Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2009, Side 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 4. júní 2009
Ur bloggheimum:
Sigursveinn Þórðarson bloggar:
Til hamingju
Island
Kirkjur bcejarins:
Landakirkja
Fimmtudagur 4. júní
Kl. 10.00. Mömmumorgunn.
Pálínuboð.
Laugardagur 6. júní
Kl. 11.00. Útför Sólveigar
Pétursdóttur
Sunnudagur 7. maí
Sjórnan nadagurin n
Kl. 13.00. Guðsþjónusta á sjó-
mannadegi og þrenningarhátíð.
Bergey Alexandersdóttir, Birta
Marinósdóttir og Svana Björk
Kolbeinsdóttir lesa ritningarlestra.
Kór Landakirkju syngur undir
stjórn Anniku Tönuri. Sr. Guð-
mundur Öm prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt sr. Kristjáni
Bjömssyni. Að guðsþjónustu lok-
inni leikur Lúðrasveit Vestmanna-
eyja, blómsveigur verður lagður við
minnisvarða um drukknaða og
hrapaða og Snorri Óskarsson flytur
ávarp.
Þriðjudagur 9. júní
Kl. 20.00. Fundur hjá ÆS-LAND
(æskulýðsfélagi Landakirkju) í húsi
KFUM/K
Miðvikudagur 10. júní
Kl. 11.00. Helgistund á
Hraunbúðum.
Viðtalstímar prestanna eru mánu-
daga til föstudaga milli 11.00 og
12.00. Landakirkja er opin þegar
starfsfólk kirkjunnar er á staðnum.
Aðventkirkjan
Laugardagur 6. júní
Kl. 10. 30 Samkoma á Brekastíg
17. Samkoman hefst með biblíu-
fræðslu fyrir böm og fullorðna.
Allir hjartanlega velkomnir.
Gísli Hjartarson bloggar:
Magnaður kappi...
...með einstakan
feril. Þó ferlinum
sé ekki lokið þá er
hægt að segja að
ferillinn sé glæstur,
og alltaf er piltur-
inn einn af ásunum
í sínu liði - einn af
mikilvægustu hlekkjum síns liðs.
Það hefur verið unun að fylgjast
með honum undanfarin ár og
maður hefur ekki alltaf gert sér
fyllilega grein fyrir því hversu stórt
nafn hann er innan handbolta-
heimsins en það hefur hægt og
rólega komið í ljós síðustu ár
hversu gríðarlegrar virðingar karl-
inn nýtur. Nú sjáum við hvað hann
gerir í Þýskalandi þar sem hann
mun væntanlega ljúka ferlinum.
Styrkur hans sást vel í leiknum á
sunnudag og því var viðeigandi að
hann skoraði síðasta mark leiksins.
- Magnaður kappi
http.V/fosterinn. blog. is
Eyjamaður vikunnar:
Matgozðingur vikunnar:
Einfaldur humarréttur og synd
samlegar súkkulaðlmuffins
Bankahrunið varð í
október, búsáhalda-
byltingin í janúar
og ný ríkisstjóm í
febrúar. Ríkisstjóm
félagshyggjuafl-
anna, 80 daga
ríkisstjómin. Nú
skyldi kapítal-
isminn settur á hilluna og félagsleg
mál sett á oddinn.
Það þagnaði í mótmælendum á
Austurvelli. Pottamir fengu að
snúa aftur til sinna starfa, sleifamar
notaðar til annars en að lemja.
Fólkið sneri aftur heim í hlýjuna og
hugsaði sér gott til glóðarinnar. Að
vera búið að koma Sjálfstæðis-
flokknum frá völdum og það sem
meira er og mikilvægast, Davíð úr
Seðlabankanum.
Kosningar gengu í garð, Búsáhalda-
byltingin varð Borgarahreyfmgin
sem hafði sætaskipti við
Frjálslynda á þingi. Kvótinn var
ekki lengur aðalmálið, heldur
spillingin, kapítalisminn, sukkið og
svínaríið. Sjálfstæðisflokkurinn var
settur á bekkinn og inn á kom fyrsta
hreina vinstri stjóm á íslandi frá
stofnun lýðveldisins.
Það var ekkert annað!
Og við, smælingjamir biðum eftir
viðbrögðum, hvað skyldi gert fyrir
okkur sem eftir sitjum með skuldir
útrásarinnar á bakinu. Og við
biðum og biðum og biðum og
biðum og biðum...
...og biðum og biðum og biðum.
Síðan kom svar.
Það skal hækka skatta á áfengi,
tóbak og bensín. Hækka höfuðstól
verðtryggða lána.
Meðlimir búsáhaldabyltingarinnar
væntanlega hæstánægðir með sitt
fólk. Jóhanna er svo heiðarleg,
Steingrímur svo skeleggur að þetta
getur ekki klikkað. Engir pottar að
berja í á Austurvelli, engin eggja-
sala svo hægt sé að skreyta Alþing-
ishúsið, grímumar fallnar af anar-
kistunum, rúðumar látnar óáreittar.
Þetta er svo frábært, við erum
komin með vinstri stjóm.
Til hamingju ísland.
Þetta getur ekki klikkað
Eða hvað?
http://svenko.blog.is
Ég vil þakka henni Hörpu vinkonu
fyrir áskorunina og tek henni hér
með.
Ég ætla að bjóða upp á einfaldan
og fljótlegan humarrétt sem ég
smakkaði fyrst hjá tengdó. Þessi
réttur varð til þess að ég byrjaði að
borða humar hvort sem það var
hvítvíninu að kenna sem er í sós-
unni eða einhverju öðru, en það má
deila um það. í eftirrétt verða
súkkulaðimuffins sem einfaldlega
bráðna upp í manni. Verði ykkur að
góðu!
