Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2009, Qupperneq 19

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2009, Qupperneq 19
Fréttir / Fimmtudagur 4. júní 2009 19 Stýrimannaskólinn og nemendur hans sáu um framkvæmd Guðlaugssundsins allt frá upphafi og fram til þess að skólinn var lagður niður. Hér er einn nemendahópurinn að loknu sundi og björgunaræfingu í sundlauginni skólinn í Vestmannaeyjum starfaði, frá 1964 til 1999, útskrifuðust frá honum 379 nemendur með réttindi 2. stigs sem þýðir ótakmörkuð rétt- indi til skipstjórnar á fiskiskipum og undirstýrimannsréttindi á fragt- skipum og varðskipum. Þar að auki voru nokkrir sem létu sér 1. stigs réttindin duga þannig að í allt hafa um 400 nemendur útskrifast frá skólanum. Það var gæfa skólans að báðir skólastjórar hans, þeir Guðjón Ármann og Friðrik, voru einstakir dugnaðar- og kunnáttumenn sem báru hag skólans og byggðarlagsins fyrir brjósti. Þeim tókst líka einkar vel að koma eldmóði sínum og áhuga út til nemendanna, voru elskaðir og virtir af öllum þorra þeirra. Vestmannaeyingar hafa ætíð verið í fremstu röð í sambandi við þróun öryggis- og björgunarbúnaðar. Nemendur Stýrimannaskólans tóku virkan þátt í þeirri þróun á sínum tíma þegar þeir Friðrik, Sigmund Jóhannsson og fleiri góðir menn voru á fullu í að hanna og móta sleppibúnað fyrir gúmbjörgunar- báta. Þá hafa nemendur skólans einnig lagt sitt lóð á vogarskálamar sjálfir í þeim efnum, Björgvins- beltið var t.d. hannað af Björgvin Sigurjónssyni þegar hann var í skólanum. Það var vissulega eftirsjá í Stýri- mannaskólanum þegar hann hætti starfsemi sinni. Á þeim tíma var viðurkennt að ekki væri þörf fyrir þijá stýrimannaskóla í landinu, einn myndi nægja eftirspurninni. Um það er ekki deilt. Aftur á móti er það spurning hvort ekki hefði verið eðlilegra að hafa þann skóla á landsbyggðinni frekar en í Reykja- vík; í stærstu verstöð landsins frekar en í hringiðu verslunar og viðskipta. Forsvarsmenn skólans í Vestmannaeyjum börðust fyrir því á sínum tíma en urðu að láta í minni pokann. Vafalítið væri sitthvað með öðrum formerkjum í Vest- mannaeyjum núna, hefðu ráðamenn þess tfma ákveðið að framtíðar- staður sjómannamenntunar yrði í Vestmannaeyjum. Skipstjórnarnám hafið á ný Árið 2007 var ákveðið af skóla- stjómendum Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum, í samráði við ýmsa aðila í sjávarútveginum og fiskvinnslunni, að kanna áhuga fyrir því að hefja skipstjómamám á ný í Éyjum. Var stefnan sett á að nemendur gætu lokið námi 1. stigs í Eyjum að minnsta kosti. Þetta bar þann árangur að 18 nemendur hófu skipstjórnamám í FÍV haustið 2007. Á síðustu tíu ámm hefur námið tekið vemlegum breytingum frá því sem var, hefur m.a. lengst mikið, vegna alþjóðlegra krafna. Kennsla í faggreinum brautarinnar var í nánu samráði við Skipstjórn- arskóla Tækniskólans og undir þeirra yfirstjóm og var sú samvinna með miklum ágætum. Á þessum tveimur ámm hefur verulega reyst af þeim hópi sem hóf námið haustið 2007. Sumir hættu vegna skorts á áhuga, aðrir vegna féleysis og tveir ákváðu að Ijúka náminu í Reykjavík vegna breyttra aðstæðna. Alls voru níu nemendur á skip- stjómarbrautinni í vetur og af þeim luku fimm prófi til B-réttinda, sem áður var kallað I. stig. Af hinum fjórum eiga tveir aðeins eftir tvo eða þrjá áfanga til að fá sín réttindi en hinir tveir eiga fleiri áfanga eftir. I þessum fimm manna hópi var ein kona og er fyrsta konan sem öðlast slík réttindi í Vestmannaeyjum. Þessir fimm nemendur munu flestir hyggja á áframhaldandi nám í Reykjavík á hausti komanda. Spuming um framhaldið Af hálfu FÍV er fullur hugur á að halda áfram að bjóða upp á skip- stjórnarbraut við skólann enda er það augljós kostur að geta stundað þetta nám í heimabyggð. En til þess að það sé hægt, verður áhugi nemenda að vera fyrir hendi. Til að unnt sé að bjóða upp á kennslu á skipstjórnarbraut verða a.m.k. tíu nemendur að vera skráðir á hana. Eins og mál standa núna, er ekki útlit fyrir að sú braut verði starf- rækt í haust, ekki nema menn allt í einu ákveði í sumar að innrita sig. En rétt er að benda á að þó svo að ekki verði starfrækt eiginleg skip- stjórnarbraut hér, er hægt að stunda nám í mörgum þeim áföngum sem krafist er að skipstjórnarmenn hafí lokið. Nemendur verða að hafa lokið áföngum í íslensku, tungu- málum, stærðfræði, tölvuvinnslu og stjórnun, svo nokkuð sé nefnt, og þeir áfangar eru allir í boði hjá FÍV. Þá er einnig sá möguleiki að taka ákveðna áfanga í fjarnámi frá Skipstjórnarskólanum í Reykjavík og mun FIV aðstoða nemendur við það, hafi þeir áhuga. Stendur okkur Eyjamönnum næst Stýrimannaskólinn í Vestmanna- eyjum var á sínum tíma stofnaður til þess að sjómenn í Vestmanna- eyjum gætu lokið skipstjórnarnámi í sinni heimabyggð. Síðan hefur margt breyst í þjóðfélaginu. Enn stendur þó eftir mikilvægi sjávar- útvegsins, kannski enn meira nú en nokkru sinni fyrr. Góðir skipstjórn- armenn eru mikilvægustu starfs- menn þess atvinnuvegar og vonandi verður það hvatning ungu fólki í Vestmannaeyjum til að hefja nám í þeirri grein sem stendur okkur Eyjamönnum hvað næst. Við þessa samantekt hef ég m.a. stuðst við viðamiklar upplýsingar sem Friðrik Ásmundsson hefur tekið saman um skipstjórnarnám í Vestmannaeyjum. Kann ég honum bestu þakkir fyrir að veita mér aðgang að því efni. sigurge @ intemet. is Á Framhaldsskólatröppunum. Síðasti nemendahópurinn sem útskrif- aðist, árið 1999, frá Framhaldsskólanum en Stýrimannaskólinn var gerður að deild í FÍV árið 1997. Varðskipsferð var fastur liður í námi bæði 1. og 2. stigs. Nemendur 1. stigs voru yfirleitt einn dag í slíkri ferð en nemendur 2. stigs a.m.k. sólarhring við stjörnufræðiathuganir og fleira. Hér er Friðrik með nemendum 2. stigs ásamt skipherranum á Óðni í lok slíkrar ferðar

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.