Reykvíkingur - 20.06.1952, Page 6
LISTINlBORÐR
OLlllirm I o«i—ITIITÍ''Iiiri—bm——ga—n ■ n nHilii1 m n ■■ ’n — l
M ATSEÐILL vikunnar" hefur veri? mjög
í móðinn það sem af er þessu ári. Morgun-
blaðið reið á vaðið með matarkaupajátning-
ar óbreyttra borgara og matarkaupahugleið-
ingar sérfróðra borgara, og svo varð úr
þessu íslensk ritdeila með ónöfnum og öðr-
um skemmtilegheitum, og Valtýr sagði að
andstæðingarnir hef ðu ekki hundsvit á
mat, og andstæðingarnir sögðu að Valtýr
hefði ekki hundsvit á mat — og almenn-
ingur hélt áfram að éta fisk á rúmhelgum
dögum og kjöt um helgar. Hér fer á
eftir matseðill REYKVÍKINGS, nýstárleg-
ur matseðill, saminn af bandarískum mann-
eldisfræðingum, sem hvorki hafa heyrt
Valtýs getið né hinna sérfræðinganna. Hér
segir í stuttu máli frá niðurstöðum Banda-
ríkjamanna um mataræði, eins og þær birt-
ust í júníhefti Reader’s Digest.
MORGUNVERÐURINN ER MIKIL-
VÆGASTA MÁLTÍÐ DAGSINS
Rétt — Slæmur morgunmatur spillir
heilsunni, dregur úr stafsfjöri og getur jafn-
vel stefnt hjónabandssælunni í voða. Rann-
sóknir sanna, að menn, sem sleppa morgun-
verði að staðaldri, þjást meir en aðrir af
næringarskorti, auk þess sem þeir eru
lélegri námsmenn en morgunæturnar og
gera fleiri vitleysur á vinnustað. Manneldis-
fræðingar kenna slæmum eða engum morg-
unverði um margan hjónaslaginn — og
stundum um hjónaskilnaði.
HEIT MÁLTÍÐ HITAR MANNI
Rangt — Hitinn er bundinn í hitaein-
ingum (kalóríum) hverrar máltíðar. Hita-
einingarnar í rjómaís geta því vermt betur
en t.d. diskur af snarpheitri súpu.
LÍKAMANUM KEMUR VEL AÐ FÁ
ALLT AÐ FIMM MÁLTÍÐIR Á DAG
Rétt— Tvær smærri máltíðir milli aðal-
málíða (t. d. „morgun- og síðdegiskaffið“
eins og það tíðkast á mörgum íslenskum
vinnustöðum) koma að góðum notum. Þær
skerpa hugann, auka líkamsþróttinn — og
minnka líkurnar fyrir ofáti á hádegi og
að kvöldi.
ÞVÍ MEIRA SEM ÞÚ BORÐAR
ÞVÍ MEIRA VILTU FÁ
Rétt — Ef þú borðar yfir þig í dag, þá
verðurðu svangari á morgun. Stórmáltíðir
þenja út magann og orsaka óeðlilega mat-
arlyst. Á sama hátt valda litlar máltíðir
þverrandi matarlyst — að vissu marki.
ÞAÐ ER AUÐVELDARA AÐ
MEGRA SIG MEÐ „LÍKAMS-
ÆFINGUM" EN MINNI MATAR-
SKAMMTI
Rangt — Til þess að losa líkamann við
hitaeiningar einnar brauðsneiðar, þyrfti við-
komandi helst að klöngrast upp stigana í
20hæða húsi. Til þess að gera jafntefli við
einn disk af góðum súkkulaðiís, dugar ekki
minna en klukkustundar erfiðisvinna. Og
svo verður maður glorhungraður á öllu sam-
an.
ÞÚ ERT ERFIÐASTUR í
UMGENGNI FYRIR MATINN
Rétt — Rannsóknir sýna, að menn eru
skapmestir rétt áður en kallað er til mál-
tíða. Á hinn bóginn eru menn aldrei bón-
betri en þegar þeir eru nýbúnir að borða.
MATUR ER MEÐAL VIÐ
OFÞREYTU
Rangt — Mikið erfiði orsakar mikla og
óeðlilega matarlyst. En menn skyldu var-
ast að borða mikið, þegar þeir eru ó-
venjulega þreyttir. Meltingarfæri líkamans
eru lika þreytt; árangur (stundum): maga-
pína.
