Fréttir - Eyjafréttir - 11.03.2010, Side 11
Frcttir / Fimmtudagur 11. mars 2010
11
Skóiahomið - Allt sem ég raunverulega þurfti að læra -
Lærði ég í leikskólanum
Af mörgu er að taka þegar fjallað
er um það starf sem fram fer í leik-
skólum í dag. Það sem lærist er
eitthvað sem einstaklingurinn býr
að alla sína ævi. Heilræði Robert
Fuglhum segja meira en margar rit-
gerðir eða bækur.
I skrifum okkar þessa vikuna þá
langar okkur að deila þessum heil-
ræðum með ykkur; Mest af því sem
ég raunverulega þarf að vita um
hvemig á að lifa, hvað að gera og
hvemig að vera, lærði ég í leik-
skólanum. Viskan er ekki efst í
menntapíramídanum heldur í sand-
kassanum í leikskólanum. Þetta er
það sem ég lærði:
Deildu öllu. Vertu sanngjam. Ekki
berja fólk. Settu hluti aftur þar sem
þú fannst þá. Taktu til eftir sjálfan
þig. Ekki taka hluti sem þú átt ekki.
Biddu afsökunar þegar þú meiðir
einhvem. Þvoðu þér um hendumar
áður en þú borðar. Sturtaðu niður.
Heitar kökur og köld mjólk gera
þér gott. Lifðu lífinu í jafnvægi.
Lærðu eitthvað og hugsaðu eitt-
hvað og teiknaðu og málaðu og
syngdu og dansaðu og leiktu þér og
starfaðu eitthvað alla daga. Fáðu
þér blund síðdegis alla daga. Þegar
þú ferð út í heiminn, varaðu þig á
umferðinni, haltu í höndina á ein-
hverjum og haldið hópinn. Vertu
vakandi fyrir furðuverkum. Mundu
eftir litla fræinu í plastmálinu, rótin
fer niður en plantan upp og enginn
veit í raun og veru hvemig eða af
hverju, en svona emm við öll.
Gullfiskar, hamstrar, hvítar mýs
og líka jafnvel litla fræið í plast-
málinu - þau deyja öll. Einnig við.
Og mundu svo eftir bókinni um
Dick og Jane og fyrsta orðinu sem
þú lærðir, sem var mikilvægast
allra: Sjáðu. Allt sem þú þarft að
vita er einhvers staðar í þessu.
Gullna reglan og kærleikurinn og
frumatriði hreinlætis. Vistfræði og
stjórnmál og heilbrigt lífemi.
Hugsaðu þér hversu miklu betri
heimurinn væri ef við öll, allur
heimurinn, fengi kökur og mjólk
klukkan þrjú á hverjum degi og
legði sig síðan í smátíma með tepp-
in ofan á sér. Eða að við öll hefðum
þá grundvallarreglu að setja alltaf
hluti aftur þar sem við fundum þá
og alltaf að þnfa eftir okkur. Og
það er ennþá rétt, sama hve gamall
þú ert, að þegar þú ferð út í hinn
stóra heim er best að haldast í
hendur og halda hópinn.
Með kveðjufrá leikskólanum Sóla.
Eyjamaðurinn Sigurður Guðgeirs slær í gegn með Suzushii í Kringlunni
Fékk hæstu einkunn í Gestgjafanum
í nýjasta hefti Gestgjafans fær
veitingastaðurinn Suzushii í
Kringlunni, sem eins og nafnið
bendir til einbeitir sér að sushi-rétt-
um, hæstu einkunn veitingastaða í
þessum geira í Reykjavík. Suzushii
er nýr veitingastaður, var opnaður á
öskudaginn og eigendur hans em
Eyjamaðurinn Sigurður Guðgeirs-
son og Ásta Sveinsdóttir, kona
hans. Viðtökumar hafa verið mjög
góðar og algjör sprenging varð eftir
að dómurinn birtist í Gestgjafanum.
„Viðtökumar hafa verið vægast
sagt góðar og allt vitlaust að gera
eftir að umsögnin kom í Gest-
gjafanum, sagði Sigurður. „Það
segja allir að svona stað hafí vantað
á Stjörnutorgið hér á þriðju hæðinni
í Kringlunni. Það þyrfti eitthvað
ferskt á móti öllu brauðinu og
brasaða matnum sem hér er í boði.“
Sigurður og Ásta kona hans, sem
á ættir að rekja til Eyja, amma
hennar, Ásta S. Hannesdóttir, er frá
Hæli, em í þessu á fullu en í allt
eru sjö starfsmenn á Suzushii í
fullu starfi. Fá þeir sérstakt hrós í
Gestgjafanum. „Þau standa sig
rosalega vel. Það þarf að læra að
búa til sushi og ég vil fá óreynt fólk
sem ég síðan móta eins og leir og
það hefur skilað sér.“
Sigurður er, eins og áður hefur
komið fram, Eyjamaður, foreldrar
hans eru Guðgeir Matthíasson og
Lovísa Sigurðardóttir. Hann fór í
kokkanám 1995 og útskrifaðist í
Perlunni 1999. „Þá tók við eitt ár á
Holtinu. Meðan ég var þar kom til
mín maðúr og spurði hvort ég hefði
áhuga á að læra að útbúa sushi. Það
var ekkert vinsælt á þessum tíma,
var svona á kantinum en niðurstað-
an varð sú að ég fór til Kaup-
mannahafnar og byrjaði hjá Isao
Suzuki. Þá varð ekki aftur snúið og
hann var meistari minn í tvö ár,“
sagði Sigurður sem sneri heim til
að boða fagnaðarerindið. Og
honum hefur orðið talsvert ágengt.
