Fréttir - Eyjafréttir - 21.07.2011, Blaðsíða 15
préttir / Fimmtudagur 21. júií 2011
15
Iþróttir
Knattspyrna:
2. flokkur í
undanúrslit
Annar flokkur karla er kominn í
undanúrslit í Valitorbikar-
keppninni. Strákamir unnu HK í
hörkuleik í Kópavogi á mánu-
daginn en lokatölur urðu 1:2 fyrir
IBV. Brynjar Gauti Guðjónsson
kom ÍBV yfír á 71. mínútu en HK
jafnaði úr vítaspyrnu aðeins
fjórum mínútum síðar. En hlut-
irnir gerðust hratt því fjórum
mínútum síðar kom Bjarki
Axelsson ÍB V aftur yfir og þar við
sat. Þess má til gamans geta að
Bjarki hefur spilað með KFR en
KFR. KFS og ÍBV tefla saman
sameiginlegu liði í 2. flokki.
Afraksturinn er góður því
flokkurinn hefur ekki náð betri
árangri í mörg herrans ár og liðið
er komið í undanúrslit í bikamum
eins og áður sagði en er auk þess í
efsta sæti B-riðils fslandsmótsins.
Knattspyrna
Jón Óli valinn
bestur
Jón Olafur Daníelsson, þjálfari
kvennaliðs ÍBV, var í síðustu viku
valinn besti þjálfari fyrri umferðar
Pepsídeildar kvenna. Það vom
sérfræðingar á vegum KSÍ sem
völdu hann bestan en þeir völdu
einnig lið fyrri umferðarinnar og
þar vom þær Elísa Viðarsdóttir og
Bima Berg Haraldsdóttir. Jón
Olafur var einnig valinn besti
þjálfari fyrri umferðarinnar á
vefnum Fótbolti.net og skal engan
undra enda hafa nýliðar ÍBV
komið mest á óvart í íslands-
mótinu.
FC Krabbi:
Spila
heimaleikina
á Eyrarbakka
Nýjasta íþróttafélag Vestmanna-
eyja, FC Krabbi, sem leikur í
sunnlensku deildinni í knattspymu,
fær ekki að leika heimaleiki sína í
Vestmannaeyjum. Félagið fær ekki
afnot af einum af fjómm grasvöll-
um bæjarins nema gegn 60 þúsund
króna gjaldi. FC Krabbi greiðir
ennfremur fýrir æfingaaðstöðu á
meðan önnur félög gera það ekki.
Félagið spilar hins vegar sína
heimaleiki á Eyrarbakka, án endur-
gjalds.
Óskar Guðjón Kjartansson, einn
af forsvarsmönnum félagsins,
segir það brot á jafnræðisreglu að
mismuna íþróttafélögum með
þessum hætti. „Við verðum að
hafa það í huga að ÍBV, KFS og
FC Krabbi em allt áhugamanna-
félög en einu þeirra er ekki hleypt
inn í húsið nema gegn gjaldtöku.
Eg hef bæði verið í viðræðum við
Vestmannaeyjabæ og ÍBV-íþrótta-
félag, um að fá að spila heimaleik-
ina í Eyjum en það hefur skilað
litlu. ÍBV-íþróttafélag rekur í raun
vellina samkvæmt vallarsamningi
við Vestmannaeyjabæ en hjá ÍBV
komum við að lokuðum dymm.“
Óskar segir að með framkomu
sinni sé ÍBV ekki aðeins að úthýsa
FC Krabba heldur einnig að tapa
stuðningsmönnum. „Okkar leik-
menn hugsa sig tvisvar um áður en
þeir greiða sig inn á völlinn á
leikjum ÍBV. Það væri auðveld-
lega hægt að leysa þetta, leyfa
strákunum spila heimaleikina í
Eyjum og um leið fengi ÍBV öfl-
uga stuðingsmenn í stúkuna.“
Pepsídeild karla: Staðan, þegar íslandsmótið er hálfnað
Svipað gengi og í fyrra
- Fyrri umferð íslandsmóts lokið og ÍBV getur náð í 22 stig með sigri á KR.
