Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2009, Page 27

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2009, Page 27
Fréttir / Fimmtudagur 4. júní 2009 27 Kristín Ósk skrifar - Skyndibitar fyrir sálina - Nú er það hamingjan: Er ferðalag, ekki áfangastaður Ég ætla bara að halda ótrauð áfram með skrifm um hamingjuna. Ég las þetta upp fyrir nokkra einstaklinga um daginn og mér fannst frábært að sjá og heyra hvemig einhver ein setning úr textanum eða eitt heil- ræði höfðaði misjafnlega til hvers og eins. Þannig að ég er þess full- viss um að þið finnið eitthvað í þessum línum sem höfðar til ykkar: 7. Gefðu af þér Haltu hurðinni opinni fyrir aðra, leiðbeindu ráðvilltum einstakling- um eða gerðu eitthvað annað fyrir fólk. Brostu til þess hvort sem þú þekkir það eða ekki og hrósaðu fólki. Þér líður betur þegar þú gefur af þér á óeigingjaman máta. En af því að fólk er allajafna gott og gerir reglulega góðverk án þess að taka eftir því er gott að gera fimm góðverk á einum degi, það hefur meiri áhrif en þegar góðverk- unum er dreift yfír lengri tíma. Umbunin er tvíþætt, betri líðan og jákvæð viðbrögð fólks. 8. Sparaðu Peningar gera þig ekki hamingju- sama/n. Engu að síður getur þú orðið ánægðari ef þú þénar meira en aðrir á sama aldri og þú. Senni- lega mátti rekja óhamingju Mídasar til þess að hann þekkti ekki fleiri konunga sem gátu breytt öllu í gull. Fleiri atriði varðandi peninga geta gefið gleði. Spamaður til seinni tíma þýðir að þú frestar ánægju og umbun. Það veitir öryggistil- fmningu og fleiri tilfinningar sem tengjast hamingjunni eins og til- hlökkun og eftirvæntingu. 9. Leitaðu hamingjunnar líkt og þú leitar árangurs Hamingjusamt fólk er líklegra til þess að ná árangri en óhamingju- samir, því hamingjusamir einstak- lingar setja sér frekar ný markmið og eru opnari fyrir nýjum tækifær- um. Árangur og farsæld færir ekki alltaf hamingju en getur þó gert það. Hamingja er sprottin af já- kvæðum tilfinningum vegna margra þátta eins og líkamlegrar heilsu, gáfnafars, fjölskyldu og reynslu. 10. Vertu í tcngslum við uppruna þinn Fagnaðu uppmna þínum og menn- ingu. Hvort sem þú gerir það með því að borða hangikjöt, lesa Laxnes eða bera íslandshálsmen. Aðfluttir gætu lesið skáldsögu eftir Gabríel Garcia Marquez, dansað salsa eða borðað indverskan mat... gert eitt- Bjartsýni er ekki meðfædd, hún er lærð. Ýmsar leiðir eru færar til þess að auka bjartsýni og hér eru þrjár þeirra: Réttu úr þér og gakktu ákveðið stórum skrefum, með axlirnar aftur og höfuðið hátt. Nei- kvæðir ganga hægum, litlum skrefum og horfa niður. Breyttu tóninum í röddinni þannig að hún verði bæði glaðleg og kraft- mikil. hvað til þess að viðhalda tengslum við heimalandið. Uppmni okkar er dýrmætur og ef við metum eigin menningu eigum við auðveldara með að mynda tengsl við aðra með sama bakgmnn. Um leið verðum verðum við opnari fyrir fjölmenn- ingu og margbreytileika. 11. Þekktu sjálfan þig Leitaðu í gamlar minningar eftir styrk, hæfileikum, ástríðu, áhugamálum og fæmi til þess að meta aðstæður. Þannig viðar þú að þér þekkingu og færð um leið ágætis mynd af því hvað gerir þig hamingjusama/n. Langi þig til þess að gefa meira til baka til sam- félagsins skaltu rifja upp hvað heillaði þig í æsku og hvað ekki. Ef þú hafðir óbeit á skátunum í æsku er ólíklegt að þú finnir þig í björg- unarsveit. Ef þú hafðir gaman af því að safna flöskum til styrktar íþróttafélaginu er líklegt að það höfði betur til þín að gefa tíma og peninga til félagasamtaka sem þú þekkir til og njóta samskipta við fólk en að millifæra inn á fjarlæg samtök. Það er mikilvægt að þekkja eigin stfi, smekk og áhugamál til þess að finna hamingjuna. 