi.
Klúbburinn hlaut ýmsar gjafir á
þessu afmæli. Fyrr í sumar höfðu
ýmsir gefið góðar gjafir, t.d. gaf
Golfklúbbur Reykjavíkur mjög
vandað ræðupúlt með útskornu
merki GV og var þetta púlt nú
notað í fyrsta sinn á aðalfundinum
og síðan á afmælisfagnaðinum.
Bergur Sigmundsson, fyrrverandi
formaður GV, gaf klúbbnum mynd
af æskuheimili sínu.Tungu eða
Hótel Berg, Heimagötu 4, en stofn-
fundur klúbbsins var einmitt
haidinn þar.
Þór I. Vilhjálmsson, formaður
IBV héraðssambands, færði
klúbbnum gjafabréf til fánakaupa
fyrir klúbbinn. Forseti Golfsam-
bands Islands, Jón Ásgeir Eyjólfs-
son, færði klúbbnum forláta
kristalsvasa með zirkonsteini er
lítur út eins og demantur. Jón
Ásgeir sagði að völlurinn hér væri
þriðji elsti völlur á landinu og sá
besti. Hann hefði ákveðnar taugar
til þessa vallar, enda hefði hann
byrjað að iðka golf hér. „Þessi vasi
hefur táknræna merkingu,“ sagði
Jón Ásgeir. „I hann er greyptur
demantur enda er völlurinn ykkar
alger demantur."
En líklega var besta afmælisgjöfin
sú að Ólafur Rafnsson, forseti
Iþróttasambands Islands, tilkynnti
að Golfklúbbur Vestmannaeyja
hefði verið valinn sem Fyrirmynd-
arfélag ÍSÍ. Slik útnefning er eins
konar gæðavottun og felur í sér að
viðkomandi félag er talið samfé-
lagslega verðmætara en önnur fé-
lög. Það er mikill heiður að fá
slíka viðurkenningu og þau félög
sem hafa hlotið þá útnefningu hafa
notið þess í hærri fjárframlögum frá
viðkomandi sveitarfélögum.
Páll Marvin Jónsson, bæjarfull-
trúi, ávarpaði samkomuna fyrir
hönd bæjaryfirvalda og færði
klúbbnum blómvönd. Hann sagðist
ekki vera með gjafabréf í farteskinu
en þessi tilnefning gæfi tilefni til að
styrkja hið ágæta starf sem unnið
væri í klúbbnum. Gáfu orð hans
fyrirheit um góðan stuðning
bæjaryfirvalda.
Helgi Bragason færði forseta ÍSI
áletruð eintök af bókinni Saga GV í
70 ár, í þakklætisskyni fyrir
viðurkenninguna. Þá færði hann
einnig sömu bók að gjöf tveimur
aðilum utan GV sem unnið hafa
gott starf fyrir klúbbinn á árinu,
jjeim Hauki Guðjónssyni frá
Reykjum og Óskari Pétri
Friðrikssyni, ljósmyndara.
Þessi afmælisfagnaður fór hið
besta fram og sýnt að félagar í GV
stefna ótrauðir fram á veginn,
staðráðnir í að vinna klúbbnum vel,
þrátt fyrir einhverja óáran í efna-
hagsmálum um þessar stundir.