BÓLBITINN TRUFLAR SVEFN-
FRIÐINN
Rangt — Ein brauðsneið undir háttatíma,
súpudiskur eða bölli af mjólk gefur góð-
an svefn. Þetta örvar blóðrennsli til melt-
ingarfæranna, minnkar það til heilans. En
menn skyldu samt ekki borða ,,þungan“,
feitan mat á sænginni og það er nauðsyn-
legt að gæta hófsemi.
EF FLESTIR FEITIR MENN BORÐ-
UÐU EKKI MEIRA EN ÞEIR
SEGJAST BORÐA, ÞÁ VÆRU ÞEIR
GRANNIR
Hárrétt — Feitt fólk, sem segist „lifa á
loftinu”, er kannski ekki lygnara en gengur
og gerist. Hér er annað hvort um sjálfs-
blekkingu að ræða, eða þetta fólk borðar
lítið saman borið við það sem það gæti
borðað og vildi helst borða. Sú tilraun
var fyrir skemmstu gerð á bandarísku
sjúkrahúsi að gefa nokkrum offitusjúkling-
um nákvæmlega þann matarskammt, sem
þeir sögðust veita sér heimafyrir. Þeir létt-
ust um fimm pund á dag.
ÁSTIN OG FRAMVINDA MENN-
INGARINNAR
(SKT-deild)
Svo sem kunnugt er hefur aukin fram-
leiðsla íslenskra dægurlagateksta verið talin
meðal hinna meiri ávinninga að danslaga-
keppni SKT, og túlkuð sem styrkur mikill
fyrir menningu vora og tungu. Við birtum
hér einn þeirra teksta sem seinasta dans-
lagakeppnin færði þjóðinni:
Hún: Elskar þú mig?
Hann: Já.
Hún: Segðu mér aftur. Elskarðu mig?
Hann: Já.
Hún: Segðu það aftur. Elskarðu mig?
Hann: Já, alltaf ég elska þig.
Elskar þú mig?
Hún: Já.
Hann: Segðu það aftur. Elskarðu mig?
Hún: Já.
Hann: Segðu það aftur. Elskarðu mig?
Hún: Já, alltaf ég elska þig.
Bæði: Þá skulum við eyða ævinni í það
sem elskendur jafnan hafast að:
Dansa og syngja um dægrin löng,
dásama allt með gleðisöng.
Elskarðu mig? Já. Segðu það aftur.
Elskarðu mig? Já. Segðu það aftur.
Elskarðu mig? Já, alltaf ég elska þig.
CREAM CRACKERS, BISKUPINN, MARIE
OG PRÓFESSOR GYLFI
(Hannesar á horninu deild 14. 6.)
Frá forstjóra Esju, Sæmundi Ólafssyni,
hef ég fengið eftirfarandi: „Þú ert óánægður
með nafnið á Water kexinu, og kallar það
skrípanafn. Ennfremur ert þú með hugleið-
ingar um það, að kexið muni vera framleitt
að mestu úr vatni.
Á kexi eru ýmis alþjóðleg nöfn, sem hafa
borist hingað með erlendu kexi og fylgt því
eftir að framleiðsla á kexi var hafin hérlend-
is, t. d. Cream Crackers, Saloon, Marie,
Kremkex o. s. frv. Mér virðist þetta hlið-
stætt embættisheiti biskupsins, séra Bjarna,
rektor háskólans og vinar okkar, prófessors
Gylfa Þ. Gíslasonar, sem vinnur við Háskóla
íslands ....
VIÐBURÐARÍKUR SJÓMANNADAGUR Á
AKUREYRI
(AB-deild).
Frá fréttaritara AB á Akureyri.
Sjómannadagurinn hér fór fram á líkan
hátt og undanfarin ár. Veður var gott og
þátttaka almenn. HAFR.
DULARFYLLSTA FRÉTTIN SEM VIÐ
MUNUM EFTIR ÞESSA STUNDINA
(Landaleitadeild Mbl.).
MEÐAL þeirra þjóðríkja, sem tilkynnt
hafa þátttöku í sumarleikjunum í Helsing-
fors er Lichen
0
REYKVIKINGUR