Fréttablaðið - 19.02.2013, Side 20

Fréttablaðið - 19.02.2013, Side 20
Bílar ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 20132 Reynsluakstur Ford B-Max Það telst ávallt til stórra frétta þegar Ford kemur með nýjan bíl á markað. Það hlaut þá eðlilega að vera, á þessum tíma smárra bíla, að hann væri af smærri gerðinni, en engu að síður fjölnota- bíll. Hann heitir Ford B-Max og skírskotar með því nafni til stærri bræðra sinna C-Max og S-Max, sem og til B-stærðarflokks bíla. Ford segir að B-Max sé tegund af bíl sem heimsbyggðin hefur ekki séð áður og hann sé ekki bara ætlaður fólki með börn heldur einnig ævintýra- gjörnu fólki á öllum aldri. Þrátt fyrir að um byltingarkenndan bíl sé að ræða á hann að leysa af hólmi Ford Fusion-bílinn, sem var álíka sexí í útliti og frystikista. Þessi nýi bíll er byggður á sama undirvagni og Ford Fiesta en er 12 sentímetrum lengri og nokkru hærri að auki. Byltingarkennd hurðaopnun Það sem gerir þennan bíl strax athyglis verðan er að hann er ekki með neinn burðarpóst á milli hurða og því opnast hann alveg þegar þær báðar eru opnaðar. Sú aftari er rennihurð sem eykur enn á frá- bært innstig í bílinn og er opnun- in hvorki meira né minna en 1,5 metrar. Hvað þetta varðar á bíll- inn engan sinn líkan og gæti talist himnasending fyrir fólk sem á eitt eða f leiri börn sem sitja í barna- bílstólum, því ekki er hægt að hugsa sér annan bíl heppilegri til að festa þau í og taka út aftur. Þeir sem hafa áhyggjur af burði og styrk bílsins vegna skorts á burðarbitanum milli hurðanna geta sleppt því þar sem styrkurinn liggur í hurðunum sjálf- um og þegar þeim er lokað krækjast þær við þakið til að viðhalda stífni bílsins. Bíllinn hefur þó marga aðra kosti en þennan, svo sem frábærar vélar og mikla aksturshæfni. Litlar sprækar vélar og fínir aksturseiginleikar Ford B-Max var prófaður við bestu aðstæður á vegum í ná- grenni München og bæði reynd- ur með sprækri 1,6 lítra dísilvél og hinni frábæru eins lítra EcoBoost- bensínvél. Báðar reyndust þær ákaf lega heppilegar fyrir þenn- an bíl, en þær má reyndar finna í ýmsum öðrum gerðum minni Ford bíla. Þar sem B-Max er nettur bíll eru báðar þessar vélar sprækar og hann skemmtilegur fyrir vikið. Litla bensínvélin er 100 hestöfl enda með túrbínu. Þá vél má einnig fá 125 hestafla og sérpanta má bílinn þannig. Greinaskrifari myndi þó velja dísilvélina vegna mikils togs hennar og lágrar eyðslu. Hún er ekki skráð nema fyrir 75 hestöflum en er merkilega spræk. Ein vél enn er í boði hjá Brimborg, söluaðila bílsins hér á landi, en það er 1,6 lítra bensínvél, 105 hestafla, en með henni er bíllinn aðeins í boði sjálf- skiptur. Með hinum vélunum fæst hann bara beinskiptur og þannig er þessi lipri bíll reyndar skemmti- legastur. Það eru þó ekki allir sem kjósa það og krefjast sjálfskiptingar. Akstursgeta bílsins kom hressilega á óvart, hann svínliggur á vegi, er mjög lipur í stýringu og varla gætir nokkurs hliðarhalla þó lagt sé vel á hann í beygjum, auk þess sem hann er stöðugur í langkeyrslu. Hann er því með sömu rómuðu aksturs- eiginleikana og Ford Fiesta, enda með sama undirvagn og fjöðrun. Eitt er það þó sem setja þarf út á, hann sárvantar sjötta gírinn bein- skiptur fyrir þjóðvegaakstur og eyðir því meira þar en þarf. Praktísk innri hönnun Ford B-Max er sniðuglega innrétt- aður. Hann er með 318 lítra skott en ef aftursætin er lögð niður verð- ur gólfið alveg flatt, 2,3 metra langt og 1.103 lítrar. Innréttingin er afar smekkleg og Ford hefur tekist að Tímamótabíll án burðarbita milli hurða Er með rennihurðum á báðum hliðum og opnunin 1,5 metrar. Ford B-Max 1,0 bensínvél – 100 hestöfl Framhjóladrif Eyðsla: 4,9 l./100 km í blönduðum akstri Mengun: 114 g/km CO2 Hröðun: 13,2 sek. Hámarkshraði: 175 km/klst. Verð: 3.290.000 kr. Umboð: Brimborg Innréttingin minnir á margan lúxusbílinn en ekki er froðsað í efnisnotkun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ford B-Max Passaðu vel uppá rafgeyminn í vetur.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.