Fréttir - Eyjafréttir - 17.12.2009, Page 33
Fréttir / Fimmtudagur 17. desember 2009
33
Glæsileg jólasýning Fimleikafélagsins Ránar um helgina:
Skemmtilegir taktar og mikill efniviður
Hin árlega jólasýning Fimleika-
félagsins Ránar var haldin á laug-
ardaginn í íþróttamiðstöðinni.
Jólasýningin hefur fyrir löngu
skapað sér fastan sess í
undirbúningi jólanna, sérstaklega
hjá þeim fjölskyldum sem eiga
börn sem iðka hina göfugu íþrótt
sem fimleikarnir eru. Sýningin í
ár var bráðskemmtileg, krakkarnir
sýndu skemmtilega takta og fim-
leikafélagið á mikinn efnivið fyrir
komandi ár. Fjölmargir áhorf-
endur höfðu gaman af tilþrif-
unum en milli þrjú og fjögur
hundruð manns fylgdust með.
I ár voru ellefu hópar sem sýndu
hver í sínu lagi en jólasýningin í ár
byrjaði með skemmtilegu hópatriði
þar sem öll börnin, á aldrinum 4 til
18 ára, sýndu saman lítið dansatriði.
Eins og alltaf er skemmtilegt að sjá
yngstu iðkenduma sem eru að stíga
sín fyrstu skref í íþróttinni en einnig
gaman að sjá framfarirnar hjá þeim
sem elstir eru. Elsti hópurinn sýndi
svo afburða takta, en í elsta hópnum
eru fjórar stúlkur sem gera kúnstir
sem engum öðrum dytti í hug að
reyna. Alls voru krakkamir 140
talsins og sýndu dans, æfingar á
dýnu, trampólíni, slá og tvíslá.
I lok sýningarinnar voru svo veittar
viðurkenningar. Hrafnhildur Stefáns-
dóttir fékk Kristbjargarbikarinn
fyrir að vera efnilegust á árinu.
Gígja Sunneva Bjarnadóttir fékk svo
Ránarstyttuna en Gígja náði bestum
árangri hjá félaginu á árinu. Þá var
Krístínu Asmundsdóttur sýndur
mikill heiður þegar hún var valin
fyrsti heiðursfélagi Fimleika-
félagsins Ránar. Kristín starfaði
sem formaður félagsins um áraraðir
auk þess að starfa með félaginu í
fjölmörg ár þar fyrir utan. Kristín
lét af störfum sem formaður í haust.
Og það verður ekkert slegið slöku
við á nýju ári því framundan em
fjölmörg mót hjá Ránarkrökkunum.
Svanfríður Jóhannsdóttir, yfirþjálf-
ari, segir að farið verði á meira en
eitt mót í mánuði það sem eftir lifir
vetrar. „Næst er það Þrepamót hjá
áhaldastelpunum um mánaðamótin
janúar-febrúar. Svo verða þetta mót
í hverjum mánuði en við endum svo
á stóru móti í hópfimleikum hér í
Eyjum 15. maí. Við búumst við
fímm eða sexhundruð keppendum á
það mót og við finnum að það eru
margir spenntir fyrir því að koma til
Eyja. Síðast var þetta mót á
Egilsstöðum og heppnaðist mjög vel
en Fimleikasamband fslands reynir
að halda þessi mót úti á landi til að
krakkarnir fái tækifæri til að kynn-
ast betur.“
Þessar stelpur tóku sig vel út með jólasveinahúfurnar á hausnum.
Kristín Ásmundsdóttir og Anna Hulda Ingadóttir, formaður.
Oska öllum bæjarbúum
Gleðilegra jóla og góðs árs.
Þakka hlý bros og kveðjur
Freyja á Nýlendu
v_____________________
Q7estmanmegjumjálin 2009
QKœru vinir 0$ oBttingjœr
Q00 óskum pkkur öllum
gleðileprajók, órs og fndor,
med fakkloeti fprir mnskop eg frœndsemi I0in-
na óra. jfafnframí vifum vid pakka fprir hlþ-
for kvedjur ocp qódar hupsonir til f ölskpldun-
nor á efdum síundum á I0nu sumri.
cMdnfrét ofóhannsdóttir
ðjföhkplda
A
Strumparnir voru krúttlegir og stóðu sig virkilega vel á sýningunni.
Þessi unga dama var með ein-
beitinguna í lagi.
Hrafnhildur Stefánsdóttir fékk Kristbjargarbikarinn og Gígja Sunneva
Bjarnadóttir fékk Ránarstyttuna.