Fréttablaðið - 19.02.2013, Side 21

Fréttablaðið - 19.02.2013, Side 21
Bílar19. FEBRÚAR 2013 ÞRIÐJUDAGUR 3 láta hana líta dálítið lúxus lega út þó ekki sé froðsað með dýrri efnis- notkun. Þó verður að segja að að- eins of mikið sé froðsað í fjölda takka fyrir hljóðkerfi bílsins og minnir fyrir vikið á stjórnklefa í þotum. Sætin er mjög góð í bíln- um og auðvelt að finna heppilega akstursstöðu. Ökumaður, sem og aðrir farþegar, sitja hátt í bíln- um og það er einmitt það sem svo margir bílkaupendur sækjast eftir í dag og fyrir vikið sest maður beint inn í bílinn, ekki niður í hann eins og með svo marga fólksbíla. Þetta meta sérstaklega mikið eldri kaup- endur og reyndar líka margir kven- kyns ökumenn. Ford B-Max er með allra praktískustu bílum sem grein- arritari hefur séð, sparneytinn og ótrúlega góður í akstri og ætti því að eiga vísan nokkuð stóran kaup- endahóp, þó allra helst í hópi for- eldra með ung börn. Chevrolet hefur ekki selt afturhjóladrifinn fjögurra dyra fjöl- skyldubíl með mjög öflugri vél síðan 1996, eða frá því að Chevr- olet Impala SS var á sölulista fyrirtækisins. Úr því verður bætt á þessu ári með tilkomu Chevrolet SS sem verður með V8-vél undir húddinu og 415 hestöfl. Tekur sá bíll sprettinn í hundraðið á fimm sekúndum. Það sem er líklega merkilegast við þennan bíl er að hann er hannaður og smíðaður af Holden-armi Chevrolet í Ástralíu. Chevrolet SS kemur í sölu á síðasta ársfjórðungi ársins. Chevrolet framleiðir að sjálfsögðu Camaro og Corvette-bílana, en þeir eru báðir tveggja hurða sportbílar og ekki hentugir sem fjölskyldubílar. General Motors, eigandi Chevrolet, bauð reynd- ar upp á öflugan fjölskyldubíl í formi Pontiac G8-bílsins fram til ársins 2010, eða þar til Pontiac-merkið var lagt niður. Chevrolet áætlar ekki að SS-bíllinn verði mikill magnsölubíll, hann muni seljast í 8-10.000 eintökum á ári. Hann á að keppa við Dodge Charger SRT og Chrysler 300 SRT á markaðnum fyrir kraftabíla sem ekki falla í lúxusbílaflokk. GM ætlar að setja 13 nýja bíla á markað á þessu ári og býst við 7% söluaukningu frá árinu í fyrra. Aftur til fortíðar með 415 hestafla Chevrolet SS Chevrolet SS KOSTIR Byltingar- kennd hurðaopn- un, aksturs- eiginleikar, góðar vélar Vantar sjötta gírinn, fæst bara sjálfskiptur með einni vélargerð GALLAR Ótrúlega rúmur og notadrjúgur lítill bíll og kjörinn fyrir barnafjölskyldur FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ford B-Max Rúnar Róberts Góður vinnufélagi! Virka daga kl. 13 – 16

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.