Fréttir - Eyjafréttir - 21.07.2011, Blaðsíða 7
Fréttir / Fimmtudagur 21. júlí 2011
7
Gréta Grétarsdóttir, formaður Félags kaupsýslumanna, skrifar um Löngulág:
Bæjaryfirvöld líti á aðra kosti
-Stuðli að frekari uppbyggingu á miðbæjarsvæðinu
Skipulagsmál við Löngulág eru lfk-
lega eitt stærsta og mikilvægasta
verkefni bæjaryfirvalda síðustu
misseri. Einfaldlega vegna þess að
svæðið sem um ræðir er gríðarlega
stórt og mun skipta miklu máli um
framtíðaruppbyggingu í Vest-
mannaeyjum hvað verður byggt á
svæðinu, ef eitthvað. Næstu áratugir
eru undir í þeim efnum.
Grein Gunnlaugs Grettissonar for-
manns umhverfis- og skipulagsráðs
í síðustu Fréttum varpar ljósi á
afstöðu hans og meirihluta ráðsins í
þessum efnum. Þar skal byggt versl-
unarhúsnæði, eina spurningin er
hversu stórt það á að vera. Hann
setur fram þrjá kosti, að ekkert verði
byggt, takmörkuð bygging versl-
unarhúsnæðis eða leyfa byggingu
fyrir umsóknunum sem komnar eru.
Fjórar tillögur hafa verið ræddar og
allar snúa þær að sama hlutnum.
Verslunarhúsnæði á svæðinu. Hvers
vegna er ekki meira undir? Hvers
vegna er bæjarbúum ekki gert kleift
að velja á milli verslunarsvæðis,
íbúðasvæðis eða útivistarsvæðis?
Eina sem bæjarbúar fá að tjá sig um
er hversu stórt verslunarhúsnæðið á
að vera. Er það allt lýðræðið sem
Gunnlaugur vill standa fyrir?
Til að átta sig á því hvað er undir
í þessum efnum er gott að átta sig á
umfangi verslunar í Vestmannaeyj-
um í dag. Alls eru rúmlega 6.800
fermetrar undir verslunar og þjón-
usturými í Eyjum. Umsóknirnar
sem Gunnlaugur minnist á í grein
sinni nema byggingu á 5500 fer-
metrum til viðbótar. Það er því rétt
að staldra við og spyrja sig að því
hvort slíkt ferlíki er nauðsynlegt
miðað við íbúafjölda og hvort slfkt
eigi að vera forgangsatriði á verð-
mætasta byggingasvæði bæjarins í
dag.
Eins er rétt að benda Gunnlaugi á
að meðlimir í Félagi kaupsýslu-
manna í Vestmannaeyjum eru í sam-
keppni á hverjum degi og óttast ekki
slíkt. Eins og kemur fram í athuga-
semdum félagsins, sem Gunnlaugur
hefur undir höndum, er óttast um
afdrif miðbæjarins sem bæjaryfir-
völd hafa á undanfömum ámm lagt
umtalsverða fjármuni í. Búið er að
blása lífi í miðbæinn með sam-
eiginlegu átaki einkaaðila og
bæjaryfirvalda. Miðbærinn okkar er
farinn að standa undir nafni.
Félagið hvetur bæjaryfirvöld til að
líta á aðra kosti en þennan með slíka
byggingu í huga og stuðla að frekari
uppbyggingu á miðbæjarsvæðinu.
Ekki gera sömu skipulagsmistök og
mörg önnur sveitarfélög hafa gert
með byggingu stórra verslun-
armiðstöðva í úthverfum bæjarins.
Vítin em til að varast þau.
Við vonumst eftir málefnalegri
umræðu um þessi mál og að sem
flestir taki þátt í þeirri umræðu.
Gréta Grétarsdóttir
Formaður Félags kaupsýslumanna
í Vestmannaeyjum
■ n'‘laíLhinr | * j .“fw'*8**'*a-
LANGALÁG þar sem malarvöllurinn er. -Ekki gera sömu skipulagsmistök og mörg önnur sveitarfélög hafa
gert með byggingu stórra verslunarmiðstöðva í úthverfum bæjarins. Vítin eru til að varast þau, segir Gréta,
formaður Kaupsýslumanna í Vestmannaeyjum.
Starfsfólk Volcano kann að skemmta sér
Á sunnudagskvöldið var slegið upp
starfsmannagleði á Volcano Café sem
lialdin var út um víðan völl á Heimaey.
Fyrst var haldið að Lyngfelli þar sem
Ása og Palli voru tilbúin með hesta fyrir
þá sem vildu fara í útreiðartúr. Auk
þess buðu eigendur Volcano, Gummi og
Vala upp á heilsudrykki. Þaðan var
haldið upp á Helgafellsvöll þar sem
farið var í leiki og áfram voru heilsu-
drykkir í boði.
Þar sýndu sumir ótrúlega takta og
færni. Þegar fólk hafði reynt með sér á
Helgafellsvelli var haldið niður á
Volcano þar sem beið veisluborð og enn
meira af heilsudrykkjum. Líka var farið
í leiki og þrautir og á eftir var stiginn
dans. Lella fékk við það tækifæri mynd
af frægum manni sem er í miklu
uppáhaldi hjá henni og ætlar að gista
hjá henni á þjóðhátíð.
Það var komið fram á mánudags-
morgun áður cn gleðinni lauk en eitt-
hvað var úthaldið misjafnt eins og
gengur.
NÝKOMNAR úr útreiðartúr með bros út að eyrum. Iris Eir, Lísbet Kjartans og Þóra Fríða.
KNÁIR KNAPAR Henný, Þóra og Anton sýndu snilldartakta á
FLOTTIR Biggi, Örvar og Darri með hollustudrykki.
. . ,§m w*~
DANSAÐ fram á rauðanótt Þegar leið á kvöldið var dansinn stiginn af miklum móð.
PLANKAÐ Vala og Gummi tóku plankið alvarlega.