„Eg varð yfirkokkur á veitinga-
staðnum Stick and Sushi og hef
verið með námskeið í sushigerð í
heimahúsum, hjá Mími sfmennt-
SIGURÐUR að störfum - Sushigerð er mikil handavinnna.
unarstöð og einu sinni skrapp ég út
í Eyjar og var með námskeið hjá
Visku. Það nýjasta eru námskeið í
Veisluturninum hjá Sigga Gísla.
Þau byrjuðu í haust og er alltaf
fullt. Auk þess hef ég verið ráðgjafi
fyrir veitingastaði í þessum geira.“
Sigurður segir það útheimta miklu
vinnu að reka veitingastað. „Það
þýðir ekki að skella sér í jakkafötin
og kaupa stóran jeppa. Þetta er púl
og eins og með rekstur á öllum
fyrirtækjum þá þarftu að vinna. Ég
hræðist það ekki, er Eyjamaður og
kann það,“ sagði Sigurður sem er
bjartsýnn á framtíðina. „Það er ekki
hægt annað, miðað við þær
viðtökur sem við höfum fengið á
þeim þremur vikum síðan við
opnuðum."
í Gestgjafanum eru tilgrcind _
níu atriði þar sem segir m.a. I
alla staði frábær, sérstaklega
ferskur og fallega skorinn, allt
ferskt og gott, starfsfólk er sagt
mjög hæft og með bros á vör.
„Frábær viðbót við sushimenn-
inguna hér á landi. Þarna eru
fagmenn- og konur á ferð,“
segir í lokorðum úttektarinnar
og einkunnin er níu af tíu
mögulegum í einkunn.
Það eru til nokkrar tegundir af
sushi. Hráefnið er m.a. hrís-
grjón, þang og hrár fiskur og
er það borið fram með soya
sósu, wasabi sem er sterk
japönsk piparrót og engifer.
Framkvæmda- og
hafnarráð:
Boðar
hreins-
unarátak
Framkvæmda- og hafnarráð sam-
þykkti á síðasta fundi sínuni að
ráðast í hreinsunarátak á hafnar-
svæði og nágrenni fyrir lok apríl.
Lóðarhöfum á hafnarsvæði
verður sent bréf þar að lútandi
ekki seinna en fyrstu vikuna í
apríl. Forstöðumanni Vestmanna-
eyjahafnar var falið að sjá um
framgang málsins.
Þá fjallaði ráðið um umferðar-
mál á Básaskersbryggju við af-
greiðslu Herjólfs. Vísað er til
örtraðar sem myndast vegna
bílaumferðar milli Herjólfs og
Bása í tengslum við komu og
brottför Herjólfs. Ráðið sam-
þykkti að loka fyrir umferð
ökutækja milli afgreiðslu Herj-
ólfs og norðurhliðar Bása til
reynslu en nú er verið að vinna að
tillögum að deiliskipulagi á hafn-
arsvæðinu.
5 milljónir í
malbik-
unarstöð
Ragnar Þór Baldvinsson fór yfir
stöðu mála varðandi lagfæringar í
malbikunarstöð á fundinum.
Lagði hann fram tilboð í raf-
magnsketil að upphæð 1700
þúsund án virðisauka. Fram kom
hjá Ragnari að tilboð Skipalyft-
unnar ehf. í viðgerð á þurrkara
stendur óbreytt.
Ráðið samþykkti að festa kaup á
Fulton rafskautakatli EP 72.
Einnig fól ráðið Ragnari að halda
áfram með endurbætur sem fyrir-
hugaðar voru á stöðinni, sem eru
lagfæring á þurrktromlu o.fi.
Áætlaður heildarkostnaður við
nýjan rafskautaketil og þurrkara
eru 5 milljónir króna.
Friðrik á að
stýra
Á fundinum gerði Friðrik Björg-
vinsson, verkefnisstjóri, fór yfir
stöðu endurbóta á upptökuman-
nvirkjum Vestmannaeyjahafnar á
síðasta fundi framkvæmda- og
hafnarráðs.
Fundargerð stýrihóps var lögð
fram og áætlun um framhald
verksins. í fundargerð ráðsins
kemur fram að Siglingastofnun
hefur samþykkt að taka að sér
umsjón með ákveðnum verkþátt-
um.
I Ijósi umfangs verksins sam-
þykkti ráðið að óska eftir því að
Friðrik Björgvinsson færist að
mestu leyti yfir á verkefnið til
ársloka 2010.