Einfaldur humarréttur
150 gr smjör
3-4 hvítlauksrif
20-25 humarhalar
1 peli rjómi
„dash“ af hvítvíni eftir smekk
salt og pipar
sósujafnari
Hvítlaukurinn er steiktur upp úr
smjörinu í örlitla stund. Humarinn
er skelflettur og hreinsaður, settur
út á pönnuna og látinn steikjast þar
í 2-3 mínútur. Því næst er hvítvíni
bætt við eftir smekk. Þegar
humarinn er tilbúinn þá er hann
tekinn af pönnunni á meðan sósan
er löguð. Rjómanum er hellt út á
pönnuna ásamt sósujafnara, salti og
pipar og látið malla smástund. I
lokin er síðan humarinn settur aftur
út í sósuna.
Gott að bera fram með ristuðu
brauði, hrísgrjónum og eða salati.
Guðbjörg Guðmannsdóttir er matgœðingur vikunnar
Syndsamlega góðar
súkkulaðimuffins
3 eggjarauður
2egg
140 gr flórsykur
140 gr 70% súkkulaði
140 gr smjör
60 gr hveiti
Eggjarauður og egg eru þeytt vel
saman. Flórsykrinum bætt út í og
þeytt vel við. Því næst er smjör og
súkkulaði brætt varlega saman og
hellt út í blönduna. í lokin er hveit-
inu þeytt varlega út í.
Deiginu er sfðan hellt í stór
muffinsform (dugir í 5 stórar
muffins)
Bakist við 220 gráður í 11-12 mín.
(Þær eiga að vera blautar að innan)
Borið fram með ís og borðað af
bestu lyst T
Mig langar að skora á hana Astu
Hrönn, systur mína, sem nœsta
matgœðing Frétta. Eg er alveg viss
um að hún getur töfraðfram eitt-
hvað gómsœtt.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur 4. júní
Kl. 20.30 Biblíulestur.
Föstudagur 5. júní
Kl. 20.00 Unglingahittingur.
Laugardagur 6. júní
Kl. 20.30 Brauðsbrotning.
Sunnudagur 7. júní
Sjómannadagur
Kl. 11.00 Samkoma. Snorri
Óskarsson prédikar.
Alla virka morgna, Bœnastund
klukkan 7:15. Komum og veg-
sömum Drottin. Allir hjartanlega
velkomnir.
Sjómannadagurinn er mikil-
vægur fyrir Vestmannaeyjar
Stefán Birgisson er Eyjamaður vikunnar
Nú er ein stærsta skemmtanahelgi
ársins framundan í Vestmanna-
eyjum en sjómannadagshelgin
hefur heldur betur sótt í sig veðrið
undanfarin ár og hefur þátttaka
bæjarbúa aukist í kjölfarið. Enda
er dagskrá helgarinnar fjölbreytt
þannig að allir fmna eitthvað við
sitt hæfi, bæði ungir sem aldnir.
Sjómannadagsráð ber hitann og
þungann af skipulagningu helgar-
innar en formaður ráðsins er Stefán
Birgisson. Hann er Eyjamaður
vikunnar.
Nafn: Stefán Birgisson.
Fæðingardagur: 2. mars 1958.
Fæðingarstaður: Reykjavík.
Fjölskylda: Eiginkona er Svava
Gunnarsdóttir. Saman eigum við
fimm böm, Birgir er elstur, Hilmar
Jón næstur, svo Kolbrún Inga,
Gunnar Þór og Hrafnhildur.
Draumabíllinn: Draumurinn er að
eignast góðan hestabíl.
Uppáhaldsmatur: Það er nauta-
steik, léttsteikt.
Versti matur: Held að hann sé
bara ekki til.
Uppáhalds vefsíða: Helst skoða ég
ýmiss konar hestasíður.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Gott rokk. Led Zeppelin og
Pink Floyd eru í sérstöku uppáhaldi
hjá mér.
Aðaláhugamál: Hestamennska og
fjölskyldan.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Ég hefði nú gaman að því að hitta
Egil Skallagrímsson.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Ég held ég geti alveg sagt
Vestmannaeyjar. Þær eru fallegasti
staðurinn sem ég hef komið á og
hafa snortið mig mest.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: IBV er mitt félag og
börnin mín eru mínir uppáhalds-
íþróttamenn.
Ertu hjátrúarfullur: Nei.
Stundar þú einhverja íþrótt: Ég
stunda hestamennsku.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég held
ég segi bara fréttir og íþróttir.
Annars er ég mjög latur í
sjónvarpsglápinu.
Hvernig verður sjómannadags-
helgin í ár: Það verður mikið um
að vera eins og ævinlega, eitthvað
fyrir alla.
Eruð þið lengi að undirbúa þessa
stóru helgi: Við byrjum að huga að
næsta sjómannadagshelgi, strax á
mánudeginum eftir sjómannadag.
Er sjómannadagurinn alltaf jafn
mikilvægur fyrir sjómenn:
Sjómannadagurinn er mikilvægur
fyrir sjávarpláss eins og
Vestmannaeyjar og verður það
vonandi um aldur og ævi.
Hvað ertu búinn að vera lengi í
sjómannadagsráði: Ég er nú ekki
með það á hreinu en það er komið
vel á annan tug ára.
Hvernig fínnst þér ég? (Spurt af
síðasta Eyjamanni vikunnar, Þóri
Ólafssyni): Sérstaklega viðkunnan-
legur og þægilegur maður.
Hvað viltu spyrja næsta
Eyjamann vikunnar: Skemmtir
þú þér vel um sjómannadags-
helgina?