- Vantar herslumuninn til að bæta árangurinn frá því í fyrra.
IAN JEFFS er næst markahæsti Ieikmaður ÍBV í sumar ásamt Andra
Ólafssynik, fyrirliða með þrjú mörk. Tryggvi Guðmundsson er
markahæstur með fjögur.
Nú er fyrri umferð Pepsídeildar
karla lokið en ÍBV liðið tapaði fyrir
Grindavík á útivelli í 11. og síðustu
umferðinni. Reyndar eiga Eyja-
menn leik til góða, gegn KR á úti-
velli 25. ágúst næstkomandi en
vesturbæjarliðið situr sem fastast á
toppi deildarinnar og miðað við
hvemig þeir hafa spilað, er erfitt að
sjá að þeir eigi eftir að misstíga sig
mikið það sem eftir lifír sumars.
Urslitin í leiknum gegn Grindavík
voru mikil vonbrigði enda eiga lið
sem ætla sér íslandsmeistaratitil að
vinna leiki gegn liðum í neðri hlut-
anum, í það minnsta ekki að tapa
fyrir þeim.
I raun eru þrír leikir sem má segja að
séu vonbrigði hjá ÍBV í sumar.
Strax í 2. umferð tapaði liðið gegn
Fylki á heimavelli en Eyjamenn
voru ekki enn búnir að ná takti enda
þurfti Heimir Hallgrímsson, þjálfari
liðsins að breyta áherslum eftir að
Gunnar Heiðar Þorvaldsson fór frá
ÍBV skömmu áður en mótið hófst.
Leikurinn gegn Þór á Akureyri olli
líka vonbrigðum en leiknum lyktaði
með 2:1 sigri Þórs, sem hefur verið í
botnbaráttunni í sumar. Svo er það
leikurinn gegn Grindavík sem
tapaðist 2:0 eins og áður sagði.
Jákvæðu hlutimir em hins vegar
mun fleiri en þeir neikvæðu.
Eyjamenn hafa verið fljótir að ná sér
eftir slæm töp, unnu t.d. Val á úti-
velli eftir slæmt tap á heimavelli
gegn Fylki, unnu Keflavík sann-
færandi á útivelli og FH á heimavelli
eftir erfiðan Evrópuleik og ferðalag
í tengslum við hann. IBV er í
þriðja sæti deildarinnar með 19 stig
en á reyndar leikinn inni gegn KR
eins og áður sagði. Eftir 11 umferð-
ir í fyrra var liðið í öðm sæti með 23
stig, sama stigafjölda og Breiðablik
sem var á toppnum með betri
markatölu. Ef IBV vinnur KR á
útivelli þá er liðið með 22 stig en
markmið sumarsins hjá ÍBV var að
gera betur en í fyrra. Ef það á að
ganga eftir, þá verða leikmenn að
láta hendur standa fram úr ermum,
hysja upp um sig sokkana, gyrða sig
í brók og spýta í lófa, hvorki meira
né minna.
Styrkleikar ÍBV felast í góðum
vamarleik, ekki ósvipað og í fyrra
en sérfræðingar á vegum vefsins
Fótbolti.net völdu m.a. Eið Aron
Sigurbjörnsson besta vamarmann
deildarinnar og Rasmus Christian-
sen varð þriðji í valinu. ÍBV hefur
fengið á sig níu mörk í tíu leikjum
og hafði fengið sama markafjölda á
sig í ellefu leikjum í fyrra. Aðeins
Valur og KR hafa fengið færri mörk
á sig.
Liðið vantar hins vegar meiri kraft
í fremstu víglínu en leit stendur yfir
að framherja og hefur m.a. Garðar
Gunnlaugsson verið orðaður við
liðið. Tryggvi Guðmundsson er
markahæstur í Islandsmótinu hjá
ÍBV með fjögur mörk en Andri
Ólafsson og Ian Jeffs hafa skorað
þrjú. Framherjamir Jordan Conn-
erton og Denis Sytnik hafa ekki
skorað mark fyrir ÍBV í íslands-
mótinu en Connerton er reyndar
farinn til síns heima vegna meiðsla.