12. Vertu bjartsýnn Bjartsýni er ekki meðfædd, hún er lærð. Ýmsar leiðir eru færar til þess að auka bjartsýni og hér eru þrjár þeirra: Réttu úr þér og gakktu ákveðið stómm skrefum, með axlimar aftur og höfuðið hátt. Neikvæðir ganga hægum, litlum skrefum og horfa niður. Breyttu tóninum í röddinni þannig að hún verði bæði glaðleg og kraftmikil. Notaðu jákvæð orð í staðinn fyrir neikvæð. Talaðu um verkefni en ekki vandamál. Hugsaðu um ný tækifæri en ekki missi. Jákvæðar hugsanir hafa áhrif á heilann, sem og hegðun, með þeim afleiðingum að serotónínflæðið eykst. Þannig að ef þú gerir þetta mun heilinn fylgja þér eftir. Það getur tekið um fjórar til sex vikur að breyta um vana. Verið því þolinmóð. Ég geri mér grein fyrir að ég er kannski stundum að tyggja sama hlutinn ofan í ykkur aftur og aftur, en sjaldan er góð vísa of oft kveðin! ;) Bjartsýniskaflinn höfðaði mest til mín í þessum hluta, verkefni í stað vandamála, ný tæki- færi ekki missir. Óska ég ykkur velfamaðar að finna ykkar hluta og út frá því hamingjuna! Kœr kveðja, ykkar Kristín Ósk Vann skaða- bótamál -Er 20% öryrki eftir að hafa beðið í rúmar tíu klukkustundir eftir að komast í röntgen- myndatöku Eyjamaður á sjötugsaldri vann skaðabótamál gegn ríkinu vegna ófaglegrar meðferðar eftir að hann fór úr axlarlið. Það var að næturlagi í desember árið 2002 sem maðurinn datt úr sófa og fór úr axlarlið. Hann leitaði aðstoðar á Heilbrigðisstofnun Vestmanna- eyja í kjölfarið. I dómsorði Héraðsdóms Reykjavíkur segir: „Rúmar tíu klukkustundir liðu því stefnandi var fluttur á heilbrigðisstofnun- ina og þar til handleggur hans var kominn í axlarlið. Allan tímann leið stefnandi miklar kvalir og hlaut í kjölfarið tauga- skaða. Verður að taka undir það með stefnanda að starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Vest- mannaeyja hafi með aðgerða- léysi sínu og ófaglegum vinnu- brögðum sýnt af sér stórfellt gáleysi." Maðurinn fékk dæmdar 1,3 milljónir króna en málskostnaður var greiddur af ríkinu. www.visir.is greindi frá. Vel heppnað Hvítasunnumót SJÓVE í góðu veðri - Aflinn hátt í 8 tonn: Formaðurinn sjaldan verið ánægðari Hvítasunnumót SJÓVE hefur verið einn af stóru viðburðum þessarar helgar svo lengi sem elstu menn muna. Hámarki náði mótið upp úr miðri síðustu öld þegar þátttakendur voru vel á annað hundrað og ekki dugði minna en sjálfan Gullfoss, flagg- skip Islendinga, til að hýsa gest- ina sem fjölmenntu til Eyja til að taka þátt í þessu geysivinsæla sjóstangveiðimóti. Heldur hefur mótið misst flugið og þó stundum hafi blásið hressi- lega er engan bilbug að finna á Elínborgu Bernódusdóttur, for- manni SJÓVE til fjölda ára. Og þó keppendur hafi ekki verið margir í ár bætti veðrið það upp og útkoman var yndislegt mót að mati Elínborgar. I ár var 31 keppandi frá fjórum félögum og var keppt á níu bátum. Árangur var góður og drógu keppendur hátt í átta tonn. Aflahæsti karlinn var Rúnar H. Andrason SJÓAK með 537 kg, annar Árni Karl Ingason SJOVE með 462 kg og Ævar Þórisson SJÓVE með 459 kg. Anna S. Jóhannesdóttir SJÖAK dró mest kvennanna, 221 kg, Hildur Eðvarsdóttir SJÓSKIP dró 170 kg og Svala Júlía Ólafsdóttir SJÓSIGL með 169 kg. Rúnar dró flesta fiska, alls 427, Ævar var með 363 fiska og Árni Karl 300. Ólafur Hauksson SJÓVE dró flesta fiska, Gunnar Þór Friðriks- son SJÓVE átti stærsta þorskinn sem vó 12,45 kg. og Þiðrik Hrannar Unason SJÓSIGL dró stærstu ýsuna sem vó 3,15 kg. Lubba, undir stjórn Ólafs Tryggvasonar, var aflahæsti ÁRNI Karl og Olli Tryggva með verðlaunagripina. JÓN INGI báturinn með 1362 kg. Akureyringar áttu aflahæstu sveit karla. Hana skipuðu Rúnar H. Andrason, Tómas Gunnars- son, Róbert Gils Róbertsson og Baldvin S. Baldvinsson og saman drógu þeir 1388 kg. Eyjamenn urðu í öðru sæti í sveitakeppnin- gat verið ánægður með fenginn hlut. ni. Sveit Eyjamanna skipuðu Árni Karl Ingason, Jón Ingi Guðjónsson, Gunnar Þór Friðriksson og Sigtryggur Þrastarson. Eyjamenn áttu líka sveitina í þriðja sæti sem í voru þremenningamir Ævar Þórisson, Einar Birgir Einarsson og ÞRJÁR HRESSAR, Ella Bogga, Guðrún og Sonja. GUNNAR með myndarlegan þorsk. Myndir Halla Einarsd. Jóhann Ingvi Ingvason og var afli hefur formaðurinn sjaldan verið þeirra 852 kg. eins ánægður,“ sagði Elínborg að Um kvöldið var svo lokahóf í lokum. Kiwanis þar sem verðlaun voru veitt. „Eins og annað á þessu móti var lokahófið flott og við j dönsuðum fram á morgun við / undirleik Dans á rósum. Og

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.