Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2009, Qupperneq 24

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2009, Qupperneq 24
a//iai)áí//ia VESTMANNAEYJA 2009 Sumarstúlka Vestmannaeyja verður valin föstudagskvöldið 19.júní í Höllinni, sem stendur að keppninni ásamt Fréttum. Að þessu sinni taka fjórtán stórglæsilegar stúlkur þátt í keppninni, sem er nú haldin í 23. skiptið. Að venju verður í boði glæsilegur matseðill sem kemur frá Einsa kalda. Ýmis skemmtiatriði verða á dagskránni eins og alltaf og geta gestir vænst þess að eiga skemmtilegt kvöld í Höllinni sem endar svo með dansleik með Zúúber Grúbbunni ásamt Dj Svala. En Zúúber Grúbban er ballhljómsveit af bestu gerð, samansett af tónlistarmönnum úr vinsælum íslenskum hljómsveitum og öðrum áberandi mönnum úr lista- geiranum. Ingó Veðurguð, Einar Ágúst og Gunni Óla úr Skítamóral eru allir meðlimir í Zúúber Grúbbunni. Hanni Back trommari úr Skítamóral, Gunnar Þór gítarleikari úr Sóldögg og Skítamóral, Siggi Samúelsson bassaleikari úr írafári og Júlíus gítarleikari úr Eðlunni. // Framkvæmdastjóri keppninnar: Hjördís Guðlaugsdóttir. // Ljósmyndir: Haraldur Ari Karlsson. // Hárgreiðsla: Hafdís og Sveinsína hjá Dízó. // Föðrun: Annika Vignisdóttir og Viktoría Guðmundsdóttir Þessa vikuna fáum við að kynnast sjö af þeim fjórtán stúlkum sem taka þátt. í næstu viku heyrum við svo í þeim sjö sem eftir eru. // Fjölskylda: Mamma er Lilja Rut Sæbjörnsdóttir og pabbi er Jóhann Brimir Benónýsson. Svo á ég tvö systkini, Andreu og Sæbjörn Sævar og kærastinn minn heitir Garðar Örn Sigmarsson. // Fyrirmynd: Mamma og ömmur mínar. // Framtíðarplön: Klára stúdentinn í FÍV og síðan er stefnan sett á snyrtifræði. // Hver er sætasti leikmaður ÍBV? Garðar Örn er sætari en þeir allir. // Hvað dettur þér í hug þegar þu heyrir. orðið Þjóðhátíð? Skemmtun, djamm og fullt af fólki. // Áttu þér eitthvert mottó í lífinu? Að njóta lífsins meðan að maður getur. // Fjölskylda: Foreldrar mínir eru Kristín Finnbogadóttir og Ingibergur Einarsson, svo á ég tvær systur, Kiddý og Ásu. // Fyrirmynd: Ása systir og pabbi, sem kann allt og getur allt:) // Framtiðarplön: Klára stúdentinn, læra eitthvað spennandi og eignast fjölskyldu. Hver er sætasti leikmaður (BV? Bylgja Dögg Sigmarsdóttir :) // Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir orðið Þjóðhátíð? 4 daga stanslaus skemmtun. // Áttu þér eitthvert mottó í lífinu? Sá sem gerir aldrei mistök, gerir aldrei neitt. // Fjölskylda: Kári Þorleifsson og Agnes Einarsdóttir, Einar Kristinn bróðir og kærastinn minn, Bjarki Ómarsson. //Fyrirmynd: Móðir min, yndisleg í alla staði. // Framtíðarplön: Klára stúdentinn, fara svo í háskóla og mennta mig eitthvað sniðugt, eignast nokkur kríli og ýmislegt fleira skemmtilegt. // Hver er sætasti leikmaður ÍBV? Pétur Runólfsson, svili minn, að sjálfsögðu! // Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir orðið Þjóðhátíð? Langskemmtilegasta helgi ársins og gleðivökvi í miklu magni. // Áttu þér eitthvert mottó í lífinu? Þetta reddast.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.