Á sama tíma í fyrra hafði ÍBV skor-
að 18 mörk í 11 leikjum en í sumar
eru þau 14 í 10 leikjum.
Seinni umferð hefst hjá IBV á
Laugardalsvelli á sunnudaginn
þegar ÍBV mætir Fram, en þaðan
hefur ÍBV sjaldnast riðið feitum
hesti. Síðast vann ÍBV þar 18. júlí
2004 1:2 með mörkum Gunnars
Heiðars Þorvaldssonar. ÍBV leikur
svo aftur á útivelli gegn Fylki en í
millitíðinni verður undanúrslita-
leikur í bikarkeppninni gegn Þór á
Akureyri. Næstu leikir eiga því eftir
að segja mikið til um það hvemig
seinni hluti tímabilsins á eftir að
þróast.
Pepsídeild karla
KR 10 7 3 0 21:7 24
Valur 11 7 2 2 16:6 23
ÍBV 10 6 1 3 14:9 19
Stjaman 11 5 3 3 20:17 18
FH 11 4 4 3 23:16 16
Breiðablik 11 4 3 4 20:20 15
Fylkir 11 4 3 4 16:20 15
Keflavík 11 4 2 5 14:15 14
Grindavík 11 3 2 6 14:22 11
Þór 11 3 2 6 11:22 11
Víkingur 11 1 4 6 8:15 7
Fram 11 1 3 7 7:15 6
Pepsídeild kvenna: ÍBV - Valur 1:0
Styrkleiki liðsins er sterk
vörn og góð markvarsla
Kvennalið ÍBV byrjaði síðari
umferð Pepsídeildarinnar á að gera
jafntefli við Þór/KA á Hásteins-
vellinum. IBV vann Akureyringa í
fyrstu umferðinni, öllum að
óvörum, 0:5 en leikurinn á
Hásteinsvellinum var jafn og spenn-
andi allan tímann. Bæði lið hefðu
getað stolið sigrinum en lokatölur
urðu 0:0.
ÍBV hefur sýnt það í sumar að liðið
getur farið langt á sterkri vöm og
frábærri markvörslu. Bima Berg
Haraldsdóttir, markvörður ÍBV,
hefur haldið hreinu í sjö leikjum af
tíu sem er magnaður árangur. Hún
þurfti nokkrum sinnum að taka á
honum stóra sínum gegn Þór/KA og
sýndi um leið að hún er besti
markvörður deildarinnar í dag, þrátt
fyrir ungan aldur. En góður árangur
hennar væri ekki staðreynd ef ÍBV
spilaði ekki öflugan varnarleik.
Julie Nelson, n-írski varnar-
maðurinn hefur reynst ÍBV gulls
ígildi og Elísa Viðarsdóttir hefur átt
frábæra leiki. Nú er Elínborg
Ingvarsdóttir komin í miðvörðinn
með Nelson en Elísa hefur spilað
sem bakvörður og gert það vel,
BIRNA Berg Haraldsdóttir,
markvörður IBV.
sérstaklega í leiknum á móti Þór/-
KA.
Sóknarleikur liðsins hefur hins
vegar ekki verið í sama gæðaflokki
og vamarleikurinn. Stundum hefur
maður það á tilfinningunni að
framherja ÍBV skorti meiri áræðni
til að komast í færi og klára þau.
Það er líka ekkert óeðlilegt að á
meðan áhersla er lögð á að spila
sterkan vamarleik, þá bitni það á
sóknarleiknum.
Næsti leikur ÍBV er á þriðjudaginn
þegar ÍBV sækir Aftureldingu heim
í Mosfellsbæinn. IBV vann fyrri
leik liðanna í deildinni 5:0 en tapaði
svo í vítaspymukeppni fyrir þeim í
undanúrslitum bikarkeppninnar á
Hásteinsvellinum fyrir stuttu. Jón
Ólafur, þjálfari verður væntanlega í
vandræðum með að manna liðið því
fimm leikmenn verða fjarverandi.
