Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2009, Side 31
Fréttir / Fimmtudagur 4. júní 2009
31
Pepsí deild karla: ÍBV - Grindavík 3:1 (1:0)
Engin markakrísa lengur hjá ÍBV
- Hafa skorað sex mörk í síðustu tveimur leikjum - Næsti leikur gegn Prótti
FAGNA MARKI. Eyjamenn hafa fagnað sex mörkum í síðustu
tveimur leikjum og virðast hafa fundið markaskóna eftir slaka byrjun.
Leikmenn ÍBV virðast vera búnir
að finna markaskóna því Eyja-
menn hafa skorað sex mörk í
síðustu tveimur leikjum sínum
eftir að hafa farið í gegnum fjóra
fyrstu leikina án þess að skora.
Liðið hefur nú hlotið sex stig og
hefur þotið úr tólfta og neðsta sæti
deildarinnar og upp í áttunda
sæti. Síðast lagði ÍBV Grindavík
að velli á Hásteinsvellinum, 3:1 en
sigur Eyjamanna var mjög sann-
færandi.
Heimir Hallgrímsson og hans menn
hafa greinilega unnið hárrétt úr
þeirri krísu sem var að myndast við
markaleysið í upphafi móts því nú
virðast engin bönd halda Eyja-
mönnum. Það besta við mörkin sex
er að fimm leikmenn hafa skorað
þau, aðeins enski framherjinn Ajay
Leitch-Smith hefur skorað meira en
eitt mark. Það virðast því allir geta
skorað sem er vissulega styrkleiki
fyrir liðið.
Næsti leikur IBV verður svo ekki
fyrr en sunnudaginn 14. júní í beinni
útsendingu Stöðvar 2 Sport.
Ungu mennirnir blómstra
Leikurinn gegn Grindavík var
reyndar svolítið kaflaskiptur. Eyja-
menn voru allsráðandi fyrsta hálf-
tímann, komust í 1:0 með glæsi-
marki Gauta Þorvarðasonar og hefðu
líklega átt að bæta við fleiri mörkum.
En síðasta stundarfjórðung fyrri
hálfleiks sóttu Grindvíkingar mikið
án þess þó að skapa sér veruleg
marktækifæri. Eyjamenn voru svo
mun sterkari í síðari hálfleik og í
raun var sigur ÍBV ekki í mikilli
hættu. Þetta var þó ekki besti leikur
IBV í sumar en aftur eru það
styrkleikamerki að vinna svoleiðis
leiki.
Það var líka sérlega gaman að
fylgjast með Eyjamönnunum ungu,
Gauta Þorvarðarsyni og Eiði Aroni
Sigurbjörnssyni sem léku á sinn
hvorum enda vallarins. Gauti var
sívinnandi og skoraði gull af marki í
fyrri hálfleik á meðan Eiður Aron
hélt hinum sterka framherja Grind-
víkinga, Gilles Ondo, algjörlega
niðri í samvinnu við Andrew
Mwesigwa.
Vorum fullrólegir í byrjun
íslandsmótsins
Heimir Hallgrímsson var ánægður
með sigur Eyjamanna í leikslok en
hann segir mikinn mun á IBV liðinu
nú og í byrjun móts. „í fyrsta lagi
erum við búnir að taka okkur saman
í baráttunni á vellinum. Við vorum
kannski fullrólegir á boltanum í
fyrstu leikjunum þótt við hefðum á
margan hátt spilað ágætlega. Við
höfum fært liðið aðeins framar og
reynt að vinna boltann hærra uppi á
vellinum. Eg held að það sé aðal-
breytingin. Eins og ég segi þá vorum
við ekkert að spila illa í þessum
fjórum fyrstu leikjum. Eini lélegi
leikurinn til þessa var í raun og veru
Stjörnuleikurinn en í hinum höfurn
við spilað vel. Við náðum bara ekki
að skora og það háði okkur eðli-
lega.“
Flestir eru á því að leikirnir tveir,
gegn Fjölni og Grindavík hafi verið
sex stiga leikir því liðunum þremur
var spáð fallbaráttu í sumar. Næsti
leikur er svo gegn Þrótti sem líka var
spáð fallbaráttu og því þriðji sex
stiga leikurinn í röð. „Við megum
ekki tapa stigum á móti þessum
liðum, síst af öllu á heimavelli. Það
er kannski kjánalegt að segja það en
mér finnst skárra að tapa fyrir
liðunum í efri hlutanum. En ef við
sjulum svona þá hræðist ég engan."
IBV hefur spilað leikkerfið 4-4-2 í
síðustu leikjum en byrjaði tímabilið í
leikkerfmu 4-5-1. Hentar 4-4-2 ÍBV
betur?