Þórhildur Ólafsdóttir og Sóley Guð-
mundsdóttir em meiddar, Sigríður
Lára Garðarsdóttir og Svava Tara
Ólafsdóttir verða með U-l7 í Sviss
og Edda María Birgisdóttir er geng-
in í raðir Stjömunnar.
Pepsídeild kvenna
Stjaman 10 9 0 1 29:7 27
Valur 10 8 1 1 29:8 25
ÍBV 10 6 2 2 18:5 20
Þór/KA 10 6 1 3 20:21 19
Fylkir 10 5 1 4 15:16 16
Breiðablik 10 4 1 5 16:18 13
Afturelding 10 2 2 6 10:23 8
KR 10 1 4 5 7:14 7
Þróttur 10 1 3 6 11:21 6
Grindavík 10 0 1 9 8:30 1
(þróttir
3. deild karla:
Jafntefli
gegn KV
KFS sótti stig á erfiðan útivöll um
síðustu helgi þegar liðið gerði l: l
jafntefli gegn KV á gervigrasvelli
KR-inga í Reykjavík. KV komst
yfir um miðjan fyrri hálfleikinn
og allt leit út fyrir að Vestur-
bæingar myndu fagna sigri en í
uppbótartíma tók doktor Davíð
Egilsson sig til og skoraði jöfn-
unarmarkið á 93. mínútu. Næsti
leikur liðsins er á laugardaginn
þegar strákamir taka á móti Ými
og mun leikurinn væntanlega fara
fram á Týsvellinum.
Knattspyrna
Hughes
farinn heim
Bryan Hughes, enski miðju-
maðurinn sem hefur verið í her-
búðum ÍBV undanfarnar vikur, er
farinn aftur til Englands. Hughes
kom til ÍBV til að komast í betri
leikæfingu eftir erfið meiðsli en
hann átti í erfiðleikum með að
vinna sér sæti í byrjunarliði
Eyjamanna. Hughes spilaði sjö
leiki fyrir ÍBV og skoraði eitt
mark úr vítaspyrnu í bikarkeppn-
inni en það var jafnframt í eina
sinn sem hann var í byrjunar-
liðinu. Garðar Gunnlaugsson,
framherji sem hefur m.a. spilaði í
Búlgaríu, Þýskalandi og Svíþjóð,
var í vikunni orðaður við félagið
en samkvæmt upplýsingum Frétta
em minni líkur en meiri að hann
klæðist búningi ÍBV í sumar.
Knattspyrna
Anton og
Kjartan víxla
Anton Bjamason, leikmaður ÍBV
hefur skipt yfir til KFS. Anton
hefur fengið fá tækifæri með IBV
í sumar og verið inn og út úr leik-
mannahópi liðsins. Hann hefur
áður leikið með KFS við góðan
orðstír og fagna Hjalti Kristjáns-
son og hans menn hjá KFS vænt-
anlega komu þessa sterka, örv-
fætta leikmanns. En að sama
skapi missa þeir annan sterkan
leikmann því Kjartan Guðjónsson
hefur ákveðið að skipta aftur yfir í
ÍBV en Kjartan hefur verið í láni
hjá KFS undanfarnar vikur.
Kjartan hefur spilað ljóra leiki
fyrir KFS og skorað í þeim fjögur
mörk.
Framundan
Laugardagur 23. júlí
Kl. 14:00 KFS-Ýmir
3. deild karla.
Sunnudagur 24. júlí
Kl. 18:00 Fram-ÍBV
Pepsídeild karla.
Kl. 14:00 ÍR-ÍBV
2. flokkur karla.
Þriðjudagur 26. júlí
Kl. 17:15 Hvíti riddarinn-KFS
3. deild karla.
Kl. 18:00 Afturelding-ÍB V
Pepsídeild kvenna.
Kl. 16:00 Keflavík-ÍBV
3. flokkur kvenna.
Kl. 18:00 Fram-ÍBV
3. flokkur karla.
Miðvikudagur 27. júlí
Kl. 19:15 Þór-ÍBV
Valitor-bikar karla.
Kl. 17:00 Keflavík-ÍBV
2. flokkur kvenna.