„Við höfum spilað með einn fram-
herja síðustu tvö ár, einfaldlega af
þeirri ástæðu að við áttum bara einn
framherja og gátum ekki leikið
annað leikkerfi. Núna erum við með
fimm framherja í hópnum sem við
getum notað. Að sjálfsögðu nýtum
við þessa stráka, sérstaklega á
heimavelli. En svo eigum við leiki á
útivelli þar sem kannski verður skyn-
samlegra að nota bara einn framherja
en það kemur allt í ljós,“ sagði
Heimir að lokum
Byrjunarlið ÍBV 4-4-2
Albert Sævarson, Matt Garner, Eiður
Sigurbjörnsson, Andrew Mwesigwa,
Pétur Runólfsson, Þórarinn Ingi
Valdimarsson, Andri Ólafsson,
Yngvi Borgþórsson, Christopher
Clements, Ajay Leitch-Smith, Gauti
Þorvarðarson.
Varamenn
Viðar Örn Kjartansson (kom inn á
fyrir Smith á 80.), Arnór Eyvar
Ólafsson (kom inn á fyrir Gauta á
69.), Atli Guðjónsson, Augustine
Nsumba (kom inn á fyrir Þórarin á
84.), Ingi Rafn Ingibergsson, Elías
Fannar Stefnisson.
Mörk ÍBV
Gauti, Ajay og Viðar Öm.
Pepsí deild karla
FH 6 5 0 1 15:6 15
Stjaman 6 4 1 1 16:8 13
KR 6 3 2 1 10:5 11
Fylkir 6 3 2 1 9:5 11
Keflavík 6 3 2 1 10:7 11
Valur 6 3 1 2 8:8 10
Breiðablik 6 2 2 2 11:12 8
IBV 6 2 0 4 6:9 6
Fram 6 l 2 3 5:6 5
Fjölnir 6 1 1 4 7:14 4
Grindavík 6 1 I 4 7:15 4
Þróttur 6 0 2 4 4:13 2
Eiður og Heimir Hallgríms-
son, þjálfari IBV, handsala
samninginn.
Eiður samdi til
þriggja ára
Eiður Aron Sigurbjömsson, vam-
armaðurinn ungi, hefur skrifað
undir þriggja ára samning við
ÍB V en Eiður hefur leikið betur og
betur með IBV í byrjun móts. A
sama tíma var Eið tilkynnt að
hann hefði verið valinn í U-21 árs
landslið íslands sem leikur gegn
Dönum ytra á morgun. Eiður
hefur vakið verðskuldaða athygli í
undanfömum leikjum og er vel að
landsliðsútnefningunni kominn.
Þá var Eiður annar tveggja ÍBV-
manna í liði umferðarinnar að
mati Morgunblaðsins. Hinn var
fyrirliðinn Andri Ólafsson.
Auk þess vom þrír leikmenn
ÍB V í liði umferðarinnar á vefnum
Fótbolti.net en það voru þeir
Andri, Gauti Þorvarðarson og
Christopher Clements. Mark
Gauta var jafnframt kostið mark
umferðarinnar.
Jl
1. deild kvenna: Tindastóll/Neisti - ÍBV 0:11
Glæsileg byrjun hjá stelpunum
Stelpurnar í meistaraflokki í fót-
bolta byrjuðu tímabilið með
sannkölluðum stórsigri á útivelli
þegar þær sóttu sameiginlegt lið
Tindastóls og Nehsta heim í
Skagafjörðinn. IBV sigraði
norðanstúlkur 0:11 en staðan í
hálfleik var 0:8 fyrir ÍBV. Liðin
leika í B-riðli 1. deildar eða næst-
efstu deild og er næsti leikur IBV
liðsins hér á heimavelli gegn
Völsungi á sunnudaginn.
Þórhildur Ólafsdóttir gerði sér lítið
fyrir og skoraði fjögur mörk í
leiknum gegn Tindastóli/Neista og
Kristín Erna Sigurlásdóttir gerði þijú
mörk. Þá skoraði Thelma Sigurðar-
dóttir tvö, Sóley Guðmundsdóttir
eitt og Laura East eitt mark. ÍBV
komst þó ekki áfallalaust í gegnum
leikinn því í lok fyrri hálfleiks
meiddist Becky Merrit, nýr leik-
maður frá Crystal Palace, illa á ökkla
eftir Ijóta tæklingu.
Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari
IBV, var að vonum sáttur við leikinn.
„Þetta var algjör einstefna í fyrri
hálfleik eins og hálfleikstölur gefa til
kynna. Svo róaðist þetta aðeins í
seinni hálfleik enda vill það oft
gerast þegar lið ná svona góðri
forystu að þau hægi ferðina. En það
virðist vera þannig í B-riðli að það
eru tvö lið sem eru slakari en hin
SKORAÐI FJÖGUR. Þórhildur
Ólafsdóttir skoraði fjögur mörk
gegn Tindastóli/Neista.
fímm í upphafi móts og Tinda-
stóll/Neisti er annað þeirra. Hin
fímm liðin eru hins vegar mjög jöfn
þannig að það reynir í fyrsta sinn á
getu liðsins á sunnudaginn gegn
Völsungi. En það verður gaman að
byrja gegn þeim,“ sagði Jón Ólafur.
Hann bætir því við að meiðsli
Becky séu hundleiðinleg. „Hún
kemur væntanlega til með að geta
æft og spilað en þessi meiðsli eiga
samt eftir að há henni í næstu
leikjum. Aðrir leikmenn eru heilir,
ég reyndar hvíldi Sögu Huld í
leiknum fyrir norðan, hún hefur
verið meidd í læri en er nú heil.“
Byrjunarlið ÍBV
Karítas Þórarinsdóttir, Hafdís
Guðnadóttir, Kolbrún Stefánsdóttir,
Elísa Viðarsdóttir, Sædís Magnús-
dóttir, Laura East, Becky Merrit,
Sóley Guðmundsdóttir. Thelma
Sigurðardóttir, Kristín Erna Sigur-
lásdóttir, Þórhildur Ólafsdóttir.
Varamenn
María Guðjónsdóttir (kom inn á fyrir
Þórhildi á 65.), Hlíf Hauksdóttir
(kom inn á fyrir Sóley á 46.), Bylgja
Dögg Sigmarsdóttir (kom inn á fyrir
Merrit á 46.), Saga Huld Helgadóttir
(kom inn á fyrir Elísu á 65.)
Mörk ÍBV
Þórhildur (4), Kristín Erna (3),
Thelma (2), Sóley, East.
B-riðill 1. deildar kuenna
Haukar 3 3 0 0 7:1 9
ÍBV 1 1 0 0 11:0 3
FH 2 1 0 1 7:1 3
Draupnir 3 1 0 2 4:14 3
Völsungur 0 0 0 0 0:0 0
ÍA 1 0 0 1 1:2 0
T.stóll/Neisti 2 0 0 2 3:15 0
Iþróttir
ÍBV fékk
Víking R.
í hádeginu í dag, fimmtudag var
dregið í 32ja liða úrslit VISA
bikarkeppni karla. ÍBV var í pott-
inum en KFS féll úr leik í síðustu
umferð. Eyjamenn fengu heima-
leik en andstæðingurinn kemur úr
l. deild og er Víkingur Reykjavík.
Liðin léku í l. deild síðasta sumar
þar sem ÍBV hafði betur í tveimur
viðureignum liðanna, fyrst 1:4 á
útivelli og svo l:0 á heimavelli.
Leikirnir í 32ja liða úrslitum fara
fram l8.og 19. júní næstkomandi.
Misstu unninn
leik í jafntefli
Annar flokkur kvenna lék í síð-
ustu viku gegn Val á heimavelli í
fyrsta leik sínum í A-deild
íslandsmótsins. Eyjastelpur
komust í l:0 í fyrri hálfleik og
bættu svo við öðru marki í þeim
síðari. En þegar átta mínútur voru
eftir hrökk allt í baklás, Vals-
slelpur skoruðu tvö mörk og
lokatölur urðu því 2:2. Mörk ÍBV
gerðu þær Herdís Gunnarsdóttir
og Kristín Erna Sigurlásdóttir.
Byrjuðu á
stórsigri
Annar Ilokkur karla hóf leik í C-
deild íslandsmótsins í gær,
miðvikudag þegar strákamir tóku
á móti Aftureldingu. ÍBV og KFS
senda sameiginlegan 2. flokk
þannig að leikmenn liðsins eru
einnig gjaldgengir í lið KFS í 3.
deild. En annar flokkur fór vel af
stað, lokatölur gegn Aftureldingu
urðu 7:l ÍBV í vil. Víðir
Þorvarðarson skoraði þrjú mörk
fyrir ÍBV en þeir Christopher
Clements, Þorleifur Sigurlásson,
Viðar og Kjartan Guðjónsson eitt
mark hver.
KFS úr leik
KFS féll úr bikarkeppni KSÍ og
VISA þegar liðið tapaði naumlega
gegn 2. deildarliði Víðis en
ieikurinn fór fram í Garði. KFS
komst yfir í seinni hálfleik með
marki Trausta Hjaltasonar úr víti
en Víðismenn svöruðu með
tveimur mörkum og lokatölur
urðu 2:1.
Framundan
Föstudagur 5. júní
KI. 17.00 ÍBV-Leiknir
4. flokkur karla
Kl. 18.00 ÍBV-Breiðablik
2. Ilokkur kvenna.
Laugardagur 6. júní
Kl. 12.30 Grótta-IBV/KFS
2. Ilokkur karla.
Kl. 13.00 KB-KFS
3. deild karla.
Kl. 13.00 HK-ÍBV
3. flokkur kvenna.
Sunnudagur 7. júní
Kl. 14.00 IBV-Völsungur
l. deild kvenna.
Mánudagur 8. júní
KI. 14.15 ÍBV-Stjaman
3. flokkur karla, AB.
Kl. 16.00 Leiknir-ÍBV
4. flokkur kvenna.
Þriðjudagur 9. júní
Kl. 18.00 ÍBV-FH
3. flokkur kvenna, bikar.
Kl. 15.00 ÍA-ÍBV
5. flokkur karla, ABCD.
Kl. 17.50 ÍBV2-Þróttur2
5. flokkur